Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 25

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 25
FRÆÐSLUMÁL Að athugun lokinni gera starfsmenn sérfræðiþjónustu tillögur um viðeigandi meðferð og úrbætur. Sérfræðiþjónusta skóla skal gefa forráðamönnum kost á leiðbeiningum um uppeldi nemenda eftir því sem að- stæður leyfa. Önnur verkefni sérfræðiþjónustu eru m.a. námsráð- gjöf, forganga um umbætur í skólamálum, endur- og sí- menntun kennara í samráði við skóla sem veita kennara- menntun og sérfræðileg ráðgjöf um stofnun og starf- rækslu skólasafna. Starfsmenn sérfræðiþjónustu skulu vera kennarar með framhaldsmenntun, sálfræðingar og aðrir sérfræðingar. Reglugerð um sérfræðiþjónustu skóla öðlast væntan- lega gildi 1. ágúst 1996. Þar er kveðið á um þá lágmarks sérfræðiþjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita. Einnig öðlast gildi hinn 1. ágúst 1996 ný reglugerð um sérkennslu sem byggir að miklu leyti á gildandi reglugerð. I reglugerðinni verða viðmiðunarákvæði um kennslumagn, skilgreiningu sérkennslu og skipulag. Reynslan hefur sýnt að sérkennsluþörf er mismunandi í einstökum skólum frá ári til árs. I stærri sveitarfélögum jafnast þessi mismunur að mestu út en í minni sveitarfélögum er nauðsynlegt að gera ráð fyrir mismunandi þörf á sérkennslu frá einu ári til annars eftir samsetningu nemendahópsins. Mikilvægt er að sérmenntaðir kennarar annist kennslu barna með sérþarfir eftir því sem við verður komið og í því sambandi er rétt að benda minni sveitarfélögum á að hafa samstarf um ráðningu kennara til að sinna sér- hæfðri kennslu, eins og t.d. talkennslu. Samkvæmt grunnskólalögum er meginstefnan sú að allir nemendur fái kennslu við hæfi í heimaskóla. Ekki er líklegt að alls staðar verði hægt að veita öllum böm- um með miklar sérþarfir kennslu við hæfi í heimaskóla. Þar sem svo háttar til verður sveitarstjórn að tryggja þessum nemendum skólavist annars staðar, t.d. með því að setja upp sérstakt kennsluúrræði, útvega skólavist í öðrurn grunnskóla, í sérdeild eða sérskóla. Sveitarfélög geta stofnað og rekið sérskóla og sér- deildir annaðhvort ein sér eða í samvinnu við önnur sveitarfélög. Sérskólar hafa verið starfandi í landinu um langt skeið með góðurn árangri. Þeir sérfræðingar sem þar starfa hafa mikla reynslu í að veita nemendum með sérþarfir góða þjónustu. Samkvæmt grunnskólalögum munu sveitarfélögin taka við öllum rekstri þessara skóla um leið og þau taka við rekstri grunnskólans. Mikilvægt er að sú mikla reynsla og þekking sem starfsmenn sér- skólanna hafa af þjónustu við börn með sérþarfir verði nýtt á sem bestan hátt. Sveitarfélög hafa á síðustu mánuðum þurft að taka ýmsar ákvarðanir um undirbúning skólaársins 1996/97, s.s að ákveða kennslumagn og deildafjölda, meta kenn- araþörf, auglýsa lausar kennarastöður, ráða kennara o.fl. Til þess að auðvelda sveitarfélögum þessa vinnu mæltist menntamálaráðherra til þess við fræðslustjóra að þeir aðstoðuðu sveitarfélögin eftir föngum við nauðsyn- lega undirbúningsvinnu. Fræðslustjórar sendu því skólum og sveitarstjórnum áætlun um nemenda- og deildafjölda, kennslumagn og mat á kennaraþörf sem byggð er á sömu forsendum og skólaárið 1995/96. Skólunum voru sendar frumáætlanir til skoðunar og eftir að viðbrögð skólanna við þeim bár- ust sendi fræðslustjóri lokaáætlun sína sem tillögu til viðkomandi sveitarstjómar. Skipulag og framkvæmd skyldunámsins í landinu er einn mikilvægasti þátturinn í því að viðhalda menningu þjóðarinnar sem er undirstaða tilveru hennar sem sjálf- stæðrar þjóðar sem talar sitt eigið tungumál. Það er því mikið traust sem löggjafarvaldið sýnir sveitarstjómum landsins með því að fela þeim að fullu umsjón með kennslu og skólahaldi skyldunámsins. Eg er þess fullviss að sveitarstjórnir munu ekki bregð- ast því trausti. Fyrir því hef ég rökstudda reynslu, bæði sem fræðslustjóri í Reykjanesumdænti í 20 ár og sem fræðslustjóri í Hafnarfirði næstu 8 ár þar á undan. Skipting landsins í fræðsluumdæmi var hugmynd sem byggðist á reynslunni af því að fela Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ og Hafnarfjarðarkaupstað umsjón með kennslu og skólahaldi skyldunámsins. Þá voru einnig uppi hugmyndir um þriðja stjórnsýslustigið og voru fræðsluumdæmin sniðin að þeim hugmyndum. Þriðja stjómsýslustigið varð ekki að veruleika. I grunnskólalögunum, sem sett voru 1995, er valin sú leið að fela sveitarfélögum þetta verkefni í trausti þess að nýir tímar og nútíma tækni geri þeim kleift að sinna þessu sómasamlega. Nefnd semur reglugerð um lágmarks- aðstöðu og búnað í grunnskólum Hinn 18. október 1995 tilnefndi stjórn sambandsins þau Sigrúnu Magnúsdóttur, borgarfulltrúa og formann skólamálaráðs Reykjavíkurborgar, og Guðbjart Hannes- son, skólastjóra og bæjarfulltrúa á Akranesi, í vinnuhóp til þess að semja reglugerð um lágmarksaðstöðu og bún- að grunnskólahúsnæðis sem farið skal eftir við undir- búning að nýbyggingu og endurbótum grunnskólahús- næðis samkvæmt 20. gr. grunnskólalaganna. Mennta- málaráðherra setur reglugerðina í samráði við samband- ið. Af hálfu menntamálaráðuneytisins skipa vinnuhóp- inn þeir Örlygur Geirsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, sem er formaður, og Björn L. Halldórsson, fv. forstöðu- maður skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Með vinnuhópnum starfa Herntann Jóhannesson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, og Guðrún S. Hilmisdóttir, verkfræðingur á skrifstofu sambandsins. 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.