Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 63

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 63
FRÁ LAN DSHLUTASAMTOKUNUM Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands, fjallaði um breytingar á Atvinnuþró- unarfélagi Austurlands og tengsl við Atvinnuþróunarsjóð. Sex sveitarfé- lög á Austurlandi eiga ekki aðild að sjóðnum en Arngrímur taldi mikil- vægt að öll sveitarfélög ættu það. Sjóðurinn þyrfti að ráða við stærri verkefni, styrki og lán. Hann kynnti tillögu um þriggja ára verkefni sjóðsins sem háð yrði myndarlegu framlagi Byggðastofnunar. Snorri Styrkársson, formaður At- vinnuþróunarfélags Austurlands, kynnti starfsemi félagsins og skipt- ingu kostnaðar af henni. Hann kvað félagið hvorki hafa mannafla né fjármagn til að sinna stærri fyrir- tækjum og sveitarfélögum. Hann boðaði að starfsemi Ferðamálasam- taka Austurlands færist að hluta til Atvinnuþróunarfélagsins. Margir tóku til máls unt þetta efni eins og hin fyrri og ræddu m.a. at- vinnuþróun, aukið fjármagn og betri þjónustu og hugsanlegt hlutverk Lífeyrissjóðs Austurlands. Einar K. Guðfinnsson alþingis- maður, sem situr í stjórn Byggða- stofnunar, kvaddi sér hljóðs undir þessum lið og ræddi störf stofnunar- innar og atvinnuþróun. Ályktanir fundarins Aðalfundurinn gerði fjölmargar ályktanir. Málefni barna og ungmenna Minnt var á stöðu barna og ung- menna, að því er snertir félagslega aðstoð og fullnægjandi sérfræði- þjónustu og nauðsyn þess að hugað verði að fyrirbyggjandi úrræðum og ráðgjöf til foreldra. Fundurinn hvatti sveitarstjórnir til að taka höndum saman og stuðla að aukinni velferð bama og ungmenna og beindi því til stjómar SSA að móta sameiginlega stefnu í þessum málaflokki á starfs- svæði sínu til að íbúar í fjórðungn- um nytu sömu félags- og sérfræði- þjónustu og aðrir landsmenn. Stuðningur við áhugaleiklist Fundurinn lýsti sig fylgjandi því að leiklistarlög kveði á um sameig- inlegan stuðning ríkis og sveitarfé- laga við áhugaleiklist í landinu. Iðnsaga Austurlands Fundurinn lýsti yfir ánægju sinni með merkan áfanga í ritun atvinnu- og menningarsögu Austurlands. Fundurinn beindi því til sveitarfé- laga, fyrirtækja og einstaklinga að taka verkinu með velvild og styrkja Broddi B. Bjarnason, formaöur SSA. útgáfuna með bókakaupum eða með því að greiða fyrir sölu ritsins eftir því sem kostur væri. Samskipti við héraðssambönd Stjórn SSA var falið að eiga við- ræður við stjórn Ungmenna- og í- þróttasambands Austurlands og Ungmennasambandsins Ulfljóts um fjárhagsleg samskipti héraðssam- bandanna og sveitarfélaga á svæð- inu. Kennsla í tónmennt fœrð ígrunn- skólana Fundurinn fól stjórn SSA að beina því til stjórnar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga að kannaðir yrðu kostir þess að kennsla í tón- mennt yrði að fullu færð inn í námskrá grunnskólanna og málið síðan flutt fyrir yfirvöldum mennta- mála ef hagkvæmt telst. Sorpmálum komið í viðunandi horf Fundurinn hvatti sveitarstjórnir til að koma hirðu og förgun sorps í viðunandi horf. Aukin framlög úr Húsfriðunar- sjóði Safnastofnun Austurlands var hvött til að beita sér fyrir auknum framlögum úr Húsfriðunarsjóði til endurbyggingar gamalla húsa. Ein skólaskrifstofa Samþykkt var að mæla með því við sveitarstjórnir að kannaður yrði frekar sá kostur sem kynntur hafði verið í tillögum stjórnar SSA um starfsemi fræðsluskrifstofu eftir flutning á grunnskólanum til sveit- arfélaganna, að ein skólaskrifstofa yrði fyrir allan fjórðunginn, þó þannig að framlengd yrði starfsemi Fræðsluskrifstofu Austurlands lítið breytt um eitt ár. Fundurinn fól stjórn SSA að skipa þá þegar nefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan skólaskrifstofu á Austurlandi sem og tillögur um nánari útfærslu á sérfræðiþjónustu. Nefndinni yrðu sett tímamörk og álit hennar kynnt ítarlega í öllum sveitarstjómum á svæðinu. Atvinnumál Samþykkt var að fela stjóm SSA í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Austurlands að leita allra leiða til eflingar og nýsköpunar í austfirsku atvinnulífi. Öðru fremur yrði hugað að sjávarútvegi, landbúnaði og full- vinnslu afurða þannig að spornað yrði gegn vaxandi atvinnuleysi. Aukin fullvinnsla mundi stuðla að því að verja lífskjör og búsetu á landsbyggðinni. Lýst var yfir stuðningi við fram- komnar hugmyndir um eflingu á starfsemi Atvinnuþróunarfélags Austurlands, m.a. vegna ferðaþjón- ustu. Jafnframt samþykkti fundur- inn að leggja til við aðildarsveitarfé- lög Atvinnuþróunarsjóðs Austur- lands að þau heimiluðu stjórn sjóðs- ins að útfæra aðild hans að fjárhags- I 25

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.