Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Page 17
MENNINGARMÁL
milli þeirra mörkuð. Á leiðinni mun einnig gefa á að líta
„ljóðastólpa“ og „sögustólpa" þar sem greint er frá
gömlu útræði og upphafi verslunar á Akranesi. Gefið
verður út leiðarkort um verkin og önnur útilistaverk á
Akranesi.
Viltu vita meira: www.akranes.is
BORGARFJARÐARSVEIT
Björk, íslensk tónlistarhefð og áhrif hennar á dægur-
tónlist okkar daga 16.-25. ágúst
I Reykholti í Borgarfjarðarsveit munu Raddir Evrópu
(Voices of Europe) ásamt Björk Guðmundsdóttur dvelj-
ast dagana 16.-25. ágúst árið 2000. Þar mun kórinn
stunda æfingar fyrir tónleika sína í öllum menningar-
borgunum. Af þessu tilefni verður í Reykholti haldin
málstofa um tónlistarferil Bjarkar. Þar verður fjallað um
rætur tónlistar Bjarkar í íslenskri tónlistarhefð og áhrif
hennar á aðra tónlistarmenn. Björk hefur vakið heimsat-
hygli með listsköpun sinni og hún hefur vakið ómælda
athygli á landi og þjóð. Ljóst er að hún hefur unnið
dijúgt landkynningarstarf og eflaust rutt brautina á er-
lendum vettvangi fyrir marga aðra íslenska listamenn.
I Reykholti verða verk Bjarkar skoðuð í tali og tónum
af fræðimönnum, vinum og samheijum í listinni.
Viltu vita meira: www.borgarfjordur.is
EYRARSVEIT/GRUNDARFJÖRÐUR
Sagan lifi! maí-júní
Verkefnið felst í merkingu sögufrægra staða í Eyrar-
sveit. Á Öndverðareyri verða merktar rústir landnáms-
manns er Vestarr hét. Afkomendur hans koma mjög við
sögu í Eyrbyggju og er þar ffægastur Steindór á Eyri.
Þama er einnig að frnna rústir kirkju ffá 11. öld og rústir
sem rekja má til Sturlungaaldar. Á Grundarkampi við
austanverðan Gmndarfjörð em minjar hins foma Gmnd-
arfjarðarkaupstaðar sem þar átti að byggjast upp sam-
kvæmt tilskipun Danakonungs 1786. Til er skipulags-
uppdráttur af svæðinu, sá elsti sem varðveist hefur í
landinu. Við báða þessa sögustaði í Eyrarsveit verða sett
upp skilti úr varanlegu efni. Á skiltunum verða upp-
drættir og stutt lýsing eða söguskýring á tveimur tungu-
málum.
Verkefni þetta verður unnið í samvinnu við Þjóð-
minjasafn Islands og minjavörð Vesturlands og Vest-
fjarða.
Viltu vita meira: http://www.grundarfjordur.is
DALABYGGÐ/EIRÍKSSTAÐANEFND
Hátíð Leifs heppna 11.-13. ágúst
Hátið Leifs heppna á Eiríksstöðum í Haukadal í Dala-
sýslu verður einkum helguð landafundum Leifs Eiríks-
sonar árið 1000 og landnámi Eiríks rauða á Grænlandi.
Jafnffamt verður Laxdæla sögu og helstu kvenskömng-
um Dalanna á landnámsöld gerð góð skil; Þjóðhildi konu
Eiriks rauða, Auði djúpúðgu og Guðrúnu Ósvífursdóttur.
Hátið Leifs Eiríkssonar er fjölskylduhátíð og verða böm
hvött til þátttöku með því að kynna þeim leiki og spil frá
fyrri tímum, gefa þeim kost á að finna Vínland o.fl. Nor-
rænir og grænlenskir handverksmenn og víkingar munu
sýna verklag forfeðranna, leiksýningar er tengjast Leifi
og öðmm söguhetjum Dalanna verða í boði og lifandi
tónlistarflutningur við hæfí allra aldurshópa.
Á Eiríksstöðum, líklegum fæðingarstað Leifs heppna,
rís nú skáli Eiríks rauða, eftirmynd víkingaskála sem þar
stóð á 9. öld.
Viltu vita rneira: www.dalir.is
VESTURBYGGÐ
Listvinahús kennt við Jón úr Vör - opnun 4. júní
Jón úr Vör, eitt af þekktustu ljóðskáldum Islendinga á
þessari öld, fæddist á Patreksfirði árið 1917 og lést hinn
4. mars á þessu ári. Ljóðabókin Þorpið ffá 1946 skipaði
Jóni í framvarðarsveit ljóðskálda og sveitungar hans
munu opna sérstakt listvinahús til þess að heiðra minn-
ingu skáldsins á sjómannadaginn. Þar verður vinnuað-
staða fyrir rithöfunda og aðra listamenn sem vilja nýta
vestfirska strauma til andans verka.
Viltu vita meira: e-mail: vesturb@snerpa.is
ÍSAFJARÐARBÆR
Menningarveisla 17.-25. júní
Nálægð manneskjunnar við mikilfenglega náttúm hef-
ur skapað ísafjarðarbæ sterka sögu og menningu sem er
lýsandi fyrir íslenska atorku. Tónlist, leiklist, myndlist,
saga og náttúra munu setja svip sinn á vikuna. Þjóðhátíð-
in i ísafjarðarbæ verður haldin á Hrafhseyri við Amar-
fjörð 17. júní. Vestfirskir stjómmálamenn hafa sett svip
sinn á Alþingi íslendinga í aldanna rás, opnuð verður
sýning á sögu þeirra og dagskrá í tengslum við hana.
Stefnt er að því að opna safhahús í „Gamla sjúkrahús-
inu“ sem Guðjón Samúelsson teiknaði en það hefur ver-
ið í endurbyggingu undanfarin ár. Á kvennadaginn 19.
júní verður haldið málþingið „Staða kvenna um aldamót
í sögulegu samhengi". Sögusýning verður í tengslum við
þingið. Landsfrægir ísfírskir tónlistarmenn munu halda
stórtónleika í íþróttahúsinu á Torfhesi. Tónlistarfólk frá
Krakow, einni af menningarborgum Evrópu árið 2000,