Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Síða 58
ERLEND SAMSKIPTI
Nancy George, talsmaöur Samtaka eftirlaunaþega í Bandaríkj-
unum, en félagsmenn eru 32 milljónir og því afar öflugur þrýsti-
hópur.
Hvíta húsið og biðum við í röð i góðan klukkutíma til að
fá að berja augum innviði þess. Byggingin er opin al-
menningi í tvo tíma á dag og fara mörg hundruð gestir
þar í gegn á degi hverjum. Það er þó borin von að ætla
að hitta sjálfan forsetann því hann er að sjálfsögðu ekki
heima þegar svo marga gesti ber að garði. Oft má sjá
mótmæli úti fyrir hliðum Hvita hússins og svo var í
þetta sinn og virtust grímuklæddir mótmælendumir lítt
hrifnir af forsetahjónunum ef marka mátti spjöldin sem
þeir bám.
Lobbíisti er viröulegt starfsheiti
Töluverð áhersla var lögð á að kynna fyrir okkur
starfsemi frjálsra félaga og hagsmunasamtaka sem beij-
ast fyrir því að tryggja fjárvcitingar þingsins til ólíkra
mála. Má þar nefna Landssamtök eftirlaunaþega sem í
em 32 milljónir félaga sem komnir em yfir fimmtugt.
Um tvö þúsund manns vinna fyrir samtökin vítt og breitt
um landið og er höfúðmarkmiðið að tryggja hagsmuni
eldri borgara en einnig að efla almenna kosningaþátt-
töku í landinu. Höfúðstöðvamar em í Washington DC
og þar er fjöldi fólks á launum, svokallaðir lobbíistar,
við að koma málefhum samtakanna á framfæri við þing-
menn og embættismenn.
Hugtakið lobbíisti kemur frá orðinu lobby, sem merkir
anddyri, og á það uppmna sinn í anddyri á virðulegu hót-
eli skammt frá bandaríska þinginu þangað sem þing-
menn vöndu komur sínar forðum eftir erilsaman dag.
Fulltrúar þrýstihópa sáu sér fljótt leik á borði og sátu um
þingmennina í anddyrinu og fengu fyrir vikið viðumefn-
ið lobbíistar. Nú er þetta orðið virt starfsheiti og hefúr
ekki yfír sér þann neikvæða blæ sem mörgum íslending-
um kann að finnast einkenna það.
Stjórnmálastofnun í hávegum höfö
Frá Washington lá leið okkar til Raleigh, höfúðborgar
Norður-Karólinuríkis, þar sem við kynntumst ýmsu er
snýr að fylkisstjómarstiginu, en alls em fylki Bandaríkj-
anna fímmtíu talsins. Einkar áhugaverð var heimsókn
hópsins í Stjómmálastofnun Háskólans í Norður-Kar-
ólinu, en stofnunin sérhæfir sig í rannsóknum, kennslu
og ráðgjöf fyrir fylkis- og sveitarstjómir og embættis-
menn þeirra.
Á námskeiðum er lögð áhersla á lagaumhverfi, fjár-
hagsáætlanagerð, skipulagsmál og stjómunartækni, svo
fátt eitt sé nefnt, og er ekki að efa að þörfin er brýn enda
er mikið leitað til stofnunarinnar og nýtur hún virðingar
sem slík. Einnig stendur stofhunin fyrir skipulögðu mati
og samanburði á frammistöðu sveitarfélaga þar sem lögð
er til gmndvallar skilvirkni þjónustu og kostnaður við
hana ásamt því að bent er á leiðir til úrbóta.
Starfssystkin Sambands íslenskra sveit-
arfélaga
í Raleigh hittum við einnig fyrir forsvarsmenn sam-
taka sveitarfélaga í Norður-Karólínu, sem á margan máta
starfa á svipuðum gmnni og íslensk starfssystkin þeirra
hjá Sambandi islenskra sveitarfélaga. Samtökin þurfa þó
að berjast fyrir hagsmunum aðildarsveitarfélaga jafnt á
fylkisstiginu sem alríkisstiginu en þegar öllu er á botninn
hvolf't em baráttumálin þau sömu og hér heima. Sveitar-
félögin vilja aukna sjálfstjóm í ýmsum málum en telja
sig jafnframt ekki fá nægt fé til að sinna mörgum þeim
skuldbindingum sem rikið leggur þeim á herðar. Kannast
einhver við þessa umræðu?
Fylgst meö störfum fylkisþings
Næst lá leiðin í nágrannafylkið Virginíu þar sem við
heimsóttum höfuðborgina Richmond og fengum að
kynnast daglegum störfúm löggjafarsamkomu Virginiu.
Rétt er að benda á að í öllum fylkjum Bandarikjanna er
við lýði hið þrískipta vald, löggjafans, framkvæmda-
valdsins með ríkisstjóra í fararbroddi og dómsvaldsins
sem starfar samkvæmt svipuðum reglum og bandaríska
þingið, forsetinn og Hæstiréttur. Við fylgdumst með
störfum landbúnaðarnefndar og sátum hluta úr hefð-
bundnum þingfúndi auk þess sem við áttum stutt spjall
5 2