Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Qupperneq 62

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Qupperneq 62
ERLEND SAMSKIPTI samtök sjálfboðaliða haft forgöngu um verkefni sem fólgið eru í því að fjánnagna andlitslyftingu og jafhvel meiri háttar endurbætur á gömlum, sögulegum húsum og húsaþyrpingum. Einstaklingum, t.a.m. eldri borgur- um sem búa við þröngan fjárhag, er gert kleift að snurfusa eignir sínar sem ella myndu grotna niður af viðhaldsleysi. Samtökin fá i lið með sér opinberar stofn- anir og einkafyrirtæki, sem sjá sér í hag í verkefhum af þessum toga því þeim fylgja eftirsóknarverðar skatta- ívilnanir. Við fengum einnig tækifæri til að sjá dæmi um endur- gert iðnaðarhúsnæði, sem eitt sinn hafði gegnt hlutverki bómullarverksmiðju. Nú mátti sjá þar glæsilegar skrif- stofúr í bland við litlar og stórar íbúðir með sameigin- legri útisundlaug og æfingasal, svo fátt eitt sé nefnt. Húsakynnin voru endurgerð með tilliti til fortíðar húss- ins, gamlir vélarhlutir og tæki verksmiðjunnar prýddu almenninga auk þess sem veggir og gólf fengu að halda gömlu og snjáðu útliti sínu. Að mínu mati hefúr þama tekist að blanda saman nútíð og fortíð á einstaklega skemmtilegan hátt. Hugmyndin að endurgerð bómullarverksmiðjunnar kom frá bandarisku fyrirtæki sem sérhæfir sig í verkefn- um af þessu tagi víða um heim með þátttöku ólíkra fjár- festa. Forsvarsmaður fyrirtækisins sýndi okkur einnig næsta verkefni á dagskrá, gamla niðursuðuverksmiðju, sem reist var í borginni í upphafí aldarinnar. Verksmiðj- an hefúr staðið auð í áraraðir og við fyrstu sýn virðist fátt annað nýtanlegt en útveggimir. Engu að síður stefna hugmyndasmiðimir að því að innan tveggja ára verði búið að breyta henni í eftirsóknarverðar íbúðir og versl- anir í anda bómullarverksmiðjunnar fyrmefndu. Áætlað er að verkið kosti ríflega þijá milljarða íslenskra króna og er búið að fjármagna það með þátttöku tuttugu mis- munandi aðila, jafht opinberra stoíhana sem einkafyrir- tækja. Haldið heim á leiö Eftir fimm daga dvöl í New Orleans var kominn tími til að kveðja ferðafélagana og halda heim á leið. Þriggja vikna samvera var á enda og vissulega eftirsjá í því þótt gamla máltækið „heima er best“ standi alltaf fyrir sinu eftir langt ferðalag. Gestrisni Bandaríkjamanna er mikil og skipulagshæfhi þeirra aðdáunarverð. Á ferð okkar sát- um við á fimmta tug funda og hittum ógrynni af fólki sem miðlaði okkur af reynslu sinni. Vakti það aðdáun mina að dagskráin fór aldrei úr skorðum. Það mun taka dágóðan tíma að vinna úr öllu því sem á daga mína dreif þessar fyrstu vikur ársins. Tíminn mun leiða í ljós hvort í farteski mínu leynast töffalausnir til handa islenskum sveitarfélögum þótt í svipinn sé það harla óliklegt. En í þessu greinarkomi hef ég einungis minnst á brot af öllu því sem fyrir augu og eyru bar í ferðinni og vil ég gjaman miðla samstarfsfólki mínu í sveitarstjómum af reynslu minni. Því hvet ég ykkur til að hafa samband við mig ef einhverjar spumingar skyldu vakna við lestur þessarar greinar og mun ég svara þeim eftir bestu getu. Að endingu vil ég koma á ffamfæri kæm þakklæti til Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir veitta aðstoð við undirbúning ferðarinnar. Skólinn í brennidepli - norræn námsstefna í Vasa í Finnlandi 11.-13. maí í háskólanum í Vasa í Finnlandi verður dagana 11.-13. maí nk. hald- in norræn námsstefna sem kölluð er Skólinn í brennidepli - skapandi þróunarstarf í skólamálum á Norð- urlöndum. Námsstefnan er ætluð kjörnum sveitarstjórnarmönnum og starfs- mönnum sveitarfélaga og skóla- skrifstofa, stjómendum skóla, for- ustumönnum kennarasamtaka en er einnig opin öðmm sem áhuga hafa á skólamálum. Á námsstefnunni flytja fræði- menn á sviði uppeldis- og skóla- mála erindi um hina ýmsu þætti skólastarfsins og fulltrúar norrænu sveitarfélagasambandanna skiptast á skoðunum um efni eins og skóla framtíðarinnar, símenntun og „Draumsýn okkar um skóla og menntun“. Um það efhi er dr. Gerð- ur G. Oskarsdóttir fræðslustjóri meðal ffamsögumanna. í annan stað fer námsstefnan ffam í umræðuhópum. í þeim verður m.a. Qallað um tengsl skóla og atvinnu- lífs, verknám, upplýsingasamfélagið og menntun kennara. Ennffemur um þætti eins og mat á skólastarfi og einelti og kynntar verða niðurstöður tilrauna í skólastarfi víðs vegar á Norðurlöndum og á Italíu. Þátttakendum gefst tækifæri til að heimsækja skóla þar sem leikskóli og grunnskóli em í samstarfi svo og verknámsskóla. Þátttökugjald á námsstefhunni er 2.928 finnsk mörk eða um 35 þús. ísl. kr. og flugfargjald frarn og til baka til Vasa kostar um 68 þús. krónur. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sambandsins. 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.