Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 41

Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013 ✝ Tryggvi Ólafs-son fæddist á Vatnsskarðshólum í Mýrdal 7. desem- ber 1924. Hann andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Hjallatúni í Vík 5. mars 2013. Tryggvi var son- ur hjónanna Sig- urbjartar Sigríðar Jónsdóttur, f. 3. janúar 1894 í Reynisholti í Mýr- dal, d. 18. júní 1979 á Skeiðflöt, og Ólafs Grímssonar, f. 24. febrúar 1897 á Skeiðflöt, d. 13. nóvember 1943 á Skeiðflöt í Mýrdal. Bróðir Tryggva er Ey- þór, f. á Skeiðflöt 20. janúar 1936. Tryggvi ólst upp á Skeiðflöt og hlaut hefðbundna barna- skólamenntun ásamt veganesti góðra foreldra sinna. Hann starfaði alla tíð við bú- ið á Skeiðflöt, fyrst með for- eldrum sínum, en við fráfall föður síns árið 1943 tók hann við búforræði ásamt móður sinni og var síðar í félagsbúi með Eyþóri bróður sínum og fjölskyldu hans. Einnig kom hann að sjósókn, ásamt mörgum til- fallandi samvinnu- verkefnum eins og tíðkaðist til sveita. Tryggvi hafði mikinn áhuga á bú- skap og þótti vænt um sinn búpening sem hann sinnti jafnan af alúð. Hann var verk- laginn og vinnusamur og féll sjaldan verk úr hendi. Einnig var hann laghentur þegar kom að viðgerðum og smíðum og nýtti vel það efni sem til var hverju sinni. Tryggvi var mikill náttúruunnandi og sunnudag- arnir oftast notaðir til ferða- laga með börnin á heimilinu. Hann var veðurglöggur og spáði mikið í veður og tíðarfar. Síðustu æviár sín dvaldist hann á Hjallatúni í Vík. Tryggvi verður jarðsunginn frá Skeiðflatarkirkju í dag, 16. mars 2013, og hefst athöfnin klukkan 14. Það er aðfangadagskvöld, pakkarnir undir trénu heilla, en samt er mesti glansinn á stórum strigapokum. Innihaldið er eitt- hvað sem Tryggvi frændi var bú- inn að vera að bauka við í kjall- aranum á kvöldin og reynist vera forláta sleðar. Mikill var ákafinn, morguninn eftir, að bruna niður brekkurnar við bæinn, okkur krökkunum til mikillar gleði. Núna, áratugum seinna þegar við kveðjum okkar kæra föðurbróð- ur, er erfitt að koma að í fáum orðum öllum þeim góðu minning- um sem lifa með okkur. Rekandi félagsbú með Eyþóri og Huldu foreldrum okkar, seinna með Ey- þóri og Sæunni, og búandi undir sama þaki má segja að Tryggvi hafi frekar verið aukapabbi en frændi. Hlutverk sem hann sinnti af alúð og gagnkvæmri væntum- þykju. Á vorin í sauðburði var Tryggvi í essinu sínu, og voru það oft langir dagar hjá þeim bræðr- um. Hann hafði yndi af því að vasast í sauðfé og þekkti allar sínar kindur. Mikið var alltaf gaman að sjá hann tölta út á tún- ið, kalla, og hjörðin kom hlaup- andi til hans og fylgdi honum heim í fjárhús. Á sumrin voru dagarnir stundum lengi að líða þegar við röltum um túnið að raka dreifar, nokkuð sem okkur þótti tilgangslítið þá, en var ein- mitt gott dæmi um nýtni og hirðusemi þeirra bræðra. Svo þegar vetraði biðu nýskerptir skautarnir á snaganum. Tryggvi var þrælfimur á skautum og kom okkur á bragðið. Einn veturinn smíðaði hann skautasleða, setti á hann segl og svo var Dyrhólaós- inn tekinn á meiri ferðinni. Þótt áhugi Tryggva væri flestum stundum við bústörfin gaf hann sér samt tíma til að sinna öðrum hugðarefnum; spilamennsku, lestri góðra bóka og ferðalögum. Hann smíðaði dót handa okkur krökkunum ásamt öðrum hlutum sem að gagni máttu koma við bú- störfin. Ævintýralegasti smíðis- gripur Tryggva var vafalaust fleyta sem hann smíðaði úr timbri og stórum plastbrúsum. Fleki þessi, sem þótti æði glanna- legur, var sjósettur á lóninu fyrir neðan bæinn, en síðan á Dyrhóla- ós og hafði þá verið keyptur utan- borðsmótor á græjuna. Næsta skref var að fara út á sjó og róa til fiskjar. Reyndist þetta hin mesta happafleyta. Seinna festu þeir bræður kaup á plastbát sem einnig var notaður í sjóróðra upp á gamla móðinn eða til skemmti- siglinga þeim og okkur til ómældrar ánægju. Eitt