Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Blaðsíða 53
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
því að þeim verði lokið í kjördæminu fyrir árið 2002.
Ný bíla- og farþegaferja Smyril Line ehf.
Að tillögu ferðaþjónustu- og atvinnumálanefhdar voru
gerðar svofelldar ályktanir:
Aðalfundur SSA 1999 fagnar áformun Smyril Line
um smíði nýrrar farþegaferju og eflingu ferjusiglinga
milli útlanda og Austurlands.
Ferðaþjónusta
Aðalfúndur SSA 1999 fagnar því að samgönguráðu-
neytið setji aukið fé í að lengja ferðamannatímann. Leita
þarf allra leiða til að hægt sé að reka ferðaþjónustu um
allt land. Einnig þarf að efla upplýsingamiðstöðvar með
auknu fjárframlagi frá ríkinu þar sem þessi atvinnugrein
er veikburða víða um land.
Svofelld greinargerð jylgdi tillögunni:
Undanfarin ár hefúr störfúm í hinum hefðbundnu at-
vinnugreinum fækkað og fyrirsjáanlegt er að þeim mun
enn ffekar fækka á næstu árum. Því er mikilvægt að leit-
að sé allra leiða til að renna styrkari stoðum undir at-
vinnulíf í fjórðungnum og fúndin séu ný og áhugaverð
atvinnutækifæri, s.s. innan ferðaþjónustu og á sviði
orkufreks iðnaðar, en aðalfúndurinn telur að þessar at-
vinnugreinar geti farið saman.
Gæði í ferðaþjónustu
Aðalfúndur SSA 1999 skorar á samtök ferðaþjónustu-
aðila á Austurlandi að vinna markvisst að auknum og
stöðugum gæðum í ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan er at-
vinnugrein í örum vexti og viðkvæm fyrir hvers konar
áfollum. Menntun starfsfólks í greininni er lykilatriði og
mikilvægt að hvetja það til að nýta sér nýjar leiðir hvað
varðar menntun, t.d. fjamám í svæðisleiðsögn, fjar- og
utanskólanám í gæðamálum og í tungumálum, jafnt í
ffamhaldsskólum fjórðungsins sem á æðri skólastigum.
Ferðamálaráð íslands
Aðalfúndur SSA 1999 skorar á Ferðamálaráð íslands
að koma á fót útibúi á Austurlandi.
Virkjanir og stóriðja á Austurlandi - byggðamál
Aðalfundur SSA, haldinn í Brúarásskóla á Norður-
Héraði dagana 26. og 27. ágúst 1999, ítrekar þá stefhu
sambandsins að styðja eindregið áform um virkjana-
ffamkvæmdir á Austurlandi og nýtingu orkunnar í fjórð-
ungnum.
Leggur fúndurinn áherslu á eftirfarandi i þessu sam-
bandi:
• lög í landinu heimila að ráðist verði í byggingu
Fljótsdalsvirkjunar.
• ekkert virkjunarsvæði hefúr verið eins ítarlega rann-
sakað og virkjunarsvæði Fljótsdalsvirkjunar enda
mikilvægt að mat á umhverfísáhrifúm slíks mann-
virkis sé vandlega unnið.
• brýnt er að félagsleg áhrif og umhverfisáhrif virkjunar
og iðjuvers á Austurlandi verði vandlega kynnt, sér-
staklega verði vandað til kynningar á þeirri skýrslu
um umhverfisáhrif virkjunar sem væntanlega verður
lögð ffam á næstunni.
• mikilvægt er að framkvæmdir við virkjun og orku-
frekan iðnað hefjist hið fyrsta enda hafa áform um
slíkt verið uppi á Austurlandi í um 20 ár.
• úttektir sýna að tilkoma orkufreks iðjuvers mun hafa
mjög jákvæð áhrif á íbúa- og efnahagsþróun á Aust-
urlandi.
• virkjun og orkuffekur iðnaður á Austurlandi mun án
efa vera áhrifamesta byggðaaðgerð sem stjómvöld
eiga kost á að stuðla að um þessar mundir.
Stjórn SSA
Sem aðalmenn í stjóm SSA til eins árs hlutu kosningu
bæjarfulltrúarnir Halldóra B. Jónsdóttir og Hermann
Hansson í Hornafirði, Ragnhildur Steingrímsdóttir,
hreppsnefndarfulltrúi í Djúpavogshreppi, bæjarfulltrú-
amir Smári Geirsson og Magni Kristjánsson í Fjarða-
byggð, Líneik A. Sævarsdóttir, hreppsnefndarfulltrúi í
Búðahreppi, Hafþór Róbertsson, hreppsnefndarmaður á
Vopnafirði, og bæjarfúlltrúamir Vigdís M. Sveinbjöms-
dóttir á Austur-Héraði og Gunnþór Ingvason á Seyðis-
firði.
Næsti aöalfundur á Hornafiröi
Garðar Jónsson, þáv. bæjarstjóri Sveitarfélagsins
Homafjörður, bauð til næsta aðalfúndar SSA á Homafirði.
Fundarslit
Þorvaldur Jóhannsson, ffamkvæmdastjóri SSA, þakk-
aði starfsmönnum fúndarins fyrir vel unnin störf og sleit
fúndi kl. 16.35.
Boö í Svartaskógi
Að loknum fúndi fyrri fúndardags þáðu þingfúlltrúar
boð sveitarstjómar Norður-Héraðs í Svartaskóg þar sem
oddviti Norður-Héraðs, Katrín Ásgeirsdóttir, bauð gesti
velkomna og bauð til veitinga úti í blíðunni. Þar léku
hótelstjórinn, Benedikt Hrafnkelsson, og sveitarstjóri
hreppsins, Jónas Þór Jóhannsson, undir fjöldasöng aust-
firskra sveitarstjómarmanna. Þaðan var haldið til hátíðar-
kvöldverðar í Brúarássskóla.
Tvenn hjón heiöruö
í hátíðarkvöldverðinum vom sérstaklega heiðruð hjón-
in Kristinn V. Jóhannsson, fyrrv. forsti bæjarstjómar í
Neskaupstað, og Bára Jóhannsdóttir, heiðursgestir aðal-
fúndar SSA, og hjónin Keith Reed og Ásta B. Schram,
sem hlutu menningarverðlaun SSA 1999 fyrir hönd
Ópemstudíos Austurlands.
Þorvaldur Jóhannsson, framkvœmdastjóri SSA
1 1 5