Helgafell - 01.09.1942, Qupperneq 15

Helgafell - 01.09.1942, Qupperneq 15
UTAN GARÐS OG INNAN 243 listamemi alkunnu geriæði um undanfarin ár en einmitt hann. Og illa þekkir Helgafell skaplyndi Hermanns Jónassonar, heilbrigðan metnað hans og falslausan áhuga og virðingu fyrir því, sem vel er gert í bókmenntum og listum, ef hann kýs sér það hlutskipti að bletta nafn sitt í íslenzkri stjórnmálasögu með því að láta núverandi ófremdarástand í opinberum skiptum af íslenzku listalífi haldast stundinni lengur, er hann hefur fengið svigrúm til þess að njóta sín. Miklu fremur cr það skoðun vor, samkvæmt persónulegum kynnum af Her- manni Jónassyni, að hann muni telja það hlutverk sitt í flokki sínum að beita sér fyrir því að „listamannadeilan" fái þá lausn, sem er í samræmi við óskir ridiöfunda og listamanna og íslenzka menningarhagsmuni í senn. Mjög líklegt má telja, að Bandalag ísl. listamanna beini fyrirspurnum til miðstjórna flokkanna nú fyrir kosningarnar um afstöðu þeirra til „listamannadeilunnar'1 og nýskipunar Menntamálaráðs í samræmi við óskir Bandalagsins, svo að öllum flokkum gefizt kostur á því að láta skoðun sína og stefnu í þeim málum í ljós frammi fyrir kjósendum landsins. Enginn mun að vísu vænta þess, að kosningarnar snúist um þessi mál, nema að örlitlu leyti, en þeim mun óhættara verður flokksstjórnum og frambjóðendum allra flokka að svara fyrirspurnum Bandalagsins vafningalaust, ef fram koma. Tveir þeirra þingflokka, sem nú ganga til kosninga, hafa sýnt rithöfundum og listamönnum fullan skilning og samúð í réttlætisbaráttu þeirra. Þessir flokkar, Alþýðuflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn, geta að vísu tæplega ráðið lausn listamálanna á næsta Alþingi einir saman, en þess munu rithöfundar og listamenn vænta af þeim, að fáizt ekki svo um skipun og starfsháttu Mennta- málaráðs þokað á næsta þingi, að Bandalag íslenzkra listamanna geti talið sig vel við una, taki hvomgnr þessara flokka ábyrgð á störfum Menntamálaráðs eftirleiðis með [>ví að eiga fulltrúa t ráðitiu. En eins og þegar hefur verið sagt, er ekkert líklegra en að velsæmi og vitsmunir verði ofan á í þessum málum innan þess stjórnmálaflokks, sem rithöfundar og listamenn verða að telja sig sérstaklega ábyrgan fyrir mistökum Menntamálaráðs að undan- förnu, og úr því ætti ekki að þurfa að efast um afstöðu Sjálfstæðisflokksins, enda ber að minnast þess með þakklæti, að blöð hans liafa stutt rithöfunda og listamenn með ráðum og dáð í deilu þcirra við formann Menntamálaráðs. „ÆTTMOLD íslenzk útgáfa af nokkrum ljóðum Nordahls Griegs í þýðingu Magn- OG ÁSTJÖRÐ.11 úsar Ásgeirssonar er nýkomin út á vegum Rithöfundafélags Islands og verður seld til ágóða fyrir Noregssöfnunina. Bókin er gefin út í aðeins 175 tölusettum eintökum á vandaðan pergamentpappír. Nordahl Grieg hefur sjálfur ritað ágætan formála fyrir bókinni og undirritað hann mcð eigin hendi á hvert eintak. Bókin er prentuð í Víkingsprenti, en pappírinn í hana gaf Steingrímur Guðmundsson forstj. fyrir hönd prentsmiðjunnar Gutenberg. Gert er ráð fyrir að um 150 eintök bókar- mnar verði til sölu, og kostar hvert 100 krónur. Töluvert af upplaginu er þegar keypt eða pantað. Eftirleiðis verður bókin til sölu í skrifstofu Víkingsprcnts, Garðastræti 17, sími 2864.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.