af því sem stendur upp úr í minningunni um Tryggva eru allir þeir bíltúrar og ferðalög sem hann fór með okkur systkinin ásamt þeim krökkum sem voru í sveit á Skeiðflöt á hverjum tíma. Farkosturinn var gamli Gipsy og var oft þétt setinn bekkurinn. Þótt oftast væri ferðast innan sveitar tókst yfirleitt að uppgötva eitthvað nýtt í hvert skipti. Ung að árum höfðum við klifið flest markverðustu fjöllin í Mýrdaln- um og kynnst allri þeirri náttúru sem sveitin hefur upp á að bjóða. Eftir stendur minning um hóg- væran öðling sem var svo stór partur af okkar uppvexti og lífi, partur sem þú, elsku Tryggvi, sinntir svo vel, að það verður seint fullþakkað. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Sigurður Ólafur Eyþórsson, Halldór Ingi Eyþórsson, Reynir Örn Eyþórsson. Meira: mbl.is/minningar Á kveðjustund er þungt um tungutak og tilfinning vill ráða hugans ferðum. Því kærum vini er sárt að sjá á bak og sættir bjóða Drottins vilja og gjörðum. En Guðs er líka gleði og ævintýr og góð hver stund er minningarnar geyma. Farðu vel, þér fylgir hugur hlýr á ferð um ljóssins stig, og þagnarheima. (Sigurður Hansen) Já, á kveðjustund Tryggva er okkur þungt um tungutak. Ég þakka honum samfylgdina og bið honum Guðs blessunar. Börnin mín og barnabörn sakna góðs vinar og kveðja hann með þökk fyrir hlýju og hugul- semi í þeirra garð. Vertu kært kvaddur Tryggvi. Sæunn Sigurlaugsdóttir, Sigurlaug, Guðmundur og Jón Þór Helgabörn. Það er ekki hægt að segja að andlátsfregn Tryggva hafi komið manni mjög á óvart þar sem heilsu hans hafði hrakað veru- lega síðastliðið ár og líkamskraft- ar horfnir eftir langan vinnudag. Við fráfall hans koma í hugann ýmsar minningar um náinn kunningsskap þar sem hann var búinn að vera næsti nágranni allt mitt líf. Fer þeim óðum fækkandi sem hægt er að minnast með þeim hætti. Þegar Tryggvi er 18 ára gamall missir hann föður sinn á besta aldri frá stóru og góðu búi en faðir hans var á margan hátt í fararbroddi í bændastétt hér. Hlaut því Tryggvi þá þegar að gerast bóndi er var mikið færst í fang fyrir ungling en einungis voru þá á heimilinu Sigríður móð- ir Tryggva og Eyþór bróðir hans í æsku. Vert er að geta þess að Sigríður var búkona að eðlisfari en hafði þann annmarka frá unga aldri að búa við mjög skerta sjón er háði henni mjög. Þótt mannafli væri ekki mikill við þessar aðstæður tekst þess- um unga bónda að halda í horfinu með móður sinni og vel það. Í minni mínu man ég varla bónda er vann jafn staðfastlega við bú- skapinn sem Tryggvi gerði. Mátti segja að hending væri að hitta hann af bæ á sínum fyrstu bú- skaparárum. Mun þess nokkurt fádæmi að Tryggvi hafði aldrei stundað launaða vinnu utan heimilis nema um þriggja vikna tímabil í vinnu við strand á seinni stríðsárunum. Hins vegar var hann alltaf mjög fús að fara til sveitunganna og hjálpa þeim dag og dag er tíðkaðist er menn stóðu í uppbyggingu húsa. Af búpeningi var Tryggvi mest fyrir fé og hélt hann þeim gamla vana að hafa fjárhúsin frekar dreifð um landið vegna beitar og hagræðingar við notkun áburðar. Ávallt var stundaður góður bú- skapur á Skeiðflöt og fór vaxandi er Eyþór gerðist bóndi þar síðar. Tóku þeir vélaraflið svo í sína þjónustu að það mun líka hafa verið langfyrsta býlið er ekki var til hross. Var samstarf þeirra bræðra ávallt til fyrirmyndar. Tryggvi var að eðlisfari fé- lagslyndur og sinnti því frekar er hann var kominn í félagsbúskap, tók þátt í búnaðarfélagsstörfum og sat í nokkur ár í sveitarstjórn. Þá sótti hann sjóinn hér frá sand- inum meðan það var stundað en það gerðu flestir menn á sínum yngri árum ef þeir leituðu ekki lengra til vertíðar. Var Tryggvi netfiskinn á handfæri og naut sjóferða. Tryggvi var minnugur á það sem hann sá eða las. Var hann gagnkunnugur milli fjalls og fjöru í Mýrdalnum enda vart finnanleg sú gata sem hann hafði ekki farið á jeppanum sínum. Það