Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 39
30.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Slökkvilið höfuborgasvæðisins Munið að slökkva á kertunum Látið kerti aldrei loga innanhúss án eftirlits Hverfisgötu 52 • 101 Reykjavík • Sími 561 0075 • sjadu@sjadu.is Horni Hverfisgötu og Vatnsstígs E itt af uppáhaldstímaritunum mínum, How to spend it, sem er fylgirit Financial Times, birti áhugaverða grein á dögunum um hlutverk stílista í viðskiptalífinu. Þar var rætt við fjóra ein- staklinga sem voru sannfærðir um að það að vera með stílista, sem ráðlagði þeim við fataval, gæti gert kraftaverk og hjálpaði þeim að athafna sig í störfum sínum. Stílistinn gæti afstýrt stórslysum þegar kemur að fatakaupum og leitt skjólstæðing sinn inn á réttar brautir án þess að það yrði of augljóst. Í greininni kom fram að í dag þætti sjálfsagt hjá þeim hópi sem vill skara framúr að vera með sinn eigin stílista og það væri gert ráð fyrir því í bókhaldinu. Með því að vera með stílista er hægt að spara mikinn tíma því stílistinn fer yfir fata- skápinn og þótt hann flytji ekki heim til fólks er hann búinn að leggja línurnar og því þarf viðkomandi ekki að eyða allt of miklum tíma í að finna viðeigandi klæðnað fyrir daginn. Stíl- istinn getur aukið sjálfstraust viðkomandi því þegar fólki líður vel í fötunum sem það klæð- ist verður það ánægðara með sig og þar með mun líklegra til stórverka í vinnunni. Þótt auðvelt sé að flokka klæðaburð og fata- kaup sem hreinræktað pjatt skiptir þetta í al- vöru máli. Þegar við hittum fólk í fyrsta skipti er klæðaburður yfirleitt það fyrsta sem við tökum eftir. Þess vegna skiptir máli að klæða- burðurinn sé í samræmi við það sem þú stendur fyrir. Oft lendum við í ógöngum þegar kemur að fatakaupum. Við erum kannski að reyna að komast upp úr ákveðnum hjólförum í eigin stíl sem er kannski ekki að virka. Þær sem eru mikið í svörtu eiga það til að kaupa sér glað- legar skyrtur í munstruðum efnum en í raun- inni er það alger peningasóum því viðkomandi fer aldrei í þessar skyrtur. Þá er betra að spara peningana en að eiga fullan skáp af flíkum sem aldrei eru notaðar. Hérlendis hefur hlutverk stílistans verið feimnismál og nokkuð sem fólk hefur ekki rætt mikið um opinberlega. Það hefur helst borið á góma ef viðkomandi er „gómaður“ eins og gerðist fyrir nokkrum árum á einu dagblaðinu. Þá voru myndir af frambjóðendum í kosningum klippt- ar saman, fyrir og eftir. Þá mátti sjá hvernig búið var að grenna og „pimpa“ ákveðna menn upp, mála yfir bauga og fótosjoppa fyrir allan peninginn. Og stundum verður fótósjoppið svo mikið að maður þekkir fólk hreinlega ekki úti á götu ef það er í sinni venjulegu múnderingu. Og ef það væri meiri hefð fyrir vinnu stílista þyrfti heldur ekki að reka ráðherra úr lopapeysunum í þingsal. martamaria@mbl.is Skyrta frá Karen Millen sem er eiguleg. Ragna Árnadóttir setti svip á þingið þegar hún var ráðherra. Hér er hún í skyrtu frá By Malene Birger sem vakti athygli. Stílistinn er lög- mætt viðskiptatól Tísku- bloggarinn Columbine Smille er smart til fara. Peysa frá Baum und Pferdgarten, fæst í Ilse Jacobsen. Buxna- drakt frá Filippu K. Fæst í GK.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.