Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 63
HEILBRIGÐISMÁL
Kennsla á gönguskíöum á
golfvelli Húsavíkur á vegum
Heilsuefllngar. Á annaö hundr-
aö manns nutu kennslu,
veitinga og veöurblíöu í febrú-
ar. Ljósm. Sævar Haröarson.
Samstarf er við heilsugæslustöð í
Habo í Svíþjóð þar sem fram fer
hóprannsókn á lífsháttum og líðan.
Notuð eru gögn þaðan, einkum
spurningalistar sem hafa verið
þýddir og er samanburður á niður-
stöðum því mögulegur.
Akvörðun um verkefnaval er í
höndum heimamanna og verkefni í
bæjunum eru skipulögð í samráði
við verkefnisstjóm.
Skipta má verkefnunum í fimm
flokka:
1. Heilsuefling á heilsugœslustöð
Hópar fólks eru boðaðir til viðtals
og skoðunar á heilsugæslustöð, til
dæmis í tengslum við námskeið.
Notaðir eru spumingalistar um lífs-
hætti og líðan.
Hóprannsókn hjá ákveðnum ald-
urshópi bæjarbúa. Stuðst er við fyr-
irmynd og mælitæki frá Habo.
Til dæmis fór nú af stað á Húsa-
vík rannsókn á hópi Húsvíkinga
sem eru fæddir á árunum 1955 til
1959. Hver og einn kemur í viðtal
og skoðun til hjúkrunarfræðings,
læknis og tannlæknis. Notaðir eru
spumingalistar þar sem spurt er um
líðan og lífshætti, mældir líkamlegir
þættir eins og blóðþrýstingur, blóð-
fitu og fleira auk þess sem skoðun á
tannheilsu fer fram. Þessum ein-
staklingum er síðan fylgt eftir með
skoðun eftir eitt til fimm ár.
Sérstakir opnir tímar fyrir mæl-
ingar og ráðgjöf á heilsugæslustöð.
2. Heilsuefling á vinnustöðum
Samstarf starfsmanna, stéttarfé-
laga, vinnuveitenda, heilsugæslu,
bæjarfélags, íþróttafélaga og fleiri
aðila.
Námskeið fyrir starfsmenn.
Fræðsla, mælingar á blóðþrýstingi
og þoli, sjálfsmat á líðan og lífshátt-
um, ráðleggingar um líkamsbeitingu
og ráðgjöf um hreyfingu.
Til dæmis voru haldin nokkur
námskeið fyrir bæjarstarfsmenn í
Hafnarfirði í haust og nú í febrúar
hófst samstarf við nokkra vinnustaði
í Hornafirði þar sem blandað er
saman með svipuðum hætti og í
Hafnarfirði fræðslu um Iífshætti,
mat á líkamlegu ástandi og sérstakri
fræðslu um líkamsbeitingu.
3. Heilsuefling í skólum
Valgrein um heilsueflingu í
grunnskóla.
Þemavika um heilsueflingu í
grunnskóla.
Fræðsla um mataræði til nem-
enda, kennara og foreldra í sam-
vinnu við Manneldisráð.
Fræðsla um varnir gegn neyslu
tóbaks, áfengis og vímuefna.
Aukið vægi heilsueflingar í
kennslu í íþróttum, heimilisfræði,
líffræði og fleiri greinum.
Aukin samvinna kennara, nem-
enda, heilsugæslu, bæjarfélags og
félaga.
4. Heilsuefling fyrir almenning
Almenningshlaup í samvinnu
við UMFI og Iþróttir fyrir alla sum-
arið 1994. Fyrirhugað almennings-
hlaup haustið 1995.
Göngu- og skokkhópar. Sam-
starf heilsugæslu, íþróttafélags og
bæjar. Til dæmis hafa verið settir á
laggirnar gönguhópar í Hornafirði
og til stendur að setja af stað slíkan
hóp í Hafnarfirði í tengslum við
heilsueflinguna þar. í Hveragerði
hefur verið stofnuð almennings-
íþróttadeildin Heilsubót.
Fræðsla í fjölmiðlum. Fréttir og
fræðsla í staðbundnum blöðum, út-
varpi og sjónvarpi.
Atak um lleiri reyklausa vinnu-
staði. Samstarf við bæ og krabba-
meinsfélag.
57
L