Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Page 39
MENNINGARMAL
Vinnuferli við bronsform Sjávarminnis hjá Pangolin Editions, Englandi, 1996.
Sjávarminni á Djúpavogi
Myndin á Djúpavogi heitir Sjávarminni og tileinka ég
hana sjóhetjum fyrr og nú.
Bátsformið er til minningar um sjómenn fyrri tíma,
sem reru á opnum bátum, oft við erfið skilyrði.
Steinfonnið, sem ber bátsformið uppi ásamt brons-
forminu, er úr gabbrói.
Steinninn var fúndinn í heimahéraði. Formið stendur
þungt og traust, tákn fyrir athafnalíf.
Bronsformið tekur mið af fleygmynduðum formum í
umhverfi Djúpavogs og hefúr einnig skírskotun til hafsins.
Myndin er 3,30 metrar á hæð x 3,60 m x 1,30 m.
Steinninn var unninn í Steinsmiðju Sigurðar Helga-
sonar undir minni leiðsögn og var leitast við að láta nátt-
úruleg einkenni njóta sín á móti skomum og slípuðum
flötum.
33