Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 52

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 52
FORNLEIFAR 4. mynd. Gæsarétt á Sprengisandi. Náttúruöflin hylja hæglega fornleifar af þessu tagi. Ekki hafa minjar af þessari gerö veriö rannsakaðar, en þær eru órækur vitnisburöur um skipulagöar veiöar á villtum dýrum hér á landi áöur fyrr. Myndin er tekin áriö 1977. (Skyggnusafn Þjms. nr. 3673. Ljósmyndari Björn Jóns- son.) 6. mynd. Fjárborg hjá Fossi á Ftangárvöllum í Ftangárvallasýslu. Sagt hefur veriö aö húsagerö af þessu tagi kunni aö vera upp- runnin á Bretlandseyjum, helst hjá Irum. Ekki er þaö alveg víst og jafnvel ekki rétt, en tíminn leiöir þaö í Ijós þótt síöar veröi. Myndin er tekin um 1960. (Skyggnusafn Þjms. nr. 1031. Ljós- myndari ókunnur.) Eins er dreifing fornleifa í landslaginu ekki afleiðing tilviljana, heldur lágu þar að baki ákveðnar reglur og venjur samfélagsins. Því eru fomleifar einnig vitnisburð- ur um þessa hluti. Ef við tökum sem dæmi fomleifar eins og beitarhús, þar sem kindur voru hafðar yfir veturinn og þeirn beitt á landið (kjarrið eða sinuna), þá eru beitarhúsin leifar ákveðinna búskaparhátta sem eru löngu horfnir. Þessum húsum var gjaman komið fyrir nálægt landamerkjum á milli bæja svo að kindurnar gætu skroppið yfir til ná- grannans og náð þar í eina og aðra tuggu svona rétt til að létta bónda sínum byrðina. Því eru beitarhús jafnframt nokkurs konar vitnisburður um tilfinningu manna gagn- vart lögunum og kannski eilítið hvers gagnvart öðrum. Þegar skipuleggja á eitthvert svæði eða jarðrask er í vændum vegna húsbygginga, vegagerðar o.s.frv. er nauðsynlegt að viðkoniandi aðilar séu meðvitaðir um þær minjar sem kunna að vera á svæðinu. Til að svo megi vera þarf fornleifaskráning að hafa farið fram og niðurstaða þeirrar skráningar verður einnig að vera að- gengileg þeim sem hennar kunna að þurfa við. An þess- arar skráningar er minjavarslan einfaldlega máttlausari en ella í ráðgjöf sinni til einstakra aðila, svo sem skipu- lagsyfirvalda, framkvæmdaraðila ýmiss konar og jafnvel einkaaðila. Fyrsta vinnuregla niinjavörslunnar í þessum efnum er að allar fornleifar beri að varðveita, enda er það tekið fram í lögum. Þegar því verður hins vegar ekki við kom- ið er það minjavarslan ein sem ákvarðar hvað skuli gera, eða hversu ítarleg rannsókn þurft að vera eigi slík að fara fram að áliti minjavörslunnar. Þá þarf leyfi fornleifa- nefndar. í vissum tilfellum þarf ekki mikla rannsókn eða athugun til að komast að því að viðkomandi fornleifar fræði og segja má að oftast sé það hin ríkjandi hug- niyndafræði samfélagsins hverju sinni. Hús átti að byggja á ákveðinn hátt, úr ákveðnum efnum og á ákveðnum stöðum. Þessir þættir stýrðust af hugmynda- fræðinni og var ekki sjálfgeftð að ætíð hafi verið byggt á sem bestan máta, bestu efnin notuð eða besta staðsetn- ingin valin. Inn í myndina kom hefð og hugmyndir sem voru afrakstur aldalangrar aðlögunar og reynslu. Reynslan var sótt í umhverfið og hugarfylgsni mann- anna, svo sem trúarlegar hugmyndir og jafnvel hindur- vitni ýmiss konar. Allt þetta er falið í fomleifunum. 5. mynd. Höfuökúpur forfeöra okkar í röö og reglu í grasinu aö Laugalandi i Hörgárdal, Eyjafiröi. Beinin fundust er grafiö var fyrir húsi áriö 1978, en viö slíkar kringumstæöur finnast oft óvæntir hlutir. Þá ber aö hafa samband viö Þjóöminjasafn íslands, eöa aöila á vegum þess, og þeir vita hvaö gera skal. Mikiö liggur viö aö þessu atriöi sé fylgt. (Skyggnusafn Þjms. nr. 4055. Ljósmyndari Guömundur Ólafsson.) 1 1 4

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.