Morgunblaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.10.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012 ✝ María Péturs-dóttir, hús- móðir í Vest- mannaeyjum, fæddist á Nes- kaupstað 8. nóv- ember 1923. Hún lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 4. október 2012. Foreldrar henn- ar voru Una Stef- anía Stefánsdóttir, f. 25.1. 1882, d. 17.11. 1950, og Pétur Pétursson, f. 13.11. 1874, d. 19.3. 1937. María var yngst fjórtán systkina, þrjú þeirra dóu ung en tólf systkini náðu fullorðinsaldri, með henni eru þau öll fallin frá. Systkini hennar voru: Sig- urbjörg, f. 1902, d. 1996. Jón, f. 1903, d. 1987. Ragnheiður, f. 1904, d. 1999. Sigurður, f. 1905, d. 1994. Sigríður, f. 1907, d. 1959. Eva, f. 1908, d. 2008. Margrét, f. 1911, d. 2002. Sveinbjörg, f. 1912, d. 2001. Þorgerður, f. 1913, d. 1997. Stefán, f. 1915, d. 1982. Guðný, f. 1917, d. 2009. María giftist Sveini Matt- híassyni frá Vestmannaeyjum, f. 14.8. 1918, d. 15.11. 1998. Foreldrar hans voru Þórunn Sigursteinsdóttir, f. 1956. Börn þeirra, Fríða Hrönn, f. 1980 og Ágúst, f. 1985. 6) Óm- ar, f. 1959, eiginkona Margrét Ó. Eyjólfsdóttir, f. 1946. 7) Cassandra C. Siff Sveinsdóttir, f. 1960, eiginmaður 1. Hjörtur R. Jónsson, f. 1959, d. 1984, sonur þeirra , Jón Bjarni Hjartarson 1981. Eiginmaður 2. Peter Skov Andersen, f. 1956, dóttir þeirra, Heidha Björk Andersen f. 2001. María bjó á Neskaupstað þar sem hún hóf ung störf sem vinnukona. Hún flutti sautján ára gömul til Vest- mannaeyja þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, Sveini Matthíassyni frá Byggðarenda. Bjuggu þau all- an sinn búskap í Vest- mannaeyjum að undanskildum nokkrum mánuðum í Heima- eyjargosinu 1973. María vann sem vinnukona fyrstu ár sín í Vestmannaeyjum en síðan sem húsmóðir. Hún vann mikið að félagsmálum og var félagi í Slysavarnadeildinni Eykyndli og Kvenfélagi Landakirkju. Hún söng í Kór Landakirkju til fjölda ára og var meðal stofnfélaga Félags eldriborg- ara í Vestmannaeyjum. Útför Maríu fer fram frá Landakirkju í dag, 13. októ- ber 2012, og hefst athöfnin kl. 11. Júlía Sveinsdóttir, f. 13.7. 1894, d. 20.5. 1962 og Matt- hías Gíslason, f. 14.6. 1893, d. 24.1. 1930. Börn Maríu og Sveins urðu: 1) Matthías, f. 1943, eiginkona Krist- jana Björnsdóttir, f. 1943. Synir þeirra, Sveinn, f. 1966, d. 2012 og Björn, f. 1978. 2) Óskírður Sveinsson, f. 22.11. 1946, d. 23.11. 1946. 3) Stefán Pétur, f. 1948, eiginkona 1. Henný Dröfn Ólafsdóttir, f. 1948, d. 2003, börn þeirra María, f. 1968. Aðalheiður, f. 1969. Sveinn, f. 1973, d. 1991. Erla Björg, f. 1977. Sigurður Freyr, f. 1984. Guðni Þór, f. 1988. Eiginkona 2. Matthildur Sveinsdóttir, f. 1956. 4) Sævar, f. 1953, sonur Halldór Jón, f. 1971, barnsmóðir Eyja Hall- dórsdóttir, f. 1954. Eiginkona 1. Svanhildur Sverrisdóttir, f. 1951, dætur þeirra Særún f. 1976, og Sandra, f. 1979. Eig- inkona 2. Hólmfríður Björns- dóttir, f. 1955, dóttir þeirra María Sif, f. 1994. 