Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Page 18
SKIPULAGSMÁL
verndarbeltanna eru stærstu
ósnortnu víðerni Islands.
Almennt séð er stefnt að því að
halda hvers konar mannvirkjagerð í
lágmarki á ntiðhálendinu en þess í
stað beina henni á jaðarsvæði há-
lendisins. Verndarbeltin og mann-
virkjabeltin koma ekki fram sem
sérstakir landnotkunarþættir á
skipulagsuppdrætti, en eru engu að
síður leiðbeinandi og stefnumark-
andi varðandi alla ntannvirkjagerð
og afmörkun hvers konar vemdar-
svæða á hálendinu.
A náttúruverndarsvæðum er
stefnt að því að settar verði ákveðn-
ar reglur sem takmarka hvers konar
mannvirkjagerð, umferð og um-
gengni, jafn sumar sem vetur.
Helstu mannvirkjabelti miðhá-
lendisins eru tvö og liggja þvert yfir
hálendið um Sprengisand og Kjöl,
þar sem eru flutningsæðar raforku
og umferðar auk uppistöðulóna. A
Suðurlandi em einnig þvertengingar
meðfram Byggðalínu um Fjalla-
bakssvæði að virkjunum á Tungnár-
svæðinu og þaðan til vesturs með
Hvalfjarðarlínu sunnan Langjökuls.
Á mannvirkjabeltunum eru einnig
helstu þjónustusvæði ferðamanna.
Vegslóöi á hálendinu.
Friösæld á fjöllum, Landmannalaugar. Ljósmyndirnar meö greininni tók ímynd. Guö-
mundur Ingólfsson.
aða eða fjallabaksleiðir.
Þjónustustaðir fyrir ferðamenn
eru flokkaðir í fjóra flokka: jaðar-
miðstöðvar, hálendismiðstöðvar,
skálasvæði og fjallasel.
Jaðarmiðstöðvar em eins og orðið
gefur í skyn í jaðri hálendisins í
góðu vegasambandi og að jafnaði í
rekstri allt árið. Sem dæmi um jað-
armiðstöð má nefna Húsafell,
Áfangafell, Möðrudal og Hólaskjól
við Lambaskarðshóla.
Hálendismiðstöðvar em við aðal-
fjallvegi og þar er reiknað með al-
hliða þjónustu við ferðamenn, m.a.
vetrarumferð, veiðimenn, hesta-
menn og skíðafólk. Sem dæmi um
hálendismiðstöðvar má nefna
Hveravelli, Laugarfell á Fljótsdals-
afrétti og Versali.
Skálasvæði eru einnig í góðu
vegasambandi en þjónusta minni.
Fjallaselin eru hins vegar í tak-
mörkuðu eða engu vegasambandi.
Fjallaselin eins og miðstöðvar og
skálar eiga, a.m.k. að hluta til, að
vera opin fyrir almenning í öryggis-
skyni.
Megináhersla er lögð á gistingu í
Aðalfjallvegirnir eru stofnvegir
hálendisins sem verða byggðir sem
góðir sumarvegir og ár brúaðar.
Fjallvegir eru tengivegir og eru
einkurn ferðamannaleiðir innan hér-
208