kom fyrir ef Tryggvi las ein- hverja bók sem snart hann veru- lega að hann vildi endilega fá mann til að lesa hana. Lengi vel var Tryggvi mjög léttur á fæti. Ungur að árum eignaðist hann stálskauta eftir gömlu tréskaut- ana. Þá íþrótt stundaði hann af ánægju.Var hann kominn vel yfir miðjan aldur er hann sást stíga á skauta ef færi gafst. Tryggvi hafði þægilega nær- veru, tók litlum breytingum í framkomu frá fyrstu kynnum. Þegar gamall samferðamaður er kvaddur væri hægt að hafa langt mál en fyrst og síðast ber að þakka gott nágrenni sem hér skal undirstrikað. Skeiðflatarfólki sendi ég samúðarkveðjur. Sigþór Sigurðsson, Litla-Hvammi. Tryggvi Ólafsson Hinn 19. febrúar 2001 fæddist Emmu Agnetu systur og Boga Þorsteinssyni ljós og fagur drengur. Stundum er sagt að til að ala upp barn þurfi þorp til. Þau orð áttu svo sannarlega við um ljósberann okkar sem hlaut hið fagra nafn Blængur Mikael sem hæfði honum sérlega vel. Blængur Mikael var þeim eig- inleika gæddur að laða fram kærleik og góðvild í öllum er honum kynntust. Hann var af- skaplega sérstakur drengur og það var ósjaldan sem við hér í Flétturimanum kölluðum hann litla prófessorinn okkar vegna greindar hans og fróðleiksþorsta og vorum við afar stolt af hon- um. Svarti föstudagurinn 1. mars mun aldrei líða mér úr minni. Þegar sú harmafregn barst að elsku Blængur Mikael hefði lát- ist í bílslysi og Emma Agneta systir væri slösuð, ásamt tveim- ur öðrum sem í bifreiðinni voru, og búið væri að flytja þau með þyrlum á Landspítalann. Það voru þung og angistarfull spor og hjarta sem sló ótt og títt af skelfingu og lamandi sorg þegar við gengum inn á neyðarmóttök- una, hugsanirnar þyrluðust um eins og hvirfilbylur. Þau lifðu og líkamleg sár þeirra munu gróa. Á liðnum dögum hefur mér oft orðið hugsað af djúpu þakklæti til lögreglunnar, Gæslunnar og starfsfólks bráðamóttökunnar og gjörgæslunnar sem gerði allt sem í þeirra valdi stóð. Perlur minninganna streyma fram hver af annarri, þótt ævi- dagar okkar ástkæra Blængs Mikaels yrðu einungis tólf ár skilur hann eftir sig mikið af minningum. Vonandi munu þær ylja ástvinum hans í nístandi sorginni þegar frá líður. Sorg sem engin orð fá lýst. Eitt sinn hringdi Erla systir í mig er hún var að gæta hans á meðan mamma hans var í skól- anum og segir upprifin: Veistu hvað hann sagði við mig? Nei, hvað kom hann með núna sagði ég og beið spennt. Jú, hann horfði á mig með sínum einstöku blíðu augum, lagði hönd á hjart- að og sagði: Erla, ég verð svo heitur hérna inni þegar ég horfi á þig! Þá var hann fárra ára gamall. Stundin sem við áttum hér í febrúar í fyrra þegar ég fékk þann heiður að mynda hann ásamt litlu systur sinni henni Þuríði Heklu og bróður sínum Blængur Mikael Bogason ✝ Blængur Mika-el Bogason fæddist á Akureyri 19. febrúar 2001. Hann lést af slys- förum 1. mars 2013. Útför Blængs Mikaels fór fram frá Akureyr- arkirkju 13. mars 2013. Sigtryggi Kristófer mun aldrei líða mér úr minni. Kærleik- urinn og umhyggja hans fyrir litlu systkinum sínum og stoltið sem skein úr augum og fasi öllu. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, – hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? Hve öll sú gleði’ er fyrr naut hugur minn er orðin hljómlaus utangátta’ og tóm hjá undrinu að heyra þennan róm, hjá undri því, að líta lítinn fót í litlum skóm, og vita’ að heimsins grjót svo hart og sárt er honum fjarri enn, og heimsins ráð sem brugga vondir menn, já vita eitthvað anda hér á jörð er ofar standi minni þakkargjörð í stundareilífð eina sumarnótt. Ó, alheimsljós, ó, mynd sem hverfur skjótt. (Halldór Kiljan Laxness) Elsku Emma, Bogi og ástvin- ir, megi minning kærleiksríka drengsins ykkar vera ykkur styrkur og ljós í sorginni. Minn- ing hans lifir áfram í hjörtum okkar allra. Halla B. Þorkelsson og fjölskylda. Ég trúi því að tími okkar á jörðu hér sé einungis