Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 59

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 59
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM eyri, Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtök- um Islands, og Sigríður Gróa Þórarinsdóttir, framkvæmda- stjóri Hagfélagsins hf. Þingið gerði svofellda álykt- un um atvinnumál: Þing SSNV beinir því til félagsmálaráðherra og ríkis- stjórnarinnar að mörkuð verði stefna um eflingu atvinnulífs- ins í landinu í samhengi við stefnumótun í menntamálum, heilbrigðismálum, samgöngu- málum og skattamálum. Þá skoraði ársþingið á stjóm Framleiðnisjóðs að endur- skoða fyrri samþykkt um styrk til markaðsátaks í útflutningi á lambakjöti í samstarfi við fisk- sölufyrirtæki. Aðrar ályktanir —y / T Isg !» ■fW mi A F m 1'——~ !i:: Bóknámshús Fjölbrautaskóla Noröurlands vestra á Sauöárkróki þar sem ársþingiö var haldiö. Ljósm.: Pedersen. Fráveitumál Þingið lýsti ánægju sinni með ný lög um stuðning við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum. Jafnframt var skorað á umhverfisráðherra að beita sér fyrir þeirri breytingu á lögunum að undirbúningsrannsóknir, hönn- un og gerð heildaráætlana um fráveituframkvæmdir í hverju sveitarfélagi geti notið fjárstuðnings samkvæmt lögunum. Virðisaukaskattur af meðhöndlun brotamálma afnuminn Þingið beindi því til fjármálaráðherra að breyta 1. tölulið 12. gr. reglugerðar nr. 248/1990 um virðisauka- skatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila og hann orðist svo: ,,1. Söfnun, meðhöndlun, flutningur og förg- un úrgangs, samkvæmt skilgreiningu í mengunarvamar- reglugerð nr. 48/1994. Hér undir fellur m.a. neyslu- og framleiðsluúrgangur og brotamálmar." Einnig að þær breytingar sem gerðar voru á reglugerðinni 28. febrúar sl. gildi frá 1. janúar 1990. Jarðhitaleit á köldum svœðum Þing SSNV skorar á Alþingi og ríkisstjórn að efla Orkusjóð og gera honum kleift að styrkja sveitarfélög á „köldum svæðum" til jarðhitaleitar. Jöfnun á orkuverði Þing SSNV skorar á Alþingi og ríkisstjórn að eyða þeim mismun sem er á orkuverði til húshitunar milli stórs hluta dreifbýlis og höfuðborgarsvæðisins. Sá hluti neytenda sem býr við hæst orkuverð er lítið brot af heildinni, sem ætti að gera það auðvelt að koma á fullri verðjöfnun. Félagslegar eignaríbúðir gerðar eftirsóknarverðari Þingið skoraði á félagsmálaráðherra að endurskoða lög og reglugerðir um Húsnæðisstofnun ríkisins með það að markmiði að lækka húsnæðiskostnað heimilanna, efla almenna íbúðamarkaðinn á landsbyggðinni og gera fé- lagslegar eignaríbúðir eftirsóknarverðari valkost en nú er. Aukið fé til safnvega Þingið benti á að viðhald á safn- og tengiveguin hefði verið vanrækt á undanförnum árum. Þingið beindi því til samgönguráðherra og samgöngu- og fjárlaganefndar Al- þingis að sjá til þess að ríkissjóður veitti það fé til safn- vega sem um var samið við setningu nýrra laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga er öðluðust gildi 1. janúar 1990. Framlög til vatnsveituframkvœmda Þingið beindi því til stjómar SSNV að gerð yrði úttekt á möguleikum fámennra sveitarfélaga og einstakra bú- jarða á framlögum úr opinberum sjóðum til vatnsveitu- framkvæmda. Auk menntamálaráðherra sátu þingið sem gestir Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Þórður Skúlason, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, fulltrúar landshlutasamtaka og þingmenn kjördæmisins. 1 2 1

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.