Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Qupperneq 60

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Qupperneq 60
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM Aðalfundur Sambands sveit- arfélaga á Suðurnesjum 1995 Guðjón Guðmundsson, jramkvœmdastjóri SSS Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) 1995 var haldinn í félagsheimilinu Festi í Grinda- vík dagana 13. og 14. októbcr 1995. Fundinn sóttu unt 40 fulltrúar og unt 20 aðrir gestir. Hallgrímur Bogason, fráfarandi formaður SSS, setti fund og fundarstjórar voru kosnar þær Margrét Gunn- arsdóttir og Valdís Kristinsdóttir, bæjarfulltrúar í Grindavík. Jón Hólmgeirsson, bæjarritari í Grindavík, ritaði fundargerð. Formaður flulti skýrslu stjómar og kom þar m.a. fram að haldnir hefðu verið 27 stjórnarfundir á starfsárinu. Fyrirferðarmestu málaflokkarnir voru llutningur grunn- skólans til sveitarfélaganna, atvinnumál, heilbrigðismál og samstarf sveitarfélaganna. Framkvæmdastjóri SSS, Guðjón Guðmundsson, skýrði reikninga sambandsins og var rekstur þess með hefðbundnum hætti. Skýrslur lagóar fram Lögð var fram skýrsla um öldrunannál á Suðurnesj- um. Jórunn Guðmundsdóttir, leikskólastjóri í Sandgerði, fylgdi skýrslunni úr hlaði en lokaorð átti Hrafn Pálsson. deildarstjóri ntálefna aldraðra í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu. Friðjón Einarsson, framkvæmdastjóri Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykjanesbæjar, flutti skýrslu um starfsemi hennar en hún var sett á laggirnar sl. vetur. Gerður var samningur við Reykjanesbæ um að hún þjónaði öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum. Skrif- stofan er til húsa í fyrrum bæjarskrifstofu Njarðvíkur og starfar í nánu samstarfi við SSS. Ávörp gesta Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, flutti kveðjur þingmanna kjördæmisins. Árni Hjörleifsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), flutti kveðjur þeirra. Einnig bárust fundinum kveðjur frá Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi og Fjórðungssam- bandi Vestfirðinga. Ávarp félagsmálaráöherra Páll Pétursson félagsmálaráðherra ræddi þau málefni sem hæst ber í ráðuneyti hans, svo sem úrbætur í hús- næðismálum, og urn greiðsluerfíðleika fólks. Ræddi hann um breytilegan lánstíma húsbréfa sent nú verður 15-25 og 40 ár. Félagslegar íbúðir eru orðnar of dýrar í mörgum tilfellum og erfið sveitarfélögum vegna innlausnarskyldu þeirra, sagði ráðherra. Húsaleigubætur verða áfram og taldi hann það verkefni betur komið hjá sveitarfélögunum. Ráðherra skýrði og frá leiðbeiningar- stöð handa fólki í greiðsluerfiðleikum sem hann kallaði skuldaaðlögunarleiðina. Einnig ræddi hann fjölskyldu- stefnu, jafnréttismál og atvinnumál sem unnið væri að í ráðuneyti hans. Þá svaraði félagsmálaráðherra fyrirspurnum fundar- manna. Heilbrigóismál - Hvaö er framundan? Heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, hóf mál sitt á þessa leið: Hér kem ég seki syndarinn af sálarþorsta neyddur. Ræddi hún síðan um málefni Sjúkrahúss Suðurnesja sem hún sagði að væri á eftir í tækjabúnaði og læknar væru þar færri miðað við íbúafjölda en annars staðar. Hún kvað þörf á að láta allar nýframkvæmdir bíða um sinn vegna fjárhagsörðugleika í heilbrigðisráðuneytinu en á það hefur sjúkrahússtjórnin ekki viljað fallast. Bygging D-álntu mun kosta um 400 millj. króna eins og hún er nú hugsuð og óskaði hún eftir samkomulagi um aðra og ódýrari lausn. Allmargir fundamianna tóku til máls undir þessunt lið og deildu á ráðherra og lýstu vonbrigðum með þann drátt sem orðið hefði á byggingarframkvæmdum við sjúkra- húsið sem samið hefði verið um. Var skorað á heilbrigð- isráðherra að standa við undirritað samkomulag þar um. Að lokum svaraði heilbrigðisráðherra því til að ekkert hefði komið sér á óvart og sagði: „Eg heyri hvað þið segið. Ég hef ekki rift neinum samningi, aðeins sett fram 1 22
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.