Morgunblaðið - 15.03.2013, Síða 22
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2013
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
„Það er vert að nefna að embætti
Sérstaks saksóknara hefur óskað
eftir að hlera síma sakbornings rétt
á undan og rétt eftir fyrirhugaða
yfirheyrslu sakborningsins. Þetta er
gert þótt mörg ár séu liðin frá þeim
atvikum sem eru til rannsóknar. Á
þeim tíma er einmitt líklegast að
sakborningur eigi viðkvæm og þýð-
ingarmikil samskipti við verjanda
sinn,“ sagði Reimar Pétursson,
hæstaréttarlögmaður og fram-
sögumaður á fundi Lögmannafélags
Íslands um trúnaðarsamband verj-
enda og sakborninga í gær.
„Héraðsdómarar og
Hæstiréttur hafa hins vegar ekki
gert athugasemdir við þetta. Þetta
er mikið áhyggjuefni. Þessum sam-
skiptum á að eyða án tafar, en nokk-
ur brögð eru á að það sé ekki gert,“
bætti hann við.
„Trúnaðarsamband lögmanna
og skjólstæðinga er mikilvægt, ekki
bara í samskiptum þeirra heldur fyr-
ir þjóðfélagið í heild. Rökin sem
mæla með trúnaði lögmanna eru þau
að umræður sem fara fram í full-
komnum trúnaði verða hreinskiptari
en ella. Hreinskiptar umræður eru
sérstaklega mikilvægar. Þær eru
forsendur fullnægjandi málatilbún-
aðar fyrir dómi, en það er forenda
þess að réttur dómur verði lagður á
mál. Að sama skapi er trúnaðurinn
forsenda þess að menn leiti sér góðr-
ar lögfræðilegrar ráðgjafar,“ sagði
Reimar.
Engir sjálfstæðir dómstólar
án óháðra lögmanna
Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður flutti einnig erindi á
fundinum og tók í sama streng.
„Ég lít svo á að trúnaðarskylda
lögmanns gagnvart skjólstæðingi
sínum sé mikilvægur þáttur í sjálf-
stæði lögmannastéttarinnar. Þetta
má orða með ýmsum hætti en
Arthur Chaskalson, einn verjenda
Nelson Mandela og einn helsti höf-
unda stjórnarskrár Suður-Afríku,
vitnaði í ræðu í nóvember í fyrra til
orða æðsta dómara í Nýja-Sjálandi
sem sagði að viðunandi dóms-
niðurstaða hjá sjálfstæðum dóm-
stólum væri ómöguleg án sjálf-
stæðra lögmanna,“ sagði Ragnar.
„Allt frá lokum seinni heims-
styrjaldarinnar höfum við byggt á
hugmyndum um réttarríki og mann-
réttindi. Stjórnarskrá Íslands trygg-
ir aðgang allra að sjálfstæðum og
óvilhöllum dómstólum. Dómstól-
arnir grafa hins vegar undan stöðu
sinni sem sjálfstæðir dómstólar ef
þeir gera sér ekki grein fyrir því að
tilvist þeirra og árangur í störfum er
algjörlega háður því að til sé í land-
inu sjálfstæð lögmannastétt,“ sagði
Ragnar.
„Dómur Hæstaréttar frá 29.
maí 2012, þar sem skattayfirvöldum
var veittur ótakmarkaður aðgangur
að gögnum lögmanns um skjólstæð-
inga hans, lýsti algjöru skilnings-
leysi dómstóla á hlutverki lög-
mannastéttarinnar. Mikilvægi
stéttarinnar hefur ekkert með per-
sónulegt mikilvægi lögmanna að
gera, heldur mikilvægi stéttarinnar
fyrir þjóðfélagið að til sé sjálfstæð
lögmannastétt sem fólk getur leitað
til. Þetta þarf fólk að geta gert vit-
andi að stjórnvöld muni ekki hafa af-
skipti eða eftirlit með þessum sam-
skiptum.“
Ragnar benti einnig á að lög um
trúnaðarskyldu lögmanna væru mis-
vísandi. Á einum stað væri algjör
þagnarskylda lögð á lögmenn, en á
öðrum refsing fyrir að greina ekki
frá tilteknum atvikum.
