Morgunblaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2013
þingmanns Samfylkingarinnar sem
stýrt hefur umræðum um tillögurnar
í nefndinni, gerði nefndin breytingu
á tillögu í frumvarpi Árna Páls um
breytingu á breytingarákvæði
stjórnarskrárinnar.
„Frumvarpið gerði ráð fyrir sam-
þykki 3/5 hluta á þingi og 3/5 hluta á
meðal þjóðarinnar. Við hinsvegar
tókum það breytingarákvæði sem
fulltrúar allra stjórnmálaflokka voru
sammála um árið 2007 og Sjálfstæð-
isflokkurinn gerði svo að sínu árið
2009, sem kveður á um að 2/3 hlutar
þings verði að samþykkja stjórnar-
skrárbreytingu og einungis einfald-
ur meirihluti þjóðarinnar, þ.e. 50%
hennar, þó þannig að 25% þeirra sem
eru á kjörskrá þurfi að samþykkja
breytinguna,“ segir Magnús Orri,
spurður um breytinguna.
Þá bendir Magnús Orri á að mál-
inu verði dreift á meðal þingmanna í
dag en hann viti ekki hvenær það
verði tekið á dagskrá þingsins.
„Ég held að væntingar ríkisstjórn-
arinnar um það hversu mörg mál
verður hægt að klára hér á þessum
síðustu dögum séu alveg ótengdar
raunveruleikanum,“ segir Illugi
Gunnarsson, þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins, og bendir á að
sjálfstæðismenn bíði eftir því að rík-
isstjórnin taki ákvörðun um hvaða
mál hún vilji leggja áherslu á að
klára.
Morgunblaðið/Golli
Þingslit Ekki liggur fyrir hvenær störfum Alþingis mun ljúka, en skv. dagskrá þingsins áttu þingslit að vera í dag.
Óvissa um þingslit
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir ljóst að þing-
störfum ljúki ekki í dag Fjöldi stórra mála bíður afgreiðslu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Nefndin flutti á laugardaginn var
og gerði að lögum mál sem laut að
sólarlagsákvæði haftanna, og því
með hvaða hætti eigi að standa að
ákvörðunum um stærri undanþágur
eins og í tilfellum stærri þrota-
búanna. Síðan er þetta mál í fram-
haldinu sem ráðherrann mælti fyrir
um á miðvikudaginn og það lýtur
fyrst og fremst að þrennu efnislega,“
segir Helgi Hjörvar, formaður efna-
hags- og viðskiptanefndar, um frum-
varp vegna gjaldeyrishafta.
„Þar ber fyrst að nefna ívilnandi
ákvarðanir um ýmis viðmið, t.d.
hækkun á framfærsluviðmiði Íslend-
inga erlendis og aukna möguleika
fyrirtækja á erlendri lántöku. Það er
síðan hnykkt á eftirlitsheimildum og
upplýsingaöflun Seðlabankans til að
fylgjast með framkvæmd haftanna.
Síðan er verið að styrkja stjórn-
valdssektir sem úrræði. Hámarks-
sektir á einstaklinga sem brjóta lög-
in fara úr 20 milljónum króna í 65
milljónir og á fyrirtæki úr 75 millj-
ónum í 250 milljónir,“ segir Helgi.
Að stofni til sama frumvarpið
Frumvarpið sem lagt var fram til
1. umræðu í fyrradag er í megin-
dráttum sama frumvarp og sent var
aftur til efnahags- og viðskipta-
nefndar í apríl í fyrra, áður en það
átti að fara í 2. umræðu. Lágu nefnd-
arálit og breytingarálit þá fyrir.
Tryggvi Þór Herbertsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir að
í frumvarpinu hafi verið komið til
móts við gagnrýni sjálfstæðismanna
á fyrri stigum sem lutu að
persónuverndarsjónarmiðum.
