Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 38

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 38
UMHVERFISMAL um stöðugt sem gera sér grein fyrir að með því að taka upp markvissa umhverfisstefnu bæta þau sam- keppnisstöðu sína og ímynd. Síðast en ekki síst tekst oft að spara veru- legar upphæðir með lækkun kostn- aðar vegna tiltekinna úrbóta sem tengjast umhverfismálum. Ef verk- efni sem þetta getur orðið til þess að efla fyrirtæki á staðnum til fram- sækni getur það skipt sköpum bæði fyrir þau og atvinnulífið í heild. Hvort sem verkefnið snýr að bænum, fyrirtækjum, stofnunum eða einstaklingum þá er nauðsyn- legt að byrja að meta stöðuna eins og hún er nú til að geta sagt til um árangur. Ef ætlunin er að minnka sorpmagn þarf að byrja á að meta hversu mikið það er í byrjun án þess að breyta núverandi venjum. Ef á að hreinsa til í porti fyrirtækis er gott að taka fyrst myndir af bílflökum og brotajárni, áður en farið er út í tiltekt og gróðursetningu. Best er að þeir sem vilja gera eitthvað taki afmörk- uð verkefni fyrir - eitt skref í einu. Það væri til dæmis mjög jákvætt ef hver stofnun bæjarins kæmi sér upp einu verkefni. Dæmi um slíkt afmarkað verkefni er að nú er unnið að því í leikskól- anum að byrja að flokka sorp og er ætlunin að koma þar upp safnkassa á síðari stigum. Verkefnið felst í því að flokka og skrá magn í um það bil tvo mánuði og vinna síðan mark- visst að því að minnka sorp. I fram- haldi af því verði svo komið upp einangruðum safnkassa. Þetta verk- efni byggir á því að virkja börnin, kenna þeim og vekja þau til um- hugsunar. Þau munu síðan færa þekkinguna með sér inn á heimilin. Einnig er verið að leggja drög að því að gefa gestum á tjaldstæðinu kost á að flokka sorp og hugmyndin er að þar verði með tíð og tíma stig- in fleiri skref í átt að svokallaðri grænni eða sjálfbærri ferða- mennsku. Ferðaþjónusta er mikil- væg atvinnugrein fyrir Egilsstaða- bæ, og það sem hér verður gert í umhverfismálum mun tvímælalaust geta eflt hana. Ferðamálafulltrúi hefur tekið virkan þátt í umhverfis- verkefninu, sem er mjög jákvætt og reyndar nauðsynlegt að skapa slíka tengingu við ferðaþjónustuna. Einnig hefur verið fundað með aðil- um sem lengjast skógrækt og land- búnaði á Héraði, því þó svo að verk- efnið sé afmarkað við Egilsstaðabæ, er margt að gerast á Héraði sem beinlínis styður verkefnið, og öfugt. I byrjun ágúst er ætlunin að efna til almenns fundar, þar sem allir sem áhuga hafa á málinu geta kom- ið. Hugmyndin er að þetta verði óformlegur fundur sem miði að því að virkja fólk sem hefur áhuga og hugmyndir. Þess er vænst að í fram- haldi af því myndist hópur sem get- ur orðið eins konar bakland fyrir verkefnið. Það þarf að leggja mikla áherslu á fræðslu og þar eru góð tengsl við fjölmiðla lykilatriði. Einn liður í því er að verkefnisstjóri sér um fastan greinaflokk um umhverfismál í vikublaðinu Austra, undir nafninu „Á grænni grein“. Bæjarfélag sem setur umhverfis- mál framarlega í forgangsröðina þarf að gæta þess að hafa unnið heimaverkefnin sín. Ef reynt er að hvetja fyrirtæki til að huga að um- hverfi og aðkomu þarf áhaldahús bæjarins helst að vera til fyrirmynd- ar. Ef bruðlað er með pappír á bæj- arskrifstofunni á sama tíma og við viljum berja okkur á brjóst fyrir að vera að vinna sérstaklega að um- hverfismálum er ímyndin ekki heil í gegn. Umhverfisverkefni Egilsstaða- bæjar lýkur um áramót 1996/97 með markmiðssetningu og fram- kvæmdaáætlun. Það bjargar auðvit- að enginn heiminum á svo skömm- um tíma og þetta eru vonandi aðeins fyrstu skrefin á lengri leið í átt að ennþá lífvænlegra umhverfi á Egils- stöðum. Það hefur frá upphafi verið haft að leiðarljósi í verkefninu að það megi síðan nýtast öðrum sveitarfé- lögum sem vilja vinna að fram- kvæmdaáætlun í umhverfismálum. Það verður að mestu leyti í höndum Sambands íslenskra sveitarfélaga og er hugsanlegt að forskrift norræna verkefnisins, sem hér er unnið eftir, verði þýdd á íslensku. Lokaorö Hér í upphafi var það nefnt hvort Egilsstaðir ættu að marka sér stefnu um að gerast „Grænn bær“. Það er með þetta eins og mörg önnur hug- tök á sviði umhverfismála að það er ekki endilega ljóst hvað í því felst. Með nokkurri einföldun má segja að það feli í sér að setja umhverfismál framarlega í forgangsröðina í allri ákvarðanatöku og stefnumótun bæj- arins. Um það hefur ekki verið tekin nein pólitísk ákvörðun, á þessu stigi. Umhverfismál eru í eðli sínu mjög pólitískur málaflokkur og krefjast oft meiri langtímasjónar- miða en ýmis önnur mál sem snúa að sveitarstjórnum. En það væri heldur mikil einföldun að láta eins og það sé létt verk að setja umhverf- ismál númer eitt í ákvarðanatöku sveitarfélaga. Á þessu sviði eins og öðrum þarf að forgangsraða og vega og meta kostnað og ávinning. Það sem hins vegar breytist er matið á því hvað telst ávinningur. Þar koma til þættir sem lengst af hafa ekki verið metnir til verðs í efnahagsleg- um skilningi, s.s. þau lífsgæði sem felast í því að búa í samfélagi þar sem það er viðurkennt að maðurinn þarf á nálægð við náttúruna að halda og þrífst verr innan um háhýsi og steinsteypu. I slíku samfélagi er einnig verið að huga að því hvað komandi kynslóð mun fá í hendurn- ar. Eða munu þeir sem landið erfa sitja uppi bæði með skuldir okkar og sorp? Með umhverfisverkefni Egils- staðabæjar er verið að taka fyrstu skrefin á leið sent öll sveitarfélög mega búast við að þurfa að fara fyrr eða síðar af frjálsum vilja eða nauð- ug. Það er trú okkar að þetta sé heillavænleg leið sem mun skila okkur og afkomendum okkar betra svæði til búsetu. 1 00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.