Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 5

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 5
FRÆÐSLUMAL Grunnskólinn í góðum höndum Björn Bjarnason menntamálaráðherra Umræður um aukið hlut- verk sveitarfélaga og dreif- ingu valds hafa verið mikl- ar á undanfömum árum og áratugum. Jafnhliða því hefur verið lögð áhersla á, að sveitarfélög tækju hönd- um saman og styrktu inn- viði sína með samruna. Raunar fellur þetta tvennt saman, aukin og ábyrgðar- mikil verkefni knýja á um sterka stjóm og traust bak- land. Með þetta í huga má færa sterk rök fyrir því, að ekkert verkefni sé betur til þess fallið að ná þessum markmiðum en flutningur grunnskólans til sveitar- félaganna. Lítum á nokkrar tölur til stuðnings þessari staðhæf- ingu. Við flutning grunn- skólans eru kennarar við hann 3040 í 2635 stöðu- gildum og leiðbeinendur 509 í 324 stöðugildum eða samtals 3549 starfsmenn við kennslu. Annað starfsfólk við grunnskólann á vegum ríkisins er um 100, þannig að alls flytjast 3650 til 3700 starfsmenn frá ríki til sveitar- félaganna við flutninginn. Skólaárið 1995/96 voru nemendur í grunnskólum landsins um 42.200. Þegar litið er til fjármuna, kemur í ljós, að verkefni, sem metin eru á rúma sex milljarða eða samtals 6.227.250 þús. króna, færast frá ríki til sveitarfélaga. Aætlað er, að húsnæði, sem sveitarfélög geta eignast að fullu með flutningnum, sé á bilinu 320-360 þúsund fermetrar að stærð og brunabótamat eignarhluta ríkisins í því sé um 15-17 milljarðar króna. Þessar tölur segja meira en flest annað um umfang þeirra verkefna, sem flytjast nú úr verkahring ríkisins til sveitarfélaganna. Er óhætt að fullyrða, að aldrei fyrr hafi svipað skref verið stigið í þessu efni. Hefur þó ekki ver- ið lagt mat á þá faglegu ábyrgð, sem lögð er á sveit- arfélögin með þessari ráð- stöfun. Lokaáfangi skipu- lagður Flutningur þessa mikla verkefnis hefur verið fram- kvæmdur í áföngum. Fyrir gildistöku laga nr. 87/1989 um breytingu á verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga var skipting verkefna grunnskólans á milli ríkis og sveitarfélaga með þeim hætti, að ríkið sá um allar launagreiðslur vegna kennslu, greiddi skólaakstur og rekstur mötuneyta að hluta og tók þátt í stofn- kostnaði vegna grunnskóla- húsnæðis miðað við ákveð- in viðmiðunarmörk. Sveit- arfélögin greiddu aftur á móti annan rekstrarkostnað grunnskólanna svo og þann kostnað, sem var umfram framlag ríkisins vegna grunn- skólabygginga. Lögin um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga nr. 87/1989, sem tóku gildi 1. janúar 1990, fólu í sér að kostnaður vegna skólaaksturs og reksturs mötu- neyta grunnskóla færðist yfir á sveitarfélögin ásamt öll- um stofnkostnaði vegna grunnskólahúsnæðis. Jafnframt var reglum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga breytt þannig að sveitarfélög fengu grunnskólaframlög vegna skóla- aksturs barna úr dreifbýli og fámennari sveitarfélög fengu stofnkostnaðarframlög vegna grunnskólabygg- inga. Með lögum um grunnskóla nr. 66/1995 var lögfest, að allur kostnaður grunnskóla skuli greiddur af sveitarfélög- um. I lögunum er gert ráð fyrir því, að allur launakostn- aður vegna kennslu í grunnskólum flytjist frá ríki til sveitarfélaga ásamt rekstrarkostnaði ýmissa tengdra

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.