Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Side 11
KYNNING SVEITARFÉLAGA
hreppi og Hvítársíðuhreppi
um rekstur tveggja skóla,
Kleppjárnsreykjaskóla og
Andakílsskóla. I skólunum
eru 140 nemendur skólaárið
1999-2000. Þá rekur sveitar-
félagið tvo leikskóla, Andabæ
á Hvanneyri op Hnoðraból í
Reykholtsdal. A yfirstandandi
ári hefjast framkvæmdir
vegna stækkunar leikskólans á
Hvanneyri.
BorgarQarðarsveit er aðili
að Tónlistarskóla Borgarfjarð-
ar, Safnastofnun Borgarfjarð-
ar, Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi, Fjölbrautaskóla
Vesturlands, Heilbrigðiseftir-
liti Vesturlands, Skólaskrif-
stofu Vesturlands, Eignar-
haldsfélagi fyrir Vesturland,
Slökkviliði Borgaríjarðardala,
Simenntunarmiðstöð í Borgar-
nesi, Upplýsinga- og kynning-
armiðstöð Vesturlands, Sorp-
urðun Vesturlands og Grund-
artangahöfh.
Félagsþjónustusamningur
var fljótlega gerður við Borg-
arbyggð en í tillögum samein-
ingarnefndar var lagt til að
íbúum sveitarfélagsins yrði
tryggt aðgengi að félagsmála-
fúlltrúa sem skapast með við-
komandi samningi.
Félags- Og menningarstarf- Húsafell og umhverfi séð til norðausturs. I fjarska fjallið Strútur og Eiríksjökull. Ljósm. Mats
semi er í miklum blóma og Wlbe Lund'
leggja ungmennafélögin þar
mörg lóð á vogarskálar með æskulýðs-, íþrótta- og
menningarstarfi, s.s. leiksýningum.
Uppbygging
Miklar vegaframkvæmdir standa yfir í Borgarfjarðar-
sveit við Borgarfjarðarbrautina. í bókun í einni fundar-
gerð hreppsnefndar kemur fram að þær framkvæmdir
megi telja eitt allra brýnasta hagsmunamál Borgfírðinga.
Þar segir m.a.:
„Nýsköpun í atvinnulífi, öryggi vegfarenda, mögu-
leikar á aukinni þjónustu og myndun samfélagsheildar í
nýsameinuðu sveitarfélagi eru allt þættir sem grundvall-
ast á úrbótum í vegamálum."
Mörk sveitarfélagsins eru Borgarfjöröur og Hvítá i
vestri og norðri, jöklar til austurs en Skorradalsháls,
Skeljabrekkufjall og Hafharfjall í suðri/suðaustri.
Mikilvægasta atvinnugreinin er landbúnaður en tæp-
lega 42% íbúanna starfa innan þeirrar greinar og er
byggðin að mestu dreifð. Fjölþættur búskapur er stund-
aður hér, s.s. nautgripa-, sauðfjár-, svína-, kjúklinga- og
hrossarækt, skógrækt og jarðyrkja. Ylrækt er talsverð
enda er jarðhiti mjög víða á svæðinu. A Hvanneyri er
einangrunarstöð fyrir alifúgla og á vegum Landbúnaðar-
háskólans er stunduð loðdýrarækt. Á Hvanneyri var
stofnaður búnaðarskóli árið 1889 og búvísindadeild á há-
skólastigi árið 1947 og hinn 1. júlí 1999 var Landbúnað-
arháskólinn stofnaður.
Fjórir byggðarkjamar eru í sveitarfélaginu, á Hvann-
eyri, í Bæjarsveit, á Kleppjámsreykjum og í Reykholti.
Á Húsafelli er stærsti byggðarkjami sumarhúsa á svæð-
inu; þar hefur verið unnið mikið brautryðjendastarf í
uppbyggingu ferðaþjónustu.
Þar er kjörland fýrir ferðalanga og göngufólk; sund-
laug, golfvöllur og flugvöllur eru meðal afþreyingar-
5