„Þeir sem meta almannahags-
muni frá öðrum sjónarhornum en
lögmenn, eins og til dæmis skatt-
yfirvöld, virðast heldur ekki hafa
skilning á hlutverki lögmanna og
kröfu réttarríkisins um sjálfstæða
lögmannastétt. Ég þekki dæmi þess
að skattyfirvöld tóku til rannsóknar
lögmannsstofu sem neitaði að veita
upplýsingar um skjólstæðinga sína.
Þannig komust þau í tímaskýrslur
lögmanna stofunnar og gátu séð
mjög ítarlegar upplýsingar um sam-
skipti lögmanns og skjólstæðings út
úr þeim,“ sagði Ragnar.
Að lokum lagði Ragnar áherslu
á mikilvægi þess að halda því á lofti
að trúnaðarskylda lögmanna varðaði
ekki bara lögmenn og skjólstæðinga
heldur samfélagið allt, réttarríkið og
sjálfstæði dómstóla.
Lögmaður og skjólstæðingur
renna saman í eitt
Jón Steinar Gunnlaugsson,
fyrrverandi hæstaréttardómari, var
meðal fundargesta. Hann taldi aðal-
ástæðu þess hve lítill skilningur
dómstóla væri á réttarstöðu lög-
fræðinga að í Hæstarétti sætu allt of
fáir lögfræðingar sem hefðu starfað
sem lögmenn.
„Ég hef stundum hugsað þetta
trúnaðarsamband þannig, að ástæða
þess að menn fá sér lögmann er sú
að þeir hafa ekki sjálfir þá þekkingu
á lögum sem þeir eiga rétt á að hafa
til að geta neytt réttar síns. Undir
þessum formerkjum renna aðilinn
og lögmaðurinn því saman í eitt, og
hugsunin á að vera sú að rannsak-
endur eigi ekki að geta krafist upp-
lýsinga um samskipti þeirra,“ sagði
Jón Steinar.
Gestur Jónsson hæstaréttar-
lögmaður tók einnig til máls á fund-
inum. Hann fagnaði því að hægt
væri að ræða þetta viðfangsefni með
yfirveguðum hætti. Gestur tók jafn-
framt undir orð Ragnars um hlut-
verk lögmanna í réttarríkinu.
„Réttlætið sem við gerum kröfu
um byggist á því að máli allra sé tal-
að. Jafnvel sá aumasti og sá hroða-
legasti á að fá sínu máli talað fyrir
hlutlausum dómara,“ sagði Gestur.
„Umræða sem gengur út á að gera
starf þeirra manna lítið og ómerki-
legt er slæm.“
Skúli Magnússon héraðsdómari
tók einnig til máls og fagnaði því að
Lögmannafélagið boðaði til þessa
fundar. Hann sagðist taka ábending-
arnar sem fram hefðu komið alvar-
lega. „Þekking manna á réttarstöðu
sinni er algjörlega háð lögmanna-
stéttinni. Grunnkrafa réttarríkisins
um að lögin séu aðgengileg verður
ekki uppfyllt án stéttar sjálfstæðra
lögmanna og lögfræðinga. Ég held
að vandinn sé kannski ekki alveg sá
sem Jón Steinar benti á. Héraðs-
dómarar þurfa einfaldlega að standa
í lappirnar gagnvart rannsakendum.
Svo eru frekar of fáir lögmenn sem
starfa sem héraðsdómarar en í
Hæstarétti,“ sagði Skúli.
Hlerað rétt fyrir og
eftir yfirheyrslur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sjálfstæði Reimar Pétursson (að ofan) og Ragnar Aðalsteinsson fluttu erindi á fundi Lögmannafélagsins.
