Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Side 59
BÆKUR OG RIT
17. fræðsluritið:
Skjalavarsla
sveitarfélaga
Starfshópur, sem settur var á
stofn árið 1995 og skipaður fulltrú-
um Þjóðskjalasafns Islands, héraðs-
skjalasafna og sambandsins, hefur
skilað áliti í greinargerð sem nefnist
Skjalavarsla sveitarfélaga. Þjóð-
skjalasafn íslands og sambandið
hafa sameiginlega gefið það út sem
17. fræðslurit sambandsins. I því
eru birtar niðurstöður hópsins en í
þeim eru jafnframt leiðbeiningar til
þess ætlaðar að efla og bæta skjala-
vörslu sveitarfélaga, eins og segir í
inngangi með ritinu. Það er 44 bls.
að stærð og kostar 1200 krónur.
18. fræðsluritið:
Félagslega íbúðakerfið
Eins og fram kemur í frásögninni
af fjármálaráðstefnunni 1996 í
2. tbl. í ár hefur sambandð gefið út
lokaskýrslu vinnuhóps sem fjallaði
um félagslega íbúðakerfið. Ritið
nefnist Félagslega íbúðakerfið - út-
tekt og tillögur til úrlausnar. Það er
númer 18 í röð fræðslurita sam-
bandsins, 72 bls. að stærð og kostar
1200 krónur.
Upplýsingalögin
í 1. tbl. í ár var frá því skýrt að
forsætisráðuneytið hefði gefið út
upplýsingalögin ásamt greinargerð.
í ritinu eru einnig fjögur fylgiskjöl. I
því fyrsta eru sýnd dæmi um
ákvæði laga um aðgang að upplýs-
ingum hjá stjómvöldum, í öðru eru
dæmi unt almenn ákvæði laga um
þagnarskyldu, í því þriðja dænti um
sérákvæði laga um þagnarskyldu og
í því fjórða eru birt lög nr. 21/1993
um upplýsingamiðlun og aðgang að
upplýsingum um umhverfismál.
Ritið er 96 bls. að stærð. Það fæst
afhent án endurgjalds í forsætis-
ráðuneytinu sem nú er að Sölvhóls-
götu 4 í Reykjavík.
Lögbók sveitarstjórna
Á árinu 1988 hóf sambandið að
gefa út lausblaðarit, Lögbók sveitar-
stjóma, þar sem safnað var saman
þeim lögum sem ætla mátti að sveit-
arstjómarmenn þyrftu að kunna skil
á í störfum sínum.
Á ámnum 1992 og 1994 var lög-
bókin endumýjuð og bætt með því
að fella úr henni þau lög sem þá
vom ekki lengur í gildi. Jafnframt
voru breytingar sem gerðar höfðu
verið á eldri lögum færðar inn í
stofnlög. Eftir það hafa lagabreyt-
ingar verið sendar áskrifendum bók-
arinnar.
1 þriðja sinn hefur lögbókin nú
verið tekin til heildarendurskoðunar,
felld úr henni þau lög sem ekki em
lengur í gildi og breytingar sem
gerðar hafa verið á eldri lögum
færðar inn í hlutaðeigandi lög.
I bókinni er lögunum raðað í ald-
ursröð stofnlaganna og er fremst í
henni birt skrá yfir þau samtals 102
að tölu. Vatnalögin em elstu lögin
sem birt em en þau eru nr. 15/1923.
Nýjustu lögin em lög um umboðs-
mann AÍþingis nr. 85/1997.
Næstaftast eru á hinn bóginn birt
skipulags- og byggingarlög sem
öðlast gildi 1. janúar 1998. Þá er
einnig birt atriðisorðaskrá að því er
varðar sveitarstjórnarmál og gerir
það bókina handhæga til uppflett-
ingar. Lögbókin er samtals 504 bls.
að stærð í A4 broti með hörðum
spjöldum.
Hin nýja útgáfa lögbókarinnar
hefur verið send áskrifendum. Á
skrifstofu sambandsins er tekið við
nýjum áskrifendum að lögbókinni.
Hún kostar 3.500 krónur.
EGLA
- röð ogregla
Margir litir niargar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
1/5i
1líl
j0 ÍSL
£AlSKr
249