Helgafell - 01.09.1942, Qupperneq 36

Helgafell - 01.09.1942, Qupperneq 36
264 HELGAFELL mjög varhugaverÖ og hrossaleg að- ferð, sem hefur enga yfirburði til lækn- inga umfram það að láta brenna sig með glóandi járni, nema síður sé, og mun þó flestum hrjósa hugur við því. Brunasárin eftir steinolíubakstra eru oft lengi að gróa, og vessar mjög mik- ið úr brunablöðrunum, sem vonlegt er, en auk þess er alltaf talsverð hætta á að vessandi eczem myndist upp úr steinolíubruna. En fólk virðist samt sætta sig furðuvel við þetta. Það hef- ur ekkert við það að athuga, þótt lengri tími fari í að græða steinolíubrunann, heldur en hefði farið í að lækna sjúk- dóminn, sem stofnað var til brunans út af. Og það er áreiðanlegt, að vessa- trúin á sinn þátt í því. Það er ekki trútt um að mörgum líki vel hin mikla vessaútferð og hugsi sem svo: Ja, það var ekki vanþörf á, að þetta var gert; sér eru nú hver ósköpin af óhollum vessum, sem í mér hafa verið; það var reglulegt lán, að ég skyldi ráðast í að fá mér steinolíubakstur. En allir þessir vessar eru ekkert ann- að en lítið breytt blóðvatn, sem síast út úr bólgnum vefjum og enginn á- vinningur að losna við þá, heldur ætti að leggja alla stund á að hjálpa nátt- úrunni til þess að sigrast á bólgunni sem allra fyrst, með græðandi smyrsl- um og umbúðum, ásamt fyllsta hrein- læti í allri sárahirðingu, en henni er oft ábótavant, þegar fólk hirðir þetta sjálft, eða lætur skottulækna annast það. Er þá sjaldnast dauðhreinsuðum umbúðum til að dreifa, heldur hinum og þessum tuskum, og komast þá eðli- lega oft sýklar í allt saman, og skyldi engan furða, þótt vessarnir yrðu drjúg- ir, þegar svo er um hnútana búið. Fólk talar oft um óhreint blóð, sem það kallar svo. Það veitir því eftirtekt, að æðarnar á handabökunum eru ef til vill dökkar eða bláar á lit. Það held- ur þá, að dökki liturinn sé alvarlegt einkenni um óhreinindi í blóðinu. All- ir læknar kannast við, hversu algengt það er, að sjúklingar spyrji, þegar tek- ið er úr þeim blóð úr handleggsæð í rannsóknarskyni, hvort blóðið sé ekki afar dökkt og ljótt. Eða þá að fólk segir; Ekki er það fallegt, dæmalaust er það þykkt og svart! En það er ekkert við það að athuga, þótt blóð, sem læknar taka úr hand- legg, sé dökkt á litinn. — Blóðið er á- vallt tekið úr svonefndum bláæðum, en svo nefnast æðar þær, sem flytja blóðið frá líkamanum að hjartanu. — Bláæðablóðið geymir ávallt í sér tals- vert af kolsýru, sem það fær í skipt- um fyrir súrefni úti í vefjum líkam- ans, en kolsýran gerir blóðið dökkt, eða bláleitt á lit. Það er því fullkom- lega eðlilegt, að þetta blóð sé dökkt, og ekkert við það að athuga, en það er heldur ekkert tiltökumál þótt fólki þyki undarlegt og óheillavænlegt, að blóðið sé svona dökkt, því að almenn- ingur hugsar sér, að allt blóð sé ljós- rautt, svipað blóði, sem kemur, þegar maður t. d. sker sig á hníf. En því geri ég þetta að umtalsefni, að ég hef oft rekið mig á, að fólk hefur áhyggj- ur út af sínu dökka bláæðablóði, al- gerlega að þarflausu. Oft er haft orð á því líka í þessu sambandi, að blóðið sé mjög þykkt, en ég hygg, að sú ályktun sé dregin af því, að þetta bláæðablóð storknar all- fljótt; en það stafar einnig af því, hversu mjög það er blandað kolsýru, og því ekkert athugavert við það, þótt það storkni fljótt. Stundum hef ég heyrt fólk halda því fram, að blóðið rynni öfugt, að minnsta kosti í köflum, og væri það mjög al-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.