Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Page 46
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
7. ársþing SSNV
haldið á Siglufirði 27. og 28. ágúst 1999
Sjöunda ársþing Sambands sveitarfélaga á Norður-
landi vestra (SSNV) var haldið á Siglufirði 27. og 28.
ágúst 1999.
Aðalmálefhi þingsins voru tvö, „Atvinnulíf og mennt-
un á Norðurlandi vestra“ og „Fjármál sveitarfélaga og
þróun byggðar“.
Agúst Þór Bragason, forseti bæjarstjómar á Blönduósi
og formaður SSNV, setti þingið og bauð þingfúlltrúa og
gesti velkomna. Forseti þingsins var kjörinn Skarphéð-
inn Guðmundsson og varaforseti Ólöf Kristjánsdóttir,
sem bæði eru bæjarfúlltrúar á Siglufirði. Ráðinn þingrit-
ari var Þórir Hákonarson, skrifstofústjóri Siglufjarðar-
kaupstaðar.
Skýrsla stjórnar SSNV
Formaður SSNV, Ágúst Þór Bragason, flutti skýrslu
stjómar. Ágúst greindi í stuttu máli ffá helstu málefnum
sem unnið hafði verið að á starfsárinu. Stærsta málið
væri vafalítið málefni fatlaðra og það fyrirkomulag sem
komið hefði verið á fót í þeim efnum. Ágúst þakkaði
stjóm og ffamkvæmdastjóra vel unnin störf og gott sam-
starf.
Framkvæmdastjóri SSNV, Bjami Þór Einarsson, lagði
ffam ársreikninga fyrir 1998, fjárhagsáætlun fyrir 2000
og starfsskýrslu framkvæmdastjóra. Fram kom í máli
Bjama að það mál sem tekið hefði mestan tíma fram-
kvæmdastjóra og stjórnar á starfsárinu væru málefni
fatlaðra. Hann rifjaði upp ffamgang málsins frá síðasta
þingi SSNV þar sem ffam kom tillaga um skipan mála í
kjördæminu i þessum málaflokki. Gert hafði verið ráð
fyrir því að yfirfærsla málaflokksins kæmist í fram-
kvæmd um áramót 1998/1999, en af því varð ekki, m.a.
vegna andstöðu nokkurra sveitarfélaga við það fyrir-
komulag sem drög að samningi gerðu ráð fyrir. Bjami
greindi frá því að bæjarstjóm Siglufjarðar hefði sam-
þykkt nokkur skilyrði fyrir gildistöku samnings um mál-
efni fatlaðra og hafi þau skilyrði m.a. verið lögð til
grundvallar á aukaþingi SSNV sem haldið var á Sauðár-
króki. Samningur um málefni fatlaðra öðlaðist loks gildi
l.apríl 1999 oggildirtil ársloka2001. Bjami greindi frá
því að framkvæmd samningsins hefði gengið nokkuð
vel.
Byggðarþróun og atvinnumál hafði verið annað stórt
mál á síðasta þingi SSNV. Fimm manna starfshópur var
skipaður í framhaldi af því þingi, sem fjalla skyldi um at-
vinnu- og byggðamál í kjördæminu. Skilaði hann niður-
stöðu sinni í febrúar 1999. Starfshópurinn lagði m.a. til
stofnun eignarhaldsfélags á Norðurlandi vestra, en sú til-
laga fékk misjafnar viðtökur hjá sveitarfélögum kjör-
dæmisins og náði ekki ffam að ganga.
Á síðasta þingi SSNV var samþykkt tillaga þess efnis
að athugaðir yrðu möguleikar á því að korna á fjar-
kennslu í kjördæminu og stefnt að því að koma fjar-
kennslubúnaði fyrir sem víðast á þéttbýlisstöðum þar.
Stjóm SSNV samþykkti að sfyrkja kaup á slíkum búnaði
til að koma upp á Siglufirði, Skagaströnd og Hvamms-
tanga en fyrir var slíkur búnaður á Sauðárkróki og
Blönduósi. Með tilkomu fjarkennslubúnaðar hefúr ffam-
boð náms í kjördæminu aukist og hefur fjarkennslan
gengið vel.
Breytingar á starfsumhverfi SSNV em væntanlegar
eftir miklar breytingar í kjölfar sameiningar sveitarfélaga
á svæðinu og með tilkomu nýrrar kjördæmaskipunar
mun starfsumhverfið enn breytast.
Ávörp gesta
Páll Pétursson félagsmálaráðherra ávarpaði þingið.
Hann ræddi um sameiningu sveitarfélaga sem hann taldi
hafa gengið vel og að reynslan af sameiningu væri al-
mennt góð. Páll lýsti yfir ánægju sinni með yfírtöku
sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra á málefnum fatl-
aðra og greindi ffá því að ekki væri búið að dagsetja yfir-
töku sveitarfélaga í landinu á þessum málaflokki en það
yrði fyrr en síðar. Þá ræddi ráðherra um ný húsnæðislög
og Ibúðalánasjóð og ffam kom að beiðnir um lán væru
mun fleiri heldur en gert hafi verði ráð fyrir. í máli ráð-
herra kom fram að ríkisstjómin hefði sérstaklega sett tvö
mál í öndvegi, þ.e. baráttu við byggðarröskun og baráttu
gegn eiturlyfjaneyslu, en almennur vilji sé í stjómkerfmu
fyrir framgangi þessara mála.
Ráðherra greindi ffá stofnun nefndar á vegum félags-
málaráðuneytis til endurskoðunar á tekjustofhum sveitar-
félaga með það að markmiði að þeir nægi til að sveitar-
félög geti uppfyllt lögbundnar kröfúr.
Framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Þórður Skúlason, ávarpaði þingið og bar því kveðjur
stjómar sambandsins. Hann gerði að umræðuefni starf-
semi landshlutasamtaka sveitarfélaga og hvaða áhrif ný
40