Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Blaðsíða 55
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
ingum því Leikfélag Dalvíkur flutti
mörg afar skemmtileg söng- og
leikatriði og ljóst er að á Dalvík og í
nágrannasveitum búa margir frá-
bærir listamenn.
Stjórn Eyþings
Sigfríður Þorsteinsdóttir, bæjar-
fulltrúi á Akureyri, var kosin nýr
formaður stjómar Eyþings til eins
árs. Þá var Skarphéðinn Sigurðsson,
oddviti Bárðdælahrepps, kjörinn nýr
aðalmaður í stjórn í stað Einars
Njálssonar.
Stjórn Eyþings starfsárið
1997-1998 er samkvæmt því
þannig skipuð að Sigfríður Þor-
steinsdóttir, bæjarfulltrúi á Akur-
eyri, er formaður og aðrir í stjórn
Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveitar, Jóhannes Sigfús-
son, oddviti Svalbarðshrepps, Krist-
ján Olafsson, forseti bæjarstjórnar
Dalvíkur, og Skarphéðinn Sigurðs-
son, oddviti Bárðdælahrepps.
Kosnir voru á samráðsfund
Landsvirkjunar fjórir fulltrúar og
jafnmargir til vara og valinn var
löggiltur endurskoðandi til eins árs.
Næsti aöalfundur á
Húsavík
I lok fundar bauð Sigurjón Bene-
diktsson, forseti bæjarstjómar Húsa-
víkur, að næsti aðalfundur Eyþings
skyldi haldinn á Húsavík.
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉ LAGA
Undirbúningur hafinn að yfirfærslu málefna
fatlaðra til sveitarfélaga
Eins og frá var skýrt í forustugrein
í 1. tbl. þessa árs vom í lok síðasta
árs samþykkt á Alþingi lög nr.
161/1996 þess efnis að stefnt skuli
að yfirtöku sveitarfélaga á málefnum
fatlaðrahinn l.janúar 1999.
I framhaldi af því hefur félags-
málaráðuneytið í bréfi frá 18. júní sl.
beðið sambandið að tilnefna fulltrúa
í nefndir sem starfa eiga að undir-
búningi yfirfærslunnar. Komið er á
fót sérstakri verkefnisstjóm til þess
að hafa yfirumsjón með verkefninu
og síðan þremur undimefndum til að
fjalla um tiltekna þætti, laganefnd,
kostnaðamefnd og sérstökum úttekt-
arhópi.
Er hér gert ráð fyrir svipuðu verk-
lagi og við flutning gmnnskólans til
sveitarfélaganna.
í verkefnisstjómina, sem m.a. á að
leysa úr ágreiningsefnum og hafa
með höndum lokagerð samninga
milli ríkis og sveitarfélaga, hefur
stjórnin tilnefnt Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson, forntann sambandsins,
og sem varafulltrúa hans Sigríði
Stefánsdóttur, varaformann sam-
bandsins.
I verkefnisstjórninni eiga einnig
sæti Halldór Arnason, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, skipað-
ur af fjármálaráðherra, og Húnbogi
Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu, og er hann
formaður nefndarinnar.
Sérstök laganefnd á að semja ný
lög um félagsþjónustu sveitarfélaga,
ný lög um Greiningar- og ráðgjafar-
stöð ríkisins og huga að réttinda-
gæslu fatlaðra. 1 hana hefur stjómin
skipað Jón Bjömsson, framkvæmda-
stjóra menningar-, uppeldis- og fé-
lagsmála hjá Reykjavíkurborg, og
sem varafulltrúa hans Hjörleif B.
Kvaran borgarlögmann.
Laganefndin er skipuð átta fulltrú-
um. I henni eiga einnig sæti fulltrúar
stjómmálaflokkanna, hagsmunasam-
taka fatlaðra, samtaka félagsmála-
stjóra og samtaka framkvæmdastjóra
svæðisskrifstofa fatlaðra auk for-
manns sem skipaður er af ráðherra.
Kostnaðamefnd er ætlað að meta
fjárhagsleg áhrif yfirtöku sveitarfé-
laga á þjónustu við fatlaða og gera
tillögu um hvernig sveitarfélögum
verði bætt þau útgjöld. í hana var til-
nefndur Karl Bjömsson, bæjarstjóri
Selfosskaupstaðar, og sem varamað-
ur hans Garðar Jónsson, deildarstjóri
hagdeildar sambandsins.
Nefndin er skipuð þremur fulltrú-
um. Auk fulltrúa sambandsins skipa
hana fulltrúi fjármálaráðuneytisins
og fulltrúi félagsmálaráðuneytisins
sem er formaður.
I undirnefnd kostnaðarnefndar,
nefndar um starfsmannamál, sem
fjalla á um réttindi starfsmanna sem
vinna að málefnum fatlaðra, hefur
stjómin tilnefnt Gunnar Rafn Sigur-
bjömsson, starfsmannastjóra Hafn-
arfjarðarkaupstaðar, sem aðalmann
og Lúðvík Hjalta Jónsson, viðskipta-
fræðing og starfsmann Launanefnd-
ar sveitarfélaga, sem varafulltrúa. I
nefndinni á einnig sæti fulltrúi
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja.
Uttektarhópnum er ætlað að safna
upplýsingum um fjölda fatlaðra í
landinu sem skráðir eru hjá svæðis-
skrifstofum fatlaðra, um þjónustu
þeirra og þarfir fyrir þjónustu. í þann
hóp hefur verið skipuð Lára Bjöms-
dóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkur-
borgar, sem aðalmaður og Ólöf
Thorarensen, félagsmálastjóri Sel-
fosskaupstaðar, sem varafulltrúi.
Einnig eiga sæti í hópnum fulltrú-
ar hagsmunasamtaka fatlaðra, fram-
kvæmdastjóra svæðisskrifstofa fatl-
aðra og frá Greiningar- og ráðgjafar-
stöð ríkisins auk formanns sem skip-
aður er af ráðherra.
245