Morgunblaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2013
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
Verkið gerist í litlum bæþar sem dreki hefurstjórnað öllu í 400 ár. Þaðer hefð fyrir því að á
hverju ári fórnar síðan bærinn
einni stelpu fyrir drekann þar til
einn góðan veðurdag mætir hetjan
Lancelot á svæðið. Þetta er hetja
sem vinnur við að bjarga málunum
og ætlar að redda þessum bæ líka,“
segir Stefán Gunnar Sigurðsson
sem fer með hlutverk bæjar-
stjórans í sýningunni.
„Það sem Lancelot býst síðan
kannski ekki við er að þegar hann
kemur í bæinn vilja ekkert endilega
allir að hann hjálpi bæjarbúum.
Þeim finnst ástandið bara eðlilegt
og hann eiginlega svolítið klikkaður
að vilja bjarga þeim,“ bætir Embla
Huld Þorleifsdóttir við en hún fer
með hlutverk Elsu, stelpu sem á að
fórna. Stefán segir að í hlutverki
sínu sem bæjarstjórinn og und-
irmaður drekans hafi hann áttað sig
á því að það sé örugglega ekki
mjög auðvelt að vera undirmaður
einræðisherra.
Ung að árum en
reynslumikil
Þau Stefán og Embla eru langt
frá því að vera nýgræðingar í leik-
listinni þó að þau séu ung að árum.
Embla var í námi í söng- og leiklist
í átta ár, starfaði hjá Leikfélagi
Mosfellssveitar og tók þátt í upp-
færslu Fúríu á Frankenstein síðast-
liðinn vetur. Stefán er nú á sínu síð-
asta ári í Kvennaskólanum og hefur
leikið í skólasýningum öll fjögur ár-
in og tók einnig þátt í skólasýn-
ingum í Hagaskóla þegar hann var
þar. Á meðan Embla á sér draum
um að feta veg leiklistarinnar er
Stefán ekki alveg búinn að ákveða
sig og stefnir á háskólanám í haust.
Á jafn vel við í dag
og fyrir 60 árum
Stefán segir uppsetninguna í
ár vera frekar frábrugðna uppsetn-
ingum síðustu ára þar sem ádeilan
á samfélagið er svo rík í Drekanum.
„Fyrir tveimur árum voru allir svo
uppteknir af hruninu og okkur þótti
Vekja ungt fólk
til umhugsunar
Fúría, leikfélag Kvennaskólans í Reykjavík, setur árlega upp metnaðarfullar leik-
sýningar og í ár er það Drekinn eftir Évgéní Schwartz í leikstjórn Benedikts Karls
Gröndal. Þau Embla Huld Þorleifsdóttir og Stefán Gunnar Sigurðsson fara með
stór hlutverk í sýningunni en þau eru þakklát fyrir að fá að taka þátt í uppsetn-
ingu sem fær fólk til að hugsa og segja verkið eiga vel við í dag.
Morgunblaðið/Ómar
Leiklist Stefán í hlutverki hins ógnandi bæjarstjóra og Embla í hlutverki
hinnar óttaslegnu Elsu sem skal fórnað á altari drekans.
Gleði Leikstjórinn bregður á leik með þeim Emblu og Stefáni.
HönnunarMars fór
af stað í gær og
stendur alla helgina
og því er um að
gera að njóta alls
þess sem boðið er
upp á. Yfir hundrað
viðburðir eru í boði,
sýningar, fyrir-
lestrar, innsetningar
hönnuða og fleira. Á
vefsíðunni
honnunarmars.is er
hægt að nálgast
dagskrána í heild
sinni og um að gera
að hver og einn velji
að sjá það sem
höfði til hans.
Flokkarnir eru marg-
ir, bíó og tónleikar,
húsgagnahönnun,
fatahönnun, skart-
gripahönnun, arki-
tektúr, grafísk hönnun, keramik,
upplifunarhönnun, myndskreytingar,
textílhönnun og ótal margt fleira.
Til dæmis er í Norræna húsinu afar
áhugaverð samsýning á einstöku
finnsku og íslensku nútímaskarti.
Sýning þessi er innblásin af villtri
náttúru og kennir þar margra grasa.
Vefsíðan www.honnunarmars.is
Hönnun í allri sinni dýrð
Láð og lögur Hér má sjá brot af því sem er í boði á
skartgripasýningunni í Norræna húsinu.
Enginn má missa af geðveikinni í
kvöld, þegar haldnir verða geðveikir
tónleikar á KEX-hosteli til styrktar
Geðhjálp. Fjörið byrjar kl. 20:30 og
kostar litlar 1.500 krónur inn.
Tónlistarfólkið sem fram kemur er
ekki af verri endanum: Robert The
Roommate, Ylja og Ultra Mega
Technobandið Stefán.
Nú er lag að sýna lit og styrkja
Geðhjálp! Fólk er hvatt til að mæta
snemma, því húsinu verður lokað
klukkan 23. Geðhjálp eru hagsmuna-
samtök sem ætlað er að gæta hags-
muna þeirra sem eiga við geðræn
vandamál að stríða og aðstandenda
þeirra. Samtökin eru til húsa í fallegu
húsi við Túngötu og miðar dagleg
starfsemi hússins að því að gefa
gestum tækifæri til að rjúfa félags-
lega einangrun og njóta fræðslu og
stuðnings. Geðhjálp er háð stuðningi
einstaklinga, félaga og fyrirtækja til
að viðhalda starfsemi hússins.
Heimasíða Geðhjálpar:
www.gedhjalp.is.
Endilega …
… farið á geðveika tónleika
Ljósmynd/Marinó Thorlacius
Ylja Guðný Gígja Skjaldardóttir, Smári Tarfur Jósepsson og Bjartey Sveins-
dóttir eru meðal þess tónlistarfólks sem fram kemur á tónleikunum í kvöld.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Samfélagslegt hlutverk og rekstrarumhverfi
– opinn kynningarfundur Landsnets
Dagskrá:
Samfélagslegt hlutverk
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður
Landsnets.
Öruggur rekstur og umhverfi
Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets.
Hver er ávinningur trausts flutningskerfis?
Guðmundi Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri
Landsnets.
Er veðurfar að breytast?
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur.
Fundarstjóri:
Þorgeir J. Andrésson, skrifstofustjóri Landsnets.
Landsnet býður til kynningarfundar um samfélagslegt
hlutverk og rekstrarumhverfi fyrirtækisins á
Hilton Reykjavík Nordica, 2. hæð (salur H-I),
þriðjudaginn 19. mars kl. 9:00-12:00.
Boðið er upp ámorgunhressingu frá kl. 8:30.
Skráning á kynningarfundinn fer fram á heimasíðu Landsnets,
www.landsnet.is eða í síma 563 9430.
Allir velkomnir!