Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Blaðsíða 64
TÆKNIMAL
Könnun fornleifa, jarðkönnun vegna
mannvirkja og jarðsjármælingar
Friðrika Marteinsdóttir og Þorgeir Helgason, jarðfi-œðingar
á verkfiraðistofiunni Línuhönnun hfi
Greinilegt er að verkkaupar og
hönnuðir hérlendis jafht sem erlend-
is eru að gera sér grein íyrir því að
vönduð jarðkönnun við mannvirkja-
gerð borgar sig. Á liðnum árum hef-
ur verkfræðistofan Línuhönnun hf.
unnið að ýmsum jarðkönnunarverk-
efnum. Sem dæmi um stór verkefni
má nefna fyrirhugaða breikkun
Reykjanesbrautar um Hafnaríjörð
og verslunarmiðstöð Smáralindar í
Kópavogi, en dæmi um lítið verk-
efni er lóð leikfimihúss Menntaskól-
ans við Hamrahlíð. í vaxandi mæli
hefur jarðsjá Línuhönnunar verið
notuð við kannanimar auk annarra
mælitækja.
Fomleifarannsóknir em sjálfsagð-
ur þáttur í menningarstarfsemi. Til
þeirra hefur undanfarið verið veitt
aukið fé og koma þar m.a. til kvaðir
sem nú hafa verið settar um forn-
leifaskráningu vegna skipulags
byggðar og fomleifakönnun vegna
mats á umhverfisáhrifum fram-
kvæmda. Umtalsverðar framfarir í
mælitækni hafa jafnframt gert rann-
sóknir um margt auðveldari. Jarðsjá
Línuhönnunar hefur þegar verið
notuð við margar fomleifaathuganir
og má þar nefna Nes á Seltjamar-
nesi, Viðey og Kirkjubæjarklaustur.
Almennt séð er ekki margt sem
tengir saman jarðkönnun vegna
mannvirkjagerðar og könnun vegna
fornleifarannsókna. í þessari grein
verður þó sýnt hvemig hægt er að
nota sömu mælitæknina, úr ranni
jarðeðlisfræðinnar á þessum annars
fjarskyldu sviðum. Tilgangurinn er
að vekja athygli sveitarstjórnar-
manna á gildi jarðkönnunar við
mannvirkjagerð og möguleikum
jarðsjártækninnar við jarðkönnun og
fomleifarannsóknir.
Jarösjá
Jarðsjármæling er jarðeðlisfræði-
leg aðferð til samfelldrar kortlagn-
ingar á jarðlögum o.fl. og byggir á
ratsjártækni. Issjá Háskóla Islands,
sem afhjúpað hefur landslag undir
íslenskum jöklum ffá 1977, byggirá
sömu tækni. Útvarpsbylgjur eru
sendar ofan í jörðina frá einu loft-
neti og tekið á móti endurvarps-
bylgjum með öðru loftneti, en
breytileg rafsvömn og rafleiðni efh-
is framkallar endurvarpið. Má
þannig greina jarðlög, mannvistar-
lög og hleðslur í þeim, lagnir
o.s.frv.
Línuhönnun á og starfrækir tvær
jarðsjár, pulseEKKO 100 og
NOGGIN 250. Á EKKO-jarðsjána
em hægt að festa loftnet með þeirri
senditíðni sem hentar best aðstæð-
um hveiju sinni. Hægt er að ganga
með hana en einnig má festa hana á
sleða og draga yfir tiltölulega slétt
land. Er veghjól þá tengt við sleð-
ann og stýrir það fjarlægð milli
mælipunkta (t.d. 15, 25 eða 50 cm)
EKKO-jarðsjá Línuhönnunar í notkun við Kárahnúka. Tveir menn, sjaldnar þrír eins og
hér ganga með jarðsjána yfir óslétt land. Einn og í mesta lagi tvo þarf til þegar hún er
dregin á sleða.
58