Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 6

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 6
FRÆÐSLUMAL stofnana, eins og sérskóla ríkisins, sérdeilda og fræðslu- skrifstofa. Kjami hinna nýju grunnskólalaga frá 1995 og loka- áfanga þessa mikla llutnings frá ríki til sveitarfélaga er því sú ákvörðun, að sveitarfélög taki alfarið við ráðn- ingu kennara og skólastjórnenda og launagreiðslum til þeirra svo og að sérfræðiþjónusta, sem verið hefur í verkahring fræðsluskrifstofa, færist yfir til sveitarfélaga. Gildistaka meö skilyröum Þegar annað ráðuneyti Davíðs Oddssonar var myndað 23. apríl 1995 og ég tók við störfum menntamálaráð- herra, voru tæpir tveir mánuðir liðnir frá því, að Alþingi hafði samþykkt ný grunnskólalög, sem mæltu fyrir um þennan flutning og að hann skyldi miðast við 1. ágúst 1996. Grunnskólalögin voru samþykkt í febrúar 1995 á Al- þingi á síðustu dögunum fyrir þingrof og kosningar og í skugga kennaraverkfalls. I lokahrinunni á Alþingi var bætt atriðum inn í gildistökuákvæði laganna. Þessi skilyrði voru sett fyrir gildistökunni: 1. Breyting verði á lögum um Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins sem tryggi öllum þeim kennurum og skólastjórnendum við grunnskóla, sem rétt hafa átt til aðildar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, aðild að sjóðnum. 2. Lög um ráðningarréttindi kennara og skólastjóm- enda við grunnskóla tryggi þeim efnislega óbreytt ráðn- ingarréttindi hjá nýjum vinnuveitanda. 3. Breytingar verði á lögum um tekjustofna sveitarfé- laga og lögum um skiptingu skatttekna milli ríkis og sveitarfélaga með tilliti til þeirra auknu verkefna er sveitarfélög taka að sér samkvæmt löguin þessum. Lá ljóst fyrir, að Alþingi yrði að samþykkja þessar breytingar veturinn 1995 til 1996, til að lögin og flutn- ingurinn kæmu til framkvæmda 1. ágúst 1996. Þess vegna var það frumskylda menntamálaráðherra í nýrri ríkisstjóm að kosningum loknum að fullnægja þessum skilyrðum og sjá til þess, að Alþingi fjallaði um nauð- synlegar lagabreytingar í samræmi við þau. Nauðsynlegt var að standa þannig að málum, að fullur trúnaður og traust skapaðist á milli þeirra þriggja aðila, sem að málinu kæmu, sveitarafélaga, kennara og ríkis- ins. Einnig yrði að halda þannig á málum, að fljótt skap- aðist sannfæring fyrir því, að ferlið leiddi að lokum til yfirfærslunnar 1. ágúst 1996, þótt afgreiðsla mála á Al- þingi kynni að dragast. Ferli undir verkefnisstjórn Hinn 16. maí 1995 kynnti ég ríkisstjórninni minnis- blað um framkvæmd grunnskólalaganna. Þá hafði ég átt viðræður við fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og fulltrúa kennarafélaganna. Byggðist minnisblaðið á hugmyndum, sem urðu til í þeim viðræðum um, að komið yrði á fót verkefnisstjóm og þremur sémefndum til að fjalla um réttindamál kennara, kostnaðarskiptingu rikis og sveitarfélaga og fagleg málefni, það er sérskóla og verkefni fræðsluskrifstofa. Ríkisstjórnin féllst á tillögu mína og hinn 26. júní 1995 skipaði ég verkefnisstjórn. Hrólfur Kjartansson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, var formaður hennar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson kom frá frá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga, Eiríkur Jónsson frá Kenn- arasambandi Islands, Steingrímur Ari Arason frá fjár- málaráðuneyti og Húnbogi Þorsteinsson frá félagsmála- ráðuneyti. Var þeim falið að hafa yfirumsjón með fram- kvæmd á flutningi grunnskólans, sjá um undirbúning nauðsynlegra stjórnvaldsaðgerða svo sem undirbúning lagabreytinga og setningu reglugerða og samræma vinnu sérnefndanna þriggja. I þeim völdust til formennsku: Helgi Jónasson fræðslustjóri í nefndinni, sem fjallaði um flutning á verkefnum fræðsluskrifstofa, Halldór Árna- son, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, í nefndinni, sem fjallaði um kostnaðarskiptinguna, og Guðmundur H. Guðmundsson, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu. í nefndinni, sem fjallaði um réttindamálin. Réttindi og skyldur Hinn 22. desember 1995 komst réttindanefndin að sameiginlegri niðurstöðu „nema blæbrigði verða greind um a.m.k. eitt atriði“ eins og segir í skilabréfi nefndar- manna. Eftir að verkefnisstjóm hafði fjallað um skýrslu nefndarinnar og í samráði við hana fól ég Þómnni Guð- mundsdóttur hrl. að vinna með nefndinni og í samvinnu við verkefnisstjórn að gerð lagafrumvarps á grundvelli nefndarálitsins. Hinn 1. febrúar 1996 sendi verkefnisstjórn mér bréf og tillögu að frumvarpi til laga um réttindi og skyldur kenn- ara og skólastjórnenda í grunnskólum, sem stjómin hafði orðið ásátt um á fundi sínum þann sama dag. Var fmm- varpið samþykkt í ríkisstjóm skömmu síðar og lagt fyrir Alþingi. Meginefni frumvarpsins er, að réttindi kennara og skólastjómenda grunnskólans skerðast ekkert við flutn- inginn. Var þetta margítrekað af mér í ræðu og riti næstu vikur, eftir að frumvarpið sá dagsins ljós og kom til um- ræðu á Alþingi. Þar var frumvarpið gert tortryggilegt vegna deilna um allt annað mál milli opinberra starfs- manna og ríkisstjómarinnar, það er breytinga á almennu lögunum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Sérstaklega var eftir því gengið við mig að skýra, hvað fælist í þeim orðum í lok almenns inngangs í greinargerð frumvarpsins, þar sem vísað er til þess, að lögin um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 38/1954, væru þá í endurskoðun og hygðist ríkisstjórnin leggja fram frumvarp til nýrra laga um réttindi og skyldur ríkisstarfs- manna á vorþingi 1996. Næði það frumvarp fram að ganga væri ríkisstjómin reiðubúin að breyta lögum, sem kynnu að verða sett á grundvelli frumvarps þessa um réttindi og skyldur kennara og skólastjóra við grunn- 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.