smábrot úr eilífðinni. Ég trúi því að við mun- um hittast á ný þegar jarðvist okkar hinna lýkur. Þá munum við hlæja saman og börnin mín munu aftur fá að njóta kærleika þíns. Nú hverfur sól í haf og húmið kemur skjótt. Ég lofa góðan Guð, sem gefur dag og nótt, minn vökudag, minn draum og nótt. Þú vakir, faðir vor, og verndar börnin þín, svo víð sem veröld er og vonarstjarna skín, ein stjarna hljóð á himni skín. (Sigurbjörn Einarsson) Elsku Blængur, takk fyrir að hafa komið inn í líf okkar, þú varst alveg einstakur drengur. Takk fyrir að hafa verið Ísari Enok og Tinnu sannur vinur í gegnum þeirra lífsins raunir. Þín verður sárt saknað en þú átt þinn sérstaka stað í hjörtum okkar og við elskum þig alltaf. Elsku Emma, fjölskylda og vinir, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og megi góður guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum. Kveðja, Eva, Ísar Enok og Tinna. Í byrjun desem- ber sátum við amma uppi á Nesveginum og skoðuðum saman gamlar myndir, þar á meðal var mynd af okkur tveimur saman þegar ég var sennilega um tveggja ára gamall. Ánægjan skein greini- lega úr augunum á litla drengn- um sem átti alltaf öruggt skjól í fanginu á ömmu sinni. Á meðan við skoðuðum myndina þá strauk strauk amma allt í einu blítt um kinnina á mér og sagði: „Litli strákurinn hennar ömmu sinnar“ þótt ég sé nú að verða fertugur þá bráðnaði ég auðvitað jafn auð- veldlega og litli strákurinn á myndinni. En svona var hún amma, alltaf svo góð. Þessa stund er ég búinn að María Bender ✝ María Benderfæddist á Djúpavogi 27. júlí 1930. Hún lést 19. febrúar 2013 á 83. aldursári. Útför Maríu fór fram frá Neskirkju 26. febrúar 2013. hugsa stöðugt um síðustu daga. Hefði ég vitað að þetta yrði eitt af okkar síðustu samtölum þá hefði ég sjálfsagt reynt að segja eitt- hvað, en ég gat ekki gert neitt annað en að brosa. Amma mín mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu, minn- ingarnar eru óteljandi. Ég verð alltaf þakklátur fyrir stundirnar sem við áttum saman en ég vildi óska að þær hefðu orðið bara ör- lítið fleiri. Ég held ég að ég hafi átt bestu ömmu í heimi, en það segja það eflaust allir um ömmur sínar, það er eitthvað sérstakt við ömmur. Sé eitthvað gott að finna í mér þá kemur það að stórum hluta frá henni ömmu minni. Það er mín stóra lukka í lífinu að hafa fengið að kynnast henni ömmu og læra af henni og ég er betri maður fyrir vikið. Okkur eftirkomendum hennar þarf aldrei að verða villugjarnt ef við bara rifjum upp og munum eftir þeirri góðmennsku og hlýju sem amma sýndi öllu samferða- fólki sínu. Þótt söknuðurinn sé næstum óbærilegur og missirinn mikill hjá okkur sem fengum að kynnast henni náið, þá er miss- irinn kannski enn meiri hjá þeim sem aldrei fá að kynnast þessari yndislegu konu, en það er okkar að halda minningunni lifandi. Ég mun aldrei gleyma henni ömmu minni. Theodór. Ég minnist þín, elsku amma, með mikilli hlýju. Margar góðar minningar rifjast upp og þá sér- staklega um jólaboðin sem voru haldin hvert ár á jóladag á Nes- veginum. Það var alltaf mikil til- hlökkun að eyða þessum degi hjá ömmu og afa. Amma í eldhúsinu, ilmur af aspassúpu og hangikjöti tók á móti manni og svo var það Snjólfur kisi undir jólatrénu. Held að þetta hafi verið einn dekraðasti kisi á landinu enda varð hann langlífur, því amma sá til að hann fengi soðna ýsu á hverjum degi og ef mig minnir rétt þá fékk hann eitthvert spes kisukex ofan á fiskinn. Þetta er bara lýsandi dæmi um hana ömmu Mæju eins og við systk- inin kölluðum hana. Hún hugsaði afar vel um sína. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Anna María. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Minningargreinar Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur Sími 551 3485, svarað allan sólarhringinn. Vefsíða www.udo.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.