Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Blaðsíða 19
SKIPULAGSMAL
skálum frekar en í tjöldum.
Kynning
Ráðgjafar hafa haldið fjölmarga
samráðsfundi með hagsmunaaðilum
sem tengjast skipulagsvinnunni á
einn eða annan hátt. Auk funda með
fulltrúum í héraði hefur verið hald-
inn fjöldi funda með stofnunum og
félagasamtökum. Þessir aðilar hafa í
mörgum tilvikum tekið saman álits-
gerðir sem mið er tekið af í tillögu-
gerðinni.
Nú hefur tillagan verið auglýst og
þá er von okkar að umræðan fari að
snúast um þá stefnumörkun sem í
henni felst en ekki hverjir hafa verið
að vinna að henni.
Samkvæmt skipulagslögum eiga
skipulagstillögur að hanga uppi til
sýnis í sex vikur þar sem almenn-
ingi er gefinn kostur á því að kynna
sér tillögur og gera athugasemdir
innan átta vikna frá því auglýsing
birtist. I þessu tilviki kemur tillagan
til með að hanga uppi í fjóra mánuði
og frestur til að skila athugasemdum
er til 10. október 1997. Þannig ætti
öllum sem þess óska að gefast kost- j
ur á því að kynna sér hana og gera
athugasemdir við hana.
Að auglýsingatíma loknum mun
samvinnunefndin fjalla um athuga-
semdir, taka afstöðu til þeirra og
gera tillögu til skipulagsstjómar rík- !
isins um endanlega afgreiðslu svæð-
isskipulagsins.
Þegar mörkuð hefur verið stefna í
landnotkun fyrir allt svæðið er
stefnt að því að einstök sveitarfélög
taki við framkvæmd skipulagsmála
og láti vinna nánari útfærslu af-
markaðra svæða að því gefnu að
landinu hafi öllu verið skipt milli
sveitarfélaga. Slíkar nánari útfærslur
þarf að sjálfsögðu að auglýsa og
kynna samkvæmt skipulagslögum.
Gangi þetta allt eftir verður ekki
lengur hægt að gera greinarmun á
mannvirkjagerð í byggðum og
óbyggðum eins og verið hefur.
Gerðar verða sömu kröfur til allra
hönnunargagna vegna byggingar-
framkvæmda á hálendinu og gerðar
eru í byggð. Þá verður einnig stór-
aukið eftirlit með þessum fram-
kvæmdum.
Þótt hér verði um að ræða mjög
grófa stefnumörkun og áætlun sem
eftir er að útfæra nánar má búast við
því að ekki verði allir sáttir við nið-
urstöðuna. Það er von þeirra sem að
svæðisskipulagi miðhálendisins
hafa staðið að umræðan sem
framundan er verði markviss, stefn-
an verði skýr og færi okkur nær því
að taka á málum eins og menningar-
þjóðum sæmir.
Ný skipulags- og byggingarlög frá 1. janúar 1998
Ný skipulags- og byggingarlög
sem samþykkt voru á Alþingi hinn
15. maí sl. öðlast gildi frá 1. janúar
1998. Að því er stefnt að samtímis
öðlist gildi ný skipulagsreglugerð
og ný byggingarreglugerð.
Undirbúningur að gildistöku lag-
anna er hafinn í samstarfi umhverf-
isráðuneytisins, Skipulags ríkisins
og sambandsins.
Tekið hefur til starfa sérstakur
starfshópur sem á að stjóma undir-
búningi að gildistöku laganna og
eru í honum þeir Stefán Thors,
skipulagsstjóri ríkisins, Ingimar Sig-
urðsson, skrifstofustjóri í umhverf-
isráðuneytinu, og Þórður Skúlason,
framkvæmdastjóri sambandsins.
I vinnuhóp sem á að semja drög
að nýtri skipulagsreglugerð skv. 10.
gr. hinna nýju laga hefur stjóm sam-
bandsins tilnefnt Hjörleif B. Kvaran
borgarlögmann og Ottar Guð-
mundsson, arkitekt og hreppsnefnd-
armann í Reyðarfjarðarhreppi, sem
varafulltrúa hans og í vinnuhóp til
þess að semja drög að nýrri bygg-
ingarreglugerð skv. 37. gr. laganna
hefur stjórnin tilnefnt Agúst Jóns-
son, skrifstofustjóra borgarverk-
fræðings, og sem varamann hans
Jón Geir Ágústsson, byggingarfull-
trúa Akureyrarkaupstaðar. Einnig
eru í þeim vinnuhópi fulltrúi frá
Skipulagi ríkisins, umhverfisráðu-
neytinu, Félagi byggingarfulltrúa,
Brunamálastofnun og Rannsóknar-
stofnun byggingariðnðarins.
1 erindi Skipulags ríkisins til sam-
bandsins frá 9. júní, þar sem óskað
var tilnefningar fulltrúa sambands-
ins í vinnuhópa þessa, var gert ráð
fyrir því að drög að skipulagsreglu-
gerðinni yrðu send til umsagnar í
byrjun október og drög að bygging-
arreglugerðinni um miðjan október.
Þá þarf að setja reglugerð um
framkvæmd námskeiðahalds og
prófs vegna löggildingar hönnuða
skv. 48. gr. laganna. Fulltrúi frá
ráðuneytinu og annar frá Skipulagi
ríkisins semja drög að þeirri reglu-
gerð.
Loks er gert ráð fyrir að nýju lög-
in og reglugerðimar verði kynntar á
komandi haustmánuðum. Vinnuhóp
til þess að útbúa efni og gera áætlun
um slíka kynningu skipa fulltrúar
frá umhverfisráðuneytinu, Skipulagi
ríkisins og sambandinu. Til þess
verkefnis hefur stjórnin tilnefnt
Guðrúnu S. Hilmisdóttur, verkfræð-
ing á skrifstofu sambandsins.
Snemma á næsta ári verða svo
geftn út endurskoðuð leiðbeiningar-
rit um gerð svæðisskipulags, aðal-
skipulags og deiliskipulags.
209