„Með frumvarpinu er Seðlabank-
anum veittar auknar eftirlitsheimild-
ir. Bankann hefur skort ákveðnar
heimildir til að fylgjast með gjald-
eyrisviðskiptum. Aðalatriðið í þessu
er að mínu mati að flutningur á vöxt-
um, arði og verðbótum og höfuð-
stólsgreiðslum úr landi fer nú undir
undanþáguheimildir Seðlabankans.
Á tæknimáli fjallar þetta um afla-
ndskrónur sem eru fastar hérna inni.
Með breytingunum er gert mögulegt
að færa þær af svonefndum 26-
reikningum yfir á 27-reikninga. Það
skapar Seðlabankanum svigrúm til
aukins eftirlits,“ segir Tryggvi Þór
sem telur skuldabréfamarkaðinn
hafa ofmetið áhrif þessara breytinga
á miðvikudaginn, þegar markaður-
inn titraði.
Seðlabankinn
fær auknar
eftirlitsheimildir
Sektir við gjaldeyrisbrotum hækka
Helgi
Hjörvar
Tryggvi Þór
Herbertsson
„Það hefur greinilega ekki verið tekið tillit til gagnrýni
á frumvarpið. Deila má um upphæð sekta vegna brota
á lögum um gjaldeyrishöft en það sem er sýnu alvar-
legra er að ég fæ ekki séð með góðu móti hvernig
stjórnarskrárvarinn réttur einstaklinga sé varinn eða
tryggður verði frumvarpið samþykkt. Þarna er að
mínu viti verið að leggja til breytingar sem samrýmast
ekki þeim grundvallarreglum sem gilda í okkar sam-
félagi. Það er að mínu mati gríðarlega mikil ákvörðun
og sérstök ef Alþingi samþykkir frumvarpið óbreytt,“
segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar. „Við gagnrýndum sams-
konar ákvæði eins og nú er lagt upp með þegar málið var lagt fyrir þingið
fyrir tæpu ári. Nú er áfram gert ráð fyrir að heimildir Seðlabankans til að
afla upplýsinga vegna eftirlits með að gjaldeyrislögum sé fylgt verði þær
sömu og við rannsóknir vegna meintra brota á ákvæðum laga. Við í Kaup-
höllinni getum ekki séð neitt sem kallar á slíkar heimildir. Við erum á
hættulegri braut ef við gerum þetta að fordæmi.“
„Við erum á hættulegri braut“
VIÐHORF FORSTJÓRA KAUPHALLARINNAR
Páll Harðarson
arolje
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
Pöntunarsímar 698 7999 og 699 7887
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera á
sterum án árangus. Reynt var að
skipta um fæði sem bar heldur ekki
árangur. Eina sem hefur dugað
er Polarolje fyrir hunda. Eftir að
hann byrjaði að taka Polarolje
fyrir hunda hefur heilsa hans tekið
stakkaskiptum. Einkennin eru horfin
og hann er laus við kláðann og
feldurinn orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
„Ég er búin að setja þetta fram
og vona að vilji þingsins fái að
koma í ljós,“ segir Margrét
Tryggvadóttir, þingmaður Hreyf-
ingarinnar, en hún lagði í gær
fram breytingartillögu við frum-
varp Árna Páls Árnasonar um
stjórnarskrárbreytingar. Tillaga
Margrétar gerir ráð fyrir að
stjórnarskrárfrumvarpið, sem
byggist á tillögum stjórnlagaráðs,
verði samþykkt í heild sinni.
„Málið liggur fyrir annars stað-
ar og ég er algjörlega sammála
Magnúsi um að
það er lang-
eðlilegast að
klára það þar,“
segir Margrét,
spurð út í orð
Magnúsar Orra
Schram, þing-
manns Samfylk-
ingarinnar, á
mbl.is í gær um að stjórnar-
skránni væri ekki sýnd mikil virð-
ing með afgreiðslu af þessu tagi.
