Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 47

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 47
HEILBRIGÐISMÁL ...Góö íþróttaaðstaða skiptir miklu máli til aö hvetja fólk til hollrar hreyfingar... Myndin er tekin á íþróttavellin- um á Dalvík í júlí 1992 er þar fór fram fyrsta unglingalandsmót Ungmennafélags íslands. Unnar Stefánsson tók myndina. Markmið heilsueflingar Hallur Magnússon, félagsmálastjóri Hornafjarðar Á árinu 1994 hófst samstaif niilli heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og fjögurra bœjarfélaga um verkefni sem nefnt var Heilsuefling hefst hjá þér. Bœirnir sem taka þátt í þessu samstarfi eru Hafnarfjarðarkaupstaður, Húsavíkurkaupstaður, Hornafjarðarbær og Hveragerðisbœr. Um verkefnið hafa áður verið skrifaðar t\>œr greinar í Sveitarstjórnarmál, á bls. 209 í 4. tbl. 1994 og á bls. 56 í 1. tbl. 1995. Báðar voru þœr greinar eftir Sigrúnu Gunn- arsdóttur, hjúkrunaifrœðing íráðuneytinu og framfo’œmdastjóra verkefnisins. í verkefnislýsingu sem verkefnis- stjórn heilsueflingar gaf út undir heitinu Samrœming forvarnarstaifs - heilsuefling í apríl 1994 er kafli sem fjallar um markmið verkefnis- ins. Þar segir m.a.: Samkvæmt skipunarbréfi verk- efnistjórnar um heilsueflingu eru markmið heilsueflingarverkefnisins að efla heilsu með því að styrkja einstaklinga, fjölskyldur og þjóðina alla til að greina, viðurkenna og standast alls kyns heilsuvá. Heilsuefling miðar þannig að því að gera fólki kleift að bæta eigin heilsu. Heilsueflingin er samtvinnuð heilsuvernd og beinist einkum að því að hafa áhrif á lífshætti einstakl- inga, hópa eða samfélaga. Grundvallaratriðið er að hvetja til aðgerða sem leiða til heilbrigðra lífshátta og vernda og efla heil- brigði. I verkefnislýsingunni er sérstak- lega tiltekið að markmið verkefnis- ins sé að: Vekja almenning til ábyrgðar og umhugsunar um heilbrigða lífshætti. Bæta þekkingu almennings á áhættuþáttum langvinnra sjúkdóma og slysa. 1 09

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.