Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Page 18
FJÁRMÁL
Tekjur nokkurra sveitarfélaga 1998 og aukaframlag jöfnunarsjóðs 1999
d Úlsvör M Fasteignagjöld □ Jöfnunarsjóður □ Framleiðslugjald ■ Aukaframl. úr jöfnunarsjóði
nefni sem dæmi að Akureyrarbær stendur undir ijöl-
þættri þjónustu sem kemur til góða öllum íbúum á Eyja-
fjarðarsvæðinu og e.t.v. á Norðurlandi öllu en fær þó i
þjónustuframlag aðeins 12% af því sem nágrannar okkar
fá, því íbúatengda framlag Akureyrar er margfaldað
með ca 0,12 meðan þeir fá stuðulinn 1,0.
Snjómoksturslínan
Og þá er það snjómoksturslínan fræga, þar sem liggja
tvær samsíða línur nokkum veginn þvert i gegnum land-
ið, en síðan tekur þessi lína sérkennilegan sveig í Eyja-
firði og svo undarlega vill til að hún teygir sig aðeins
norður íyrir Akureyri og hefur þau áhrif að þjónustu-
framlag til Akureyrar vegna snjómoksturs, sem t.d. fór á
síðasta ári í tæpar 30 milljónir kr., er helmingi lægra á
íbúa en á Húsavík.
Eg hef nú fjallað urn það sem ég vildi koma á fram-
færi varðandi úthlutun úr sjóðnum en langar þó til að
birta eina töflu (sjá töflu efst í næsta dálki) sem sýnir
óformlega athugun á áhrifum sameiningar sveitarfélaga
við Eyjaijörð á framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
miðað við forsendur sem giltu á síðasta ári. Nú er það
ekki sjálfgefið að þessar reglur verði látnar gilda ef til
slíkrar sameiningar kæmi en það segir sig sjálft að regl-
umarhvetja ekki til sameiningar.
Að siðustu ætla ég að birta hér eina mynd sem sýnir
tekjur á íbúa í nokkrum sveitarfélögum sem öll hafa yfir
1000 íbúa. Tölumar em úr Arbók sveitarfélaga 1999.
Sjá mynd efst á blaðsíðunni.
Áhrif sameiningar sveitarfélaga við Eyjafjörð með Siglu-
firði á framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
Tekjujöfnunar- Þjónustu-
framlög framlög
Siglufjörður 0,0 14,9
Akureyri 0,0 14,1
Ólafsfjörður 0,0 8,1
Dalvíkurbyggð 15,0 17,8
Grímsey 0,0 0,0
Hrísey 0,0 1,2
Arnarneshreppur 0,0 1,5
Eyjafjarðarsveit 29,2 5,9
Svalbarðsstrandarhr. 3,5 2,6
Grýtubakkahreppur 3,2 3,2
Fyrir sameiningu 50,9 69,3
Samtals 120,2
Eftir sameiningu 0,0 26,5
Samtals 26,5
Mismunur 93,7
Er nema von þótt einhverjir velti því fyrir sér hvað sé
verið að jafha með framlögum úr jöinunarsjóði. Tekjur
af ffamkvæmdum sem engin áhrif hafa á útgjöld sveitar-
félaga svo sem virkjunum og stóriðju eða fasteignagjaldi
flugstöðvarinnar svo dæmi séu tekin hafa lítil áhrif.
Þetta er rökstuðningur minn fyrir því einfalda svari
sem ég gaf í upphafi greinarinnar: Já, það er þörf á að
breyta Jöfhunarsjóði sveitarfélaga.
80