5) Halldór, f. 1956, eiginkona Guðbjörg H. Mig langar að minnast móður minnar Maríu Pétursdóttur sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 4. október síðastliðinn. Mamma var yngst barna foreldra sinna, Unu Stefaníu Pétursdóttur og Péturs Péturssonar en barnalán þeirra var mikið enda mamma fimmtánda barn þeirra hjóna, með henni eru þau nú öll fallin frá. Líf foreldra hennar hefur verið erfitt því þau voru vinnuhjú á Héraði og var það ákvörðun húsbænda þeirra hversu mörg börn þau gátu haft hjá sér, þess vegna þurftu þau að láta börn frá sér. Þau vildu reyna að auka lífs- gæði sín, stefnan var því tekin til Vesturheims en þegar þau voru komin á Seyðisfjörð var þeim lof- að gulli og grænum skógum. Þá settust þau að í Neskaupstað þar sem mamma fæddist í Garðs- horni sem faðir hennar hafði byggt en efndir loforðanna voru ekki eins og lofað hafði verið. Það var með mikilli hlýju og ást sem mamma minntist uppvaxtarár- anna í faðmi foreldra sinna, Guð- nýjar systur sinnar og Stefaníu, systurdóttur. Samkvæmt nú- tímaviðmiðum og eflaust þeirra líka þá voru þau fátæk en hún sagðist aldrei hafa fundið fyrir því. Mamma sagðist alltaf hafa ver- ið pabbastelpa þegar hún var lítil, minntist hún oft kirkjuferða með föður sínum sem barn og sagðist oft hafa sofið þar í fangi hans. Það er aðdáunarvert hversu sterk fjölskyldubönd þeirra systkina voru þrátt fyrir að börnin hafi dreifst. Mamma fluttist til Vest- mannaeyja 17 ára gömul, réð sig í vist í Varmadal, þar sem Margrét systir hennar og Eva bjuggu með eiginmönnum sínum. Þar kynnist hún pabba, Sveini Matthíassyni, upp frá því gengu þau og dönsuðu saman lífsins leið. Þau eignuðust sex drengi en einn þeirra misstu þau í frumbernsku, þau ættleiddu systurdóttur föður okkar, á fyrsta ári. Við vorum svo lánsöm að mamma var heimavinnandi húsmóðir og sinnti því hlutverki af mikilli kostgæfni og ást eins og öðru sem hún tók að sér. Það er einstakt lán að fá að alast upp í því umhverfi sem mamma og pabbi sköpuðu okkur. Ást þeirra hvors á öðru leyndi sér ekki og þau höfðu gaman af lífinu. Mamma hafði alla tíð mjög gam- an af að vera innan um fólk og sögðum við að partígenin í fjöl- skyldunni kæmu frá henni. Þá elskaði hún að ferðast hvort sem það var innan- eða utanlands. Mamma var einstaklega kær- leiksrík kona og átti auðvelt með að fyrirgefa, hún umgekkst alla af virðingu og lagði það ekki í vana sinn að tala illa um nokkurn mann. Ég held að með þessu móti hafi hún unnið sér virðingu þeirra sem henni kynntust. Einn góður vinur hennar sagði einu sinni við einn okkar bræðra að hann skildi nú ekkert í því hvernig hún, hálf- systir Jesú, gæti átt okkur bræð- ur, eins og við erum. Mamma átti við veikindi að stríða frá því að hún var barn og ágerðust þau þegar aldurinn fór að segja til sín en hún tók því eins og öðru með jafnaðargeði. Hún dvaldi síðustu ár sín á Hraunbúð- um þar sem hún undi hag sínum vel og var mjög þakklát fyrir þá umönnun sem starfsfólk veitti henni. Elsku mamma, þakk fyrir allt og allt, þín verður saknað. Halldór Sveinsson. Mig langar að kveðja tengda- móður mína, hana Maríu Péturs- dóttir frá Vestmannaeyjum. Hún var glæsileg kona með einstakt hjartalag, það stærsta hjarta sem ég hef kynnst, þar var rúm fyrir alla, smáa sem stóra, hún var allt- af jákvæð og glettin, hafði gaman af öllum gálga-húmornum frá strákunum sínum, englunum sín- um eins og hún kallaði þá, en Kristjan átti að geyma vængina á þá. Ég veit að það verður vel tek- ið á móti henni því hún var og er algjör engill. Verndi þig englar, elskan mín, þá augun fögru lykjast þín; líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt. Nei, nei það varla óhætt er englum að trúa fyrir þér; engill ert þú og englum þá of vel kann þig að lítast á. (Steingrímur Thorsteinsson) Góða ferð, elsku Maja mín. Kveðja Hólmfríður (Fríða). Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreyk- ir sér ekki upp. Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn. Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en sam- gleðst sannleikanum. Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. (Kor.1.1-13) Mig langar í fáum orðum að minnast tengdmóður minnar Maríu Pétursdóttur sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 4. október sl. Það er með hlýju og virðingu sem ég minnist hennar, en hún er sú allra besta mann- eskja sem ég hef kynnst á minni ævi. Þegar ég kem inn í líf Maju fyrir um það bil 40 árum var alltaf mikið að gera hjá henni, hún sá um heimilið af miklum myndar- skap á meðan Svenni var á sjó. Hún tók vel á móti öllum sem komu til hennar með miklum kærleika og hlýju, hver sem það var. En hjónaband þeirra Maju og Svenna er fallegasta samband sem ég hef séð, þegar þau litu hvort á annað þá varð ekki hjá því komist að sjá ástina sem þau báru hvort til annars. Þau höfðu mjög gaman af því að dansa og stund- um í gamla daga þegar Halldór var með vinina í kjallaranum og við þurftum að fara upp á loft þá voru Svenni og Maja að dansa gömlu dansana í stofunni á Brim- hólabrautinni. Maja fylgdist vel með öllum afkomendum sínum og þótti undurvænt um þá alla. Und- anfarið hef ég hitt marga vini hennar og mjög margir hafa sagt við mig að hún hafi verið besta manneskja sem þeir hafi hitt og tel ég að það sé vegna þess að hún sýndi öllum kærleika og virðingu hver sem það var, ef við fórum t.d. í verslun þá gat það tekið ansi langan tíma því hún hitti svo marga og varð að tala við alla. Þegar við fórum í bíltúr núna í vor í yndislegu veðri þá sagði hún við mig að hún væri svo þakklát að hafa komið til Vestmannaeyja, hvað henni fyndist Eyjan okkar vera falleg. Maja söng í mörg ár með kirkjukór Landakirkju og eign- aðist þar marga góða vini og gaf það henni mjög mikið. Maja var góð fyrirmynd fyrir alla, hún smakkaði ekki áfengi en fannst mjög gaman að skemmta sér í góðum félagsskap. Hún kom á setningu þjóðhátíðar 2012 með Sveini Matthíassyni barnabarni sínu en hann hafði lofað henni því og stóð við það. En lífið er und- arlegt, Sveinn varð bráðkvaddur kvöldið eftir og var það mikil sorg fyrir fjölskylduna alla. Maja hafði ekki tök á því að fara langa skóla- göngu en ég segi að hún hafi verið mikið lærð í skóla lífsins og sáði kærleika og hlýju til allra En hún var trúuð kona og eins og hún sagði um daginn þá er Guð kær- leikur. Guð blessi minningu Maríu Pétursdóttir. Þín tengdadóttir, Guðbjörg Hrönn Sigursteinsdóttir. Elsku amma mín. Mikið er erf- itt að kveðja þig. Ég minnist þess ekki að þú hafir nokkurn tímann óttast dauðann. Þegar við fórum út í það að ræða lífið og dauðann þá sagðir þú alltaf: „Ég trúi því bara ekki að við séum að lifa þessu lífi fyrir ekki neitt.