Morgunblaðið - 13.10.2012, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 240. tölublað 100. árgangur
www.kaupumgull.is
Græddu
á gulli
Kringlunni 3.
hæð um helgina!
Upplýsingar og tímapantanir:
Sverrir s. 661-7000
lau., sun., mán., þri. og
mið. frá kl. 11:00
til 18:00
Nánar á
bls. 5
SUNNUDAGUR
GUÐBERGUR: MAÐUR VERÐUR AÐ VERA SINN EIGIN EINRÆÐISHERRA
NETIÐ BREYTTI TÍSKUHEIMINUM LADY GAGA MIÐLAR SAMKENND
Morgunblaðið/Ásdís
Matarkarfa Vísbendingar eru um að fólk
setji orðið minna af matvöru í körfuna.
Velta á innlendum kreditkortum
minnkaði milli ára í ágúst og var
veltan á debetkortum innanlands
einnig minni. Veltan á innlendum
kreditkortum erlendis var hins veg-
ar meiri í ágúst 2012 en í sama
mánuði í fyrra. Þá jókst veltan á er-
lendum kreditkortum á Íslandi.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir merki um að
verslunin í síðasta mánuði hafi ver-
ið minni en í fyrra. Fólk setji til
dæmis minna í matarkörfuna en í
fyrra og það sé talið merki um að
það hafi minna milli handanna. »7
Veltan minnkar milli
ára og minna sett
í matarkörfurnar
Yfirlýst 1%-samtök
» Outlaws MC eru yfirlýst 1%-
samtök en það er viðtekinn skiln-
ingur lögreglu að það þýði að þau
hafi sagt sig úr lögum við sam-
félagið.
» Að áliti lögreglu hafa 99% allra
vélhjólasamtaka á að skipa venju-
legum löghlýðnum borgurum.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Lögregla hér á landi er hvorki
hrædd við Outlaws-vélhjólasamtökin
né önnur samtök sem grunur leikur
á að tengist glæpastarfsemi og
treystir sér fyllilega til að halda þeim
í skefjum. Fari þessi samtök ekki að
lögum verður þeim mætt af fullri
hörku, hvergi verður slegið af, svo
sem sást á umfangsmikilli aðgerð
lögreglu gegn félögum í Outlaws fyr-
ir rúmri viku.
Þetta kemur fram í fréttaskýringu
í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Þar kemur einnig fram að lögregla
telur að samtökin séu verulega lösk-
uð eftir aðgerðina. Eigi að síður
verður fylgst grannt með þeim
áfram og gripið til viðeigandi að-
gerða, verði tilefni til.
Út fyrir skynsemismörk
Lögreglumenn virðast almennt
ekki hafa miklar áhyggjur af um-
ræddum hótunum í sinn garð og
þykir umræðan undanfarið hafa far-
ið út fyrir skynsemismörk. Meira
hafi verið gert úr styrk Outlaws-
samtakanna en efni standa til. „Ali
umræðan á ótta þjónar það þeirra
hagsmunum. Outlaws-liðar vilja að
fólk sé hrætt við þá, það styrkir
ímyndina og þannig er auðveldara
fyrir þá að ógna fólki, til dæmis þeg-
ar þeir innheimta skuldir,“ segir lög-
reglumaður.
Outlaws-samtökin á Íslandi eiga
nú svokallaða „skilorðsaðild“ að
heimssamtökunum en gætu öðlast
fulla aðild á næstu mánuðum.
Ekki smeyk við Outlaws
Lögregla treystir sér fyllilega til að halda samtökum sem bendluð hafa verið við
glæpastarfsemi í skefjum en segir mikilvægt að þeim sé veitt aðhald og eftirlit
Ljósmynd/Kolla Gr.
Falleg Þrift frá Hólum er með eina
hæstu sköpulagseinkunn landsins.
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
Háskólinn á Hólum gekk í vikunni
frá sölu á gæðingshryssunni Þrift frá
Hólum. Um er að ræða eina af hæst
dæmdu hryssum landsins með 8,62 í
aðaleinkunn kynbótadóms, þar af
8,81 fyrir sköpulag og 8,50 fyrir
hæfileika. Kaupandi samkvæmt
Worldfeng, ættbók íslenska hests-
ins, er Höfðaströnd ehf., sem er í
eigu Steinunnar Jónsdóttur og
Finns Reyrs Stefánssonar. Heimild-
ir blaðsins herma þó að kaupendur
séu tveir að hryssunni og kaupverðið
hafi verið rúmar 25 milljónir króna.
Þrift er átta vetra gömul og gríð-
arlega vel ættuð, undan Þrennu frá
Hólum og Adam frá Ásmundarstöð-
um. Þrenna var undan Feyki frá
Hafsteinsstöðum og Þrá frá Hólum
sem var undan Þernu frá Kolkuósi
og Þætti frá Kirkjubæ. Samkvæmt
heimildum verður Þrift áfram í
Skagafirði og var seld með fyli við
Arði frá Brautarholti.
Söluandvirði hryssunnar rennur
inn í rekstur Háskólans á Hólum,
sem oft á tíðum hefur verið erfiður.
Hryssa seld á 25 milljónir
Þrift ein sú hæst dæmda á landinu Tveir kaupendur
„Þetta er gríð-
arlegt tjón og
tekjuhliðin alveg
farin þetta árið,“
segir Guð-
mundur Jónsson,
sauðfjárbóndi í
Fagraneskoti í
Aðaldal, en hann
hefur líklega
misst um 120 fjár eftir veður-
áhlaupið í byrjun september sl.
Bændur á Norðurlandi hafa misst
nokkur þúsund fjár og er tjónið
meira en flestir reiknuðu með í
fyrstu. Mikill kostnaður er af leit-
arstarfinu, bæði olíukostnaður og
tapaðar vinnustundir. »6
Tekjuhlið bænda
farin þetta árið
„Það var fjórð-
ungs samdráttur
í veiði á milli ár-
anna 2010 og
2011, en samt var
veiðin svo góð að
menn sáu það
ekki. Þegar síðan
bætist við 39%
niðursveifla til
viðbótar milli ára eru menn komnir
í sársaukamörkin,“ segir Guðni
Guðbergsson fiskifræðingur á
Veiðimálastofnun. Hann segir að
búist hafi verið við niðursveiflu í
laxveiðinni í sumar en ekki jafn-
mikilli og raunin varð. »14
Niðursveiflan í lax-
veiðinni var 39%
Skammdegi og sleipar akbrautir eru nokkuð
sem vegfarendur á Íslandi þurfa að bregðast við
þessa dagana. Mikilvægt er að haga akstri eftir
aðstæðum og gæta þess að hjólbarðar, ljós og
annar búnaður ökutækja sé í góðu lagi.
Veðurstofan sagði að búast mætti við snörpum
vindhviðum við fjöll sunnanlands fyrripart dags-
ins. Spáð var austan 8-15 m/s vindi, hvössustu
við suðurströndina, og rigningu með köflum.
Skammdegið krefst aukinnar aðgæslu í umferðinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ökuljósin blika í bak og fyrir