Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Page 66
ERLEND SAMSKIPTI
Sveitar- og héraðsstjórnar-
þing Evrópuráðsins eflt
Á fundi stjórnmálaleiðtoga Evr-
ópuráðsríkjanna sem haldinn var í
Vínarborg í október 1993 var
akveðið að efla Sveitar- og héraðs-
stjórnarþing Evrópuráðsins og að
veita ríkjum Mið- og Austur-Evr-
ópu, sem uppfylla skilyrði stofn-
skrár þess, aðild að því.
I samræmi við þessa ákvörðun
hefur stofnskrá þess verið breytt.
Það er nú eingöngu skipað kjörnum
fulltrúum í sveitar- og héraðsstjórn-
um og embættismönnum sem bera
beina ábyrgð gagnvart sveitar- eða
héraðsstjórnum. Það starfar í tveim-
ur deildum og er önnur skipuð full-
trúum sveitarstjóma og hin héraðs-
stjórna. Það er nú skipað samtals
239 aðalfulltrúum og jafnmörgum
varafulltrúum frá aðildarríkjunum
sem nú eru orðin 34.
Aðildarríkin eru, í stafrófsröð,
Andorra, Austurríki, Belgía, Bret-
land, Búlgaría, Danmörk, Eistland,
Finnland, Frakkland, Grikkland,
Holland, Irland, ísland, Italía, Kýp-
ur, Lettland, Litháen, Liechtenstein,
Lúxemborg, Malta, Noregur, Pól-
land, Portúgal, Rúmenía, San Mar-
ino, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sví-
þjóð, Sviss, Tékkland, Tyrkland,
Ungverjaland og Þýskaland.
Sveitar- og héraðsstjórnarþingið
hefur látið til sín taka m.a. umhverf-
ismál og náttúruvemd, eflingu sveit-
ar- og héraðsstjóma, ýmis mannrétt-
indamál, skipulags- og byggingar-
mál, fræðslu- og menningarmál, fé-
lags- og heilbrigðismál, málefni
aldraðra, vinabæjatengsl, einkurn
milli bæja í Vestur-Evrópu og í
Mið- og Austur-Evrópu, og annað
samstarf sveitarstjóma, sérstaklega
við hin nýfrjálsu ríki Mið- og Aust-
ur-Evrópu.
Fyrstu fundir Sveitar- og héraðs-
stjórnarþingsins eftir að því var
breytt voru haldnir í Strassborg 31.
maí til 3. júní sl. og það kemur öðm
sinni saman til funda 30. maí til 1.
júní í ár. Á þinginu í ár verður m.a.
rætt um Náttúruverndarár Evrópu,
norður/suður samstarf sveitar-
stjórna, þjóðaratkvæðagreiðslur og
form á þátttöku hins almenna borg-
ara í ákvarðanatöku, vanda fjalla-
héraða Evrópu og sígauna og kynnt-
ar niðurstöður ýmiss konar kannana
og samanburðar á stjórnkerfi sveit-
ar- og héraðsstjóma í aðildarríkjun-
um, sem skrifstofa Sveitar- og hér-
aðsstjómarþingsins í Strassborg hef-
ur að undanfömu unnið að.
Stjóm sambandsins hefur tilnefnt
til setu á þinginu þau Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson, borgarfulltrúa og for-
mann sambandsins, sem er formað-
ur sendinefndarinnar, og bæjarfull-
trúana Sigríði Stefánsdóttur á Akur-
eyri og Ingvar Viktorsson í Hafnar-
firði.
Sem varafulltrúar þeirra hafa ver-
ið tilnefnd Valgarður Hilmarsson,
oddviti Engihlíðarhrepps og vara-
formaður sambandsins, Sigrún
Magnúsdóttir, varaforseti borgar-
stjórnar Reykjavíkur, og Magnús
Karel Hannesson, oddviti Eyrar-
bakkahrepps.
Kvennaráðsteína
6.-8. jiílí í Dublin
Sveitar- og héraðsstjórnarþing
Evrópuráðsins efnir til ráðstefnu
kvenna í sveitar- og héraðsstjórnum
dagana 6.-8. júlí nk. í Dublin á Ir-
landi.
Gert er ráð fyrir að hana sæki
★ ★
★ ★
★ ★
★ ★ ★
kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum
bæði í Vestur- og Austur-Evrópu.
Yfirskrift hennar er Konur, stjórn-
mál, lýðræði - skoðanaskipti
kvenna kjörinna í sveitarstjómum í
Vestur- og Austur-Evrópu.
Á henni verða rædd þau vanda-
mál sem konur eiga við að stríða í
starfi sínu. Tungumál ráðstefnunnar
verða enska, franska og þýska.
Á Iandsfundi jafnréttisnefnda
sveitarfélaga í októbermánuði sl.
kynnti Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður sambandsins, ráðstefnuna
og taldi eðlilegt að frá íslandi sæktu
hana a.m.k. tveir fulltrúar.
Alþjóðleg ráðsteína um
umhverfismál í
Diisseldorf 20. og 21. júní
Samband þýskra sveitarfélaga
efnir til alþjóðlegrar ráðstefnu um
umhverfismál í borginni Diisseldorf
20. og 21. júní. Hún er haldin í sam-
starl'i við borgina og stofnanir og
samtök um hina ýmsu þætti um-
hverfisverndar, s.s. um öflun
neysluvatns og verndun andrúms-
loftsins.
I sýningarhöllinni þar verður
sömu daga haldin vömsýningin EN-
VITEC 1995 og er í tengslum við
efni rúðstefnunnar.
Helstu uinræðuefni á ráðstefnunni
60