“ Ég er sammála þér og trúi því að það góða bíði okkar þegar dvöl okkar hér er lokið. Þegar ég hugsa um þig þá fer ég til baka á Brimhólabrautina. Nóg að gera, þú með svuntuna og afi jafnvel líka ef hann var heima, besti matur í heimi á borðum. Allt vel soðið og alveg svakalega bragðgott. Enginn gerði betra kjöt í karrí, betri kæfu eða betri kjötsúpu en þú. Ég gæti talið endalaust upp og á toppnum er líka karmellukakan og skonsurn- ar þínar. Það var gott að koma við hjá ömmu og afa og fá sér að drekka þegar maður var búinn í sundi eða íþróttum. Amma Mæja hafði alltaf í mörgu að snúast. Þrátt fyrir það þá prjónaði hún og heklaði, bak- aði skonsur, gerði kæfu, tók slát- ur og sá til þess að allir í fjöl- skyldunni fengju næringu og yrði hlýtt á fótunum. Ekki má gleyma ullarsokkum sem hún átti á lager til þess að okkur yrði ekki kalt á tánum. Allir sem hafa orðið þess aðnjótandi að fá að kynnast ömmu minni vita það að hún var einstök manneskja sem átti ótæmandi kærleika og hlýju. Það var nóg pláss fyrir allan heiminn í hjarta hennar. Hún sýndi í verki hversu mikill mannvinur hún var og það skein af henni kærleikur- inn og hlýjan. Henni var annt um það fólk sem hún mætti á lífsleið- inni. Það var eitthvað innra með henni sem varð þess valdandi að hún dró fram það góða í hverri manneskju. Í hvert sinn sem maður fór frá ömmu þá fannst manni alltaf að maður skipti máli. Í öllum manneskjum sá hún að- eins það besta. Ég hef átt margar góðar stundir með ömmu sem eru nú fallegar minningar sem ég geymi vel. Amma og afi áttu mjög fal- legt ástarsamband, þau báru virðingu hvort fyrir öðru og á milli þeirra ríkti vinátta og vænt- María Pétursdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma mín. Ég elska þig svo heitt. Ég hitti þig áðan og þú varst mjög sæt. Þú ert örugglega að dansa við Svenna afa. Æ, amma, hvar ertu? Æ, ansaðu mér. Því ég er að gráta og kalla eftir þér. Fórstu út úr bænum eða fórstu út á haf? Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað? (Höf. ók.) Kveðja, Guðbjörg Sól. Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 - 691 0919 athofn@athofn.is - Akralandi 1 - 108 Reykjavík VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann www.kvedja.is Nyútfararstofa byggð á traustum grunni ´ ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR ÁSGEIRS KRISTJÁNSSONAR Grandavegi 47, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 12G, Landspítalanum, og líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir góða umönnun. Erna Jensdóttir, Rafn Sigurðsson, Suzanne Sigurðsson, Sigurður Þór Sigurðsson, Hjördís Bergsdóttir, Jens Pétur Sigurðsson, Patrica Sequra Valdes, barnabörn og langafabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓMARS HAFLIÐASONAR bifreiðastjóra, Húsalind 2, Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Jakobsdóttir, Jóhann Ómarsson, Fríða Björk Sveinsdóttir, Linda Björk Ómarsdóttir, Tryggvi Þór Gunnarsson, Hafliði Hörður Ómarsson, Heiðbjört Unnur Gylfadóttir og afabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður og afa, STEINDÓRS HJÖRLEIFSSONAR leikara. Ragnheiður Steindórsdóttir, Jón Þórisson, Steindór Grétar Jónsson, Margrét Dórothea Jónsdóttir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.