Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 29

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 29
FRÆÐSLUMÁL kynningarfundi eða námskeið um námsefni. Auglýsingar um nýtt námsefni eru iðulega birtar í fagblöð- um kennara. Kannanir eru gerðar meðal kenn- ara til að öðlast vitneskju um viðhorf þeirra til námsefnis. Þannig fást ábendingar um það sem betur má fara og upplýsingar um það sem fell- ur í góðan jarðveg. 1. ágúst 1996 Margir spyrja þeirrar spurningar hvað verði um Námsgagnastofnun við flutning á rekstri grunnskólanna til sveitarfélaganna. Því er til að svara að engiit breyting hefur verið boðuð á staifsemi Námsgagnastofn- unar. Ný lög um grunnskóla voru samþykkt í mars 1995 og þar segir: „Námsgagnastofnun skal tryggja að ætíð sé völ á námsbókum og öðrum námsgögnum sem standast kröfur gildandi laga og aðalnámskrár, annað- hvort með eigin útgáfu eða útvegun frá öðrum aðilum". Þessi málsgrein sýnir að löggjafinn telur ekki rétt að breyta því fyrirkomulagi sem hefur verið haft á náms- efnisgerð og -dreifingu til grunnskólanna. Jafnframt segir í lögunum: „... og er óheimilt að krefja nemendur eða forráðamenn þeirra um greiðslur fyrir kennslu, námsgögn eða annað efni er nemendum er gert skylt að nota í námi sínu...“ Einnig segir: „Ríkinu er skylt að leggja til og kosta kennslu- og námsgögn er fullnægja ákvæðum aðalnámsskrár." Niðurstaðan er því sú að grunnskólanemendur eiga rétt á ókeypis námsgögnum Fjölmenni á kynningarfundi um námsefni. Greinarhöfundur tók þær Ijósmyndir sem ekki eru öörum merktar. Kennsluforrit og Islandshandbókin á margmiölunardiski kynnt á sýningu sl. haust. og að ríkið mun halda áfram að kosta námsgögnin og flyst sá kostnaðarliður því ekki til sveitarfélaganna 1. ágúst nk. Lokaorö Námsefnisgerð á vegum ríkisins er trygging fyrir því að allir grunnskólanemendur fái sömu þjónustu hvað út- hlutun námsefnis varðar - án tillits til í hvaða sveitarfé- lagi þeir búa. Reynsla nágranna okkar á Norðurlöndunt (þar sem sveitarfélög sjá skólum fyrir fjármagni til að kaupa námsefni frá forlögunum) hefur leitt í ljós að að- staða nemenda til að fá námsgögn er afar misjöfn eftir sveitarfélögum. Þetta þarf engan að undra því sveitar- félög eru að sjálfsögðu misjafnlega vel stæð, bæði annars staðar á Norð- urlöndum og hérlendis. Því má segja að fyrirkomulagið hér á landi á útvegun námsefnis fyrir grunnskólanemendur sé hagkvæmt enda er það til orðið vegna þess hve markaðurinn er smár. Allir grunn- skólanemendur sitja við sama borð, dreift er að meðaltali 14—15 titlum á nemanda á ári en eigi að síður er kostnaðurinn á nemanda ekki nema um 5100 kr. Stofnunin væntir þess að eiga hér eftir sem hingað til gott samstarf við kennara og skólastjóra í grunnskól- um, sveitarstjórnir og nýstofnaðar skólaskrifstofur og mun leitast við að veita þessum aðilum sem besta þjón- ustu. 9 1

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.