Helgafell - 01.09.1942, Síða 21

Helgafell - 01.09.1942, Síða 21
VARNIR RÁÐSTJÓRNARRÍKJANNA 249 etsnámanna. Kolanámurnar í Kúsnetsk framleiddu árið 1940 um 25 milljónir tonna, aðrar námur austan Uralfjalla framleiddu miklu minna, en alls nam framleiðsla hinna nýju námuhéraða um 40 milljónum tonna, eða helming þess magns, sem unnið var í Donets- námunum einum saman. Missir olíulindanna í Kákasíu mundi verða mikill hnekkir hernaðarmaetti Rauða hersins, en þó mundi það ekki veita honum rothöggið. Því að í hinni miklu hernaðaráætlun Rússa er einn- ig gert ráð fyrir því, að samgöngur muni teppast milli Kákasíu og megin- landsins, og þeir hafa þegar fyrir all- mörgum árum hafizt handa um að skipuleggja olíuvinnslu á öðrum slóð- um, sem liggja ekki eins í þjóðbraut erlendra árásarherja. 1926 uppgötvuðu rússneskir jarðfræðingar fyrir einskæra tilviljun, að mikil olía var í jörðu í héruðunum milli Volgu og Uralfjalla. í Kazakstan fundust einnig auðugar olíulindir. f Syzran, skammt fyrir vest- an Kúybísév, í Ufa í Baskiríu og hjá Emba í Kazakstan hafa verið reistar olíuvinnslustöðvar, og að því er talið, er, nemur framleiðsla þeirra um 6 milljónum tonna. Til samanburðar má geta þess, að Kákasíuolían var um 30 milljónir tonna á ári. Eins og af þessu má sjá, er enn langt í land, að hinar nýju olíulindir fái bætt Rússum missi Kákasíu. En þær mundu nægja til þess, að Rússar gæti varizt eftir sem áður, og eru þá ekki teknar með hin- ar miklu benzínbirgðir, sem Rússar eiga um alla Vestur-Síberíu. Að því er olíu varðar mundu Rússar því geta háð langvinnt varnarstríð á grundvelli hins nýja Rússlands og þess iðnaðar, sem þar hefur orðið til hinn síðasta áratug. Styrjaldarhorfur Þegar þetta er skrifað, er þ^'zki her- inn kominn x úthverfi Stalíngradborg- ar. í Kákasíu á hann ófarna 80 km. til Grozníolíulindanna, og á Svartahafs- ströndinni er flotahöfnin Novórossísk á valdi Þjóðverja. Þetta er ekki lítill árangur, en þó hefur þýzka herfor- ingjaráðið enn ekki náð því, sem það ætlaði sér. Stalíngrad er enn ekki unn- in og ekki Voronesh við Don. Hið mikla kapp í vörn og sókn hjá þessum stöðum sýnir greinilega, að hér er glímt um hernaðarlegan heildarárang- ur sumarsóknarinnar. Takist Rússum að stöðva Þjóðverja hjá Stalíngrad og Voronesh, þá hafa fórnir Þjóðverja í sumar orðið að miklu leyti til einskis. Ef Stalíngrad verður unnin, og Rússar fá ekki tekið hana aftur líkt og Rostov í fyrra, þá er sjálfri Moskvu og herjum Mið-Rússlands mikill háski búinn. Þó því aðeins, að þýzki herinn hafi ekki ofreynt sig á sumarsókninni, og Rauði herinn hafi ekki mátt til að hefja vetr- arsókn á sömu lund og í fyrra. Það er vitað, að Rússar hafa mikið varalið til varnar Moskvu og miðhéruðum Rúss- lands, og óvíst, hvort þýzki herinn sé fær um eftir hið mikla tjón sumarsókn- arinnar að leggja út í nýjar stórorustur við meginheri Rússlands. Sennilegast verður því að álíta, að Hitler muni reyna að festa vetrarvígstöðvar sínar á þeim slóðum, er hann nú er á, ef suð- urhluti Volgu verður unninn fyrir haustið. En takizt honum það ekki mun skammt vera til umskiptanna í þessari styrjöld. Nýjar vígstöðvar? Það sem íáða mun mestum straum- hvörfum í styrjöldinni er myndun

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.