Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Blaðsíða 26
MENNINGARMAL
Saga, menning, munaður:
nýbreytni í ferðaþjónustu
Arthúr Björgvin Bollason, forstöðumaður Sögusetursins á Hvobvelli:
Einar Ólafur Sveinsson hafði ein-
hvem tíma á orði að þeim sem læsu
Njálu væri hollt að nota iljamar til
hjálpar við lesturinn. Með þeim orð-
um vildi Einar Ólafur benda fólki á
að fara á vettvang og skoða þá staði
sem Brennunjálssaga gerist á. Vett-
vangskönnun af þessu tagi væri lík-
leg til að auðga og dýpka skilning
lesenda á þessu stórbrotna meistara-
verki islenskra miðaldabókmennta.
A undanförnum mánuðum hefur
mér oft orðið hugsað til umræddra
orða Einars Ólafs. Eftir að hafa
sjálfur búið á Njáluslóð í hálft ár er
ég farinn að skynja töffa sögunnar á
annan og mun sterkari hátt en áður.
Mér finnst ég hafa áttað mig enn
betur á því hversu stóru hlutverki
landslagið, sögusviðið, gegnir í
þessari merku bók.
Brennunjálssaga gerist að miklu
leyti í Rangárþingi. Öll þekktustu
ömefni sögunnar er að finna í næsta
nágrenni byggðarinnar á Hvolsvelli.
Þess vegna lá beint við, þegar menn
fóru að huga að því að auðvelda
gestum að kynna sér sögusvið
Njálu, að því starfi væri stýrt frá
Hvolsvelli. Þar var fyrir nokkrum
árum komið á fót myndarlegri sýn-
ingu um lifnaðarhætti og tíðaranda
víkingaaldar, auk þess sem hluti
sýningarinnar er helgaður efni
Brennunjálssögu. Sýningin, sem
fékk heitið A Njáluslóð, var síðar
flutt í annað og stærra húsnæði, þar
sem hún nýtur sín betur en áður.
Auk Njálusýningarinnar var í þessu
sama húsnæði sett á laggimar Kaup-
félagssafn, þar sem gestir eiga þess
kost að kynna sér verslunarsögu
héraðsins frá aldamótum á lifandi
hátt. Þessu til viðbótar hefur í sama
húsi verið komið fyrir forvitnilegri
veiðisýningu, þar sem eru sýndir
munir úr eigu norska fluguhnýting-
arsnillingsins Analíusar Haagaags.
Og síðast en ekki síst var svo smíð-
aður 100 manna veisluskáli í fom-
um stíl, sem fékk heitið Sögu-
skálinn, og er stílfærð eftirlíking af
langhúsi frá miðöldum. Allt þetta er
að finna í myndarlegum húsakynn-
um Sögusetursins, sem hefúr verið
valinn staður í útjaðri þéttbýlisins á
Hvolsvelli, við veginn inn í Fljóts-
hlíð. Þar er ennfremur upplýsinga-
Greinarhöfundur, Arthúr Björgvin Bollason, við málverk Sigurjóns Jóhannssonar af
Njálsbrennu.
20