Vonar að vilji þingsins komi í ljós
MARGRÉT TRYGGVADÓTTIR LEGGUR FRAM BREYTINGARTILLÖGU
Margrét
Tryggvadóttir
„Þetta kom mér á óvart. Ég bjóst við
að verða annar,“ segir Ólafur Guð-
björn Skúlason, nýkjörinn formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga. Mjótt var á munum en einungis
eitt atkvæði skildi á milli hans og
Vigdísar Hallgrímsdóttur. Ólafur
tekur við formennsku af Elsu B.
Friðfinnsdóttur á aðfundi félagsins
3. maí.
Karlmönnum innan félagsins fer
ört fjölgandi. Ólafur taldi að innan
við 5% væru karlkyns en var þó ekki
með tölurnar á takteinum. „Ég vil ná
ákveðnu jafnræði í launum á milli
hjúkrunarfræðinga og annarra há-
skólamenntaðra stétta hjá ríkinu.
Þetta hefur verið
mitt helsta bar-
áttumál. Einnig
þykir mér mikil-
vægt að standa
vörð um hjúkr-
unarstarfið og
það sem hjúkr-
unarfræði stend-
ur fyrir,“ segir
Ólafur um helstu
áherslumál sín í
þágu félagsins.
Ólafur segist vera sáttur með nýj-
an stofnanasamning LSH sem
hjúkrunarfræðingar undirrituðu ný-
verið. „Farið var eins langt og hægt
var í þetta skipti, framundan er
vinna að gerð nýs kjarasamnings
fyrir hjúkrunarfræðinga og munum
við takast á við það,“ segir Ólafur.
Hann hlakkar til að sinna þessu
viðamikla og skemmtilega starfi.
Ólafur útskrifaðist sem hjúkr-
unarfræðingur árið 2006 og hefur
starfað sem slíkur síðan. Árið 2012
lauk hann framhaldsnámi í skurð-
hjúkrun.
Sex buðu sig fram til formennsku.
Ólafur hlaut 29,86% atkvæða eða alls
565 atkvæði en Vigdís hlaut 564 at-
kvæði eða 29,81%. Á kjörskrá voru
3.689. Atkvæði greiddu 1.892 eða
51,29%. thorunn@mbl.is
Ólafur nýr formaður
Félags hjúkrunarfræðinga
Munaði einu atkvæði Vill ná jafnræði í launum
Ólafur Guðbjörn
Skúlason
BAKSVIÐ
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Ekki liggur enn ljóst fyrir hvenær
þingstörfum lýkur þrátt fyrir að
dagskrá Alþingis geri ráð fyrir því að
þeim ljúki í dag. Enn er eftir að af-
greiða fjölda stórra mála og má þar
helst nefna stjórnarskrármálið,
heildarlög um náttúruvernd, heild-
arlög um almannatryggingar og lög
um stjórn fiskveiða.
Þá bættust allnokkur mál við
verkefnastafla þingsins í gær, þ. á m.
fjögur stjórnarfrumvarp. Um er að
ræða frumvarp um vísindarannsókn-
ir á heilbrigðissviði, frumvarp um
breytingar á lögum um framhalds-
skóla, frumvarp um meðhöndlun úr-
gangs og frumvarp um breytingar á
tekjuskattslögum.
Formenn og þingflokksformenn
Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna funduðu um stöðu þingsins í
gærkvöldi. „Ég held að það sé alveg
ljóst að þeim lýkur ekki á morgun [í
dag],“ sagði Oddný G. Harðardóttir,
þingflokksformaður Samfylkingar-
innar, í gærkvöldi aðspurð hvenær
störfum þingsins muni ljúka.
Tillögur Árna Páls afgreiddar
Tillögur Árna Páls Árnasonar,
formanns Samfylkingarinnar, um
breytingar á stjórnarskránni voru
afgreiddar úr stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd Alþingis í gærkvöldi.
Að sögn Magnúsar Orra Schram,