Lögmenn hafa áhyggjur af virðingarleysi fyrir trúnaði
lögmanna og verjenda Héraðsdómarar standi í lappirnar
Sjálfstæði lögmanna
» Sérstakur saksóknari
hlerar síma sakbornings fyrir
og eftir yfirheyrslu.
» Sjálfstæðir lögmenn
nauðsynlegir í réttarríki.
» Of fáir dómarar lögmenn
að mati fyrrverandi hæstarétt-
ardómara.
» Héraðsdómarar þurfa að
standa í lappirnar gagnvart
rannsakendum.
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Júní
01.06. Sveinstindur
08.06. Fimmvörðuháls: Fyrsta ferð af fimm
08.06. Þingvallaþjóðgarður
08.06. Skáldaganga: Í túninu heima
08.06. Vorganga Hornstrandafara
09.06. Hringferð: Hafnarfjall
13.06. Almannagjá endilöng Ferðafélag barnanna
14.06. Félagsferð í Hornbjargsvita
15.06. Toppahopp á Snæfellsnesi
17.06. Leggjabrjótur: Forn þjóðleið
19.06. Laugavegurinn: Fyrsta ferð af fjórum
21.06. Sumarsólstöðuganga á Botnsúlur
22.06. Árbókarferð um Norðausturland
22.06. Toppahopp í Vestmannaeyjum
23.06. Jónsmessa og jóga í Hlöðuvík
23.06. Háhitasvæði á Reykjanesskaga
24.06. Álfar og tröll á Jónsmessu Ferðafélag barnanna
25.06. Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði
26.06. Björg í bú: Látrabjarg-Rauðisandur-Hnjótur
27.06. Hornbjargsviti: Fyrsta ferð af fjórum
28.06. Vatnaleiðin
29.06. Háhitasvæði Mývatnssveitar og Öskju
30.06. Söguferð um Árneshrepp
Júlí
03.07. Laugavegurinn: Önnur ferð af fjórum
04.07. Náttúruperlur í Vestur-Skaftafellssýslu
05.07. Símahúsaferð um Haugsöræfi
06.07. Reykjanes: Úr borg í óbyggðir
06.07. Þverbrekknamúli-Hvítárvatn-Hvítárnes
07.07. Í tröllahöndum á Tröllaskaga
07.07. Um Jökulfirði og fjölvindahafsvíkur
07.07. Reykjarfjörður nyrðri
09.07. Grasaferð og galdralækningar Ferðafélag barnanna
10.07. Árbókarferð 2012 um Skagafjörð
10.07. Laugavegurinn með Ingimari og Pétri
11.07. Hornbjargsviti: Önnur ferð af fjórum
12.07. Undraheimar Eldhrauns og Hverfisfljóts
13.07. Saga, byggð og búseta
15.07. Umhverfis Langasjó
15.07. Á slóðum rekabænda
15.07. Sæludagar í Hlöðuvík
16.07. Þjórsárver: Náttúruperla á heimsvísu
17.07. Laugavegurinn: Þriðja ferð af fjórum
17.07. Hinn óeiginlegi Laugavegur
19.07. Fjölbragðaferð að Fjallabaki
20.07. FÍ Action Hraðferðir: Héðinsfjörður-Hvanndalir
22.07. Norður við fjölvindahaf
24.07. Kvennaferð um Laugaveginn
24.07. Fljót-Héðinsfjörður-Hvanndalir
25.07. Flakkað til Flæðareyrar
25.07. Fjölskylduferð í Norðurfirði
25.07. Friðland að Fjallabaki: Jökulgil og hverasvæði
25.07. Hornbjargsviti: Þriðja ferð af fjórum
28.07. Ratleikur og adrenalínklifur Ferðafélag barnanna
29.07. Klettaklifur í Lambafellsgjá Ferðafélag barnanna
29.07. Lónsöræfi
Sjá nánar um allar ferðir á www.fi.is
Ferðafélag Íslands
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 568 2533
eða í netpóst fi@fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Sumarferðir FÍ
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Fullbóka
ð
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus
Nokkur l
aus