Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Qupperneq 64
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA
Annars staðar í þessu tölublaði
segir frá breytingum á stjórnsýslu
Homafjarðarbæjar, sem bæjarstjóm-
in samþykkti hinn 19. desember
1996. Bæjarskrifstofum var skipt
upp í stjórnsýslusvið og fjármála-
svið. Fræðslu- og menningarmálin
eru á fræðslu- og menningarsviði,
heilbrigðis-, öldmnar- og félagsmál-
um var slegið saman í heilbrigðis-
og félagsmálasvið og skipulags-,
byggingar- og umhverfismál eru á
tækni- og umhverfissviði.
Anna Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri
stjórnsýslusviðs Horna-
fjarðarbæjar
Anna Sigurð-
ardóttir við-
skiptafræðingur
er framkvæmda-
stjóri stjórn-
sýslusviðs
Hornafjarðar-
bæjar.
Anna er fædd 30. ágúst 1961 og
eru foreldrar hennar Aðalheiður
Geirsdóttir vefnaðarkennari og Sig-
urður Hjaltason, fyrrum sveitarstjóri
á Homafirði og framkvæmdastjóri
Sambands sveitarfélaga í Austur-
landskjördæmi.
Anna lauk viðskiptafræðiprófi frá
Háskóla íslands árið 1987 og
mastersprófi í opinberri stjómsýslu
(MPA) frá Maxwell School of Cit-
izenship and Public Affairs við
Syracuse University í Bandaríkjun-
um árið 1990.
Hún starfaði, aðallega í sumar-
afleysingum, á bæjarskrifstofum
Hornafjarðar frá 1976-1989. Frá
1991-1995 starfaði hún sem spari-
sjóðsstjóri við Sparisjóð Horna-
fjarðar og nágrennis. Vegna yfir-
töku sveitarfélagsins á allri heil-
brigðis- og öldrunarþjónustu af rík-
inu réðst hún til Homafjarðarbæjar
sem framkvæmdastjóri Skjólgarðs
og hefur starfað þar frá árinu 1995.
Sem aðstoðarmaður bæjarstjóra
gegndi Anna starfi bæjarstjóra frá 7.
apríl til 25. júní í ár meðan bæjar-
stjóri var í námsleyfi frá störfum.
Ásta Halldóra Guð-
mundsdóttir fram-
kvæmdastjóri fjármála-
sviðs Hornafjarðarbæjar
Ásta Halldóra
Guðmundsdóttir,
framkvæmda-
stjóri fjármála-
sviðs, er fædd
27. febrúar 1955
og eru foreldrar
hennar Sigrún
Eiríksdóttir húsfreyja og Guðmund-
ur Jónsson byggingameistari.
Ásta lauk samvinnuskólaprófi frá
Samvinnuskólanum á Bifröst árið
1976. Hún starfaði á skrifstofu
Kaupfélags Austur-Skaftfellinga
1976-1978. Hún hefur síðan starfað
hjá Homafjarðarbæ og þar af sem
bæjarritari frá árinu 1986.
Eiginmaður Ástu er Guðjón Pétur
Jónsson loðdýrabóndi og eiga þau
tvær dætur.
Stefán Ólafsson fram-
kvæmdastjóri fræðslu-
og menningarsviðs
Hornafjarðarbæjar
Stefán Ólafs-
son er fram-
kvæmdastjóri
fræðslu- og
menningarsviðs
Hornafjarðar-
bæjar.
Stefán er
fæddur 15. ágúst 1947 og eru for-
eldrar hans Guðný Pétursdóttir
verkakona og Ólafur Guðmundsson,
fyrrv. útibússtjóri kaupfélagsins
Fram. Hann lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla íslands 1970 og BA-
prófi í félagsvísindum frá Háskóla
Islands 1975 og 1. stigi skipstjómar-
náms frá Heppuskóla í Homafirði
1979.
Stefán hefur stundað sjómennsku
í tuttugu sumur ýmist sem háseti,
matsveinn, stýrimaður eða skip-
stjóri. Frá 1975 hefur hann kennt
við Heppuskóla, aðallega íslensku.
Frá byrjun þessa skólaárs hefur
hann gegnt stöðu aðstoðarskóla-
stjóra.
Eiginkona Stefáns er Ástríður
Sveinbjömsdóttir bankastarfsmaður
og eiga þau þrjú böm.
Helgi Már Pálsson fram-
kvæmdastjóri tækni- og
umhverfissviðs Horna-
fjarðarbæjar
Helgi Már
Pálsson er fram-
kvæmdastjóri
tækni- og um-
hverfissviðs
Hornafjarðar-
bæjar. Hann er
fæddur 3. apríl
1958 og eru foreldrar hans Sigur-
laug Jónsdóttir húsfreyja og Páll
Indriðason, fyrrv. vélstjóri.
Helgi lauk námi í húsasmíði frá
Iðnskólanum á Akranesi 1977 og
sveinsprófi í sömu grein 1979.
Hann hóf nám í byggingatæknifræði
í Danmörku 1983 og lauk BS-prófi í
þeirri grein 1987 frá Tækniskóla Is-
lands.
Helgi vann hjá Verkfræðistofu
Stanleys Pálssonar 1987-1992 og
rak síðan sjálfstæða tækniþjónustu
til ársins 1994. Hann var byggingar-
fulltrúi og bæjartæknifræðingur hjá
Eskifjarðarkaupstað þar til hann hóf
störf hjá Homafjarðarbæ sem bæjar-
verkfræðingur haustið 1996.
254