Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2012 J ólasýningar Þjóðleikhússins og Borgarleikhússins í ár eru klassísk verk eftir Steinbeck og Shakespeare. Annarsvegar blóðugt drama frá 20. öld og hinsvegar al- blóðugt drama frá 16. öld. Mýs og menn gerist í kreppunni í Bandaríkjunum og Macbeth í valdabaráttu skoska konungsrík- isins. Aðalhlutverk verkanna eru í höndum karla en stór og áhrifa- mikil hlutverk í báðum eru í höndum kvenna. Margrét Vil- hjálmsdóttir leikur lafði Macbeth í Þjóðleikhúsinu og Álfrún Örn- ólfsdóttir leikur konu Curleys í Borgarleikhúsinu. Skráð í stjörnurnar Fyrst liggur beinast við að spyrja hversvegna í ósköpunum þær völdu sér ekki frekar banka- stjóradjobb eða sjóarastarf heldur en að vera í þessu leiklist- arstússi? Álfrún: „Guð minn góður. Hjá mér var það bara skráð í stjörn- urnar.“ Margrét: „Það er svo mikil leik- list í hennar fjölskyldu en það eða eitthvert annað starf. En hvert verkefni í leikhúsinu er eins og BA-nám. Þetta er svo mikil stúdía í kringum uppsetn- ingarnar, svo mikil rannsókn- arvinna.“ Álfrún: „Þess vegna fær maður ekki leið á þessu, það er alltaf ný og ný áskorun.“ Margrét: „Forvitni um hið mann- lega er stór hluti af því að manni finnst starfið svo skemmti- legt. Við höfum lagst í mikla rannsóknarvinnu vegna uppsetn- ingarinnar á Macbeth. Það er svo mikið í þessum verkum sem eru jólasýningarnar hjá Þjóðleik- húsinu og Borgarleikhúsinu, þetta eru félagsvísindi þess tíma, skáld sem eru á svipuðu kaliberi og taka á öllum þáttum mann- legs samfélags. Það er farið djúpt í mannskepnuna í þessum verkum, þetta eru ekki yfirborðs- verk.“ Drepa bara nógu marga Álfrún: „Það er mikil grimmd í báðum þessum verkum.“ Margrét: „Í pælingum okkar vor- um við fljótlega komin til Sýr- lands, maður trúir ekki að þetta var enginn leikari í minni. En það var mikið farið með mig í leikhús þegar ég var lítil og ég man heilu sýningarnar ennþá mjög skýrt. Ég flæktist bara inn í þetta strax þegar ég var mjög ung, var alltaf í dansi, tónlist og leiklist.“ Álfrún: „Maður verður háður skapandi vinnu ef maður kynnist henni snemma. Á mennta- skólaárunum reyndi ég að fara í aðra átt. Vildi halda öllum mögu- leikum opnum og ætlaði ekki að útiloka nám í lögfræði eða jafnvel líffræði eða einhverju svona aka- demísku, þetta voru fræði sem fólk kaus sér að stúdera og kannski væri það eitthvað fyrir mig. Þetta voru samt svo ókann- aðar lendur og í raun vissi ég ekkert hvað myndi höfða til mín eða henta mér að leggja fyrir mig nema sviðslistir. Ég þekkti leikhúsið og fann að þar átti ég heima, leiklistin höfðaði svo sterkt til mín strax að það lá beint við að verða leikkona.“ Mikil rannsóknarvinna Margrét: „Það blundar alltaf í leikurum að fara í eitthvert nám Margrét og Álfrún eru aðalleikonurnar í jólaleikritum stóru leikhúsanna en bæði verkin lýsa hörðum og grimmum heimi. Annarsvegar er sagt frá blóðugri valdabaráttu í skoska konungsríkinu og hinsvegar hörku Háðar skapandi vinnu TVÖ AÐALKVENHLUTVERKIN Í JÓLASÝNINGUM STÓRU LEIKHÚSANNA ERU Í HÖNDUM ÞEKKTRA LEIKKVENNA SEM ÞEKKJAST FRÁ ÞVÍ ÞÆR VORU LITLAR. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.