Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 23

Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013 vatnskóralrifin eru mjög stór og þarna hrygnir einn stærsti þorsk- stofn í heiminum og fleiri fiskteg- undir eins og ýsa og síld. Sjórinn er einkar næringarríkur. Þarna eru einhverjar stærstu sjófuglabyggðir í Vestur-Evrópu. Kjensli sagði að fiskveiðarnar væru mjög mikilvægar og sjómenn- irnir vörðu tekjum sínum að mestu á svæðinu. Olíuiðnaðurinn ver hins vegar miklu af tekjum sínum utanlands. Kjensli benti á að landgrunnið væri einkar mjótt utan við Lofoten og Vesterålen. Fiskveiðin færi þar fram á litlu svæði og olíuiðnaðurinn vildi inn á sama svæði. Þarna eru sterkir straumar og sagði Kjensli að aðstæður yllu því að ekki dugi að hafa 500 metra öryggissvæði í kring- um olíuborpalla eins og í Norðursjó. Þau þurfi frekar að vera 10-12 km til að tryggja að tími gefist til að bregð- ast við verði slys. Það þýði að ekki verði pláss fyrir fiskveiðar hefjist þarna olíuvinnsla. Skilar sér mest utan svæðisins Kjensli varpaði einnig fram þeirri spurningu hvort þörf sé á olíu og gasi af þessu svæði. Hann sagði áætlanir gera ráð fyrir að olían sem finnist við Lofoten, Vesterålen og Senja sam- svari einungis ellefu mánaða fram- leiðslu Noregs af olíuígildum. Hann sagði að ferðaþjónustan vilji ekki fá landtökumannvirki fyrir olíu á svæðið, hún vilji frekar að það verði skráð á heimsminjaskrá. Kjensli sagði að olíuvinnsla á þessu svæði myndi vissulega skila tekjum í opinbera sjóði Noregs, sem væru svo stútfullir af peningum fyrir að menn viti varla hvernig eigi að verja þeim. Aukin olíuumsvif í Norð- ur-Noregi muni skila sér í Ósló, Stavanger og Bergen en minnst í Norður-Noregi. Í skýrslu olíu- og orkumálaráðu- neytisins um olíuvinnslu á svæðinu og kynnt var í haust sé talað um að olíuvinnslan geti skapað 37.000 störf á landsvísu þegar umsvifin verða í hámarki. Á svæðinu sjálfu munu skapast að meðaltali um 1.100 störf við mestu umsvif og u.þ.b. 400 störf við lítil umsvif. Kjensli benti á að ekki væri vinnu- afl á svæðinu til að mæta aukinni eft- irspurn yrði farið út í olíuvinnslu. Hann vildi fá annars konar atvinnu- uppbyggingu á svæðinu sem ógnaði ekki sérstöðu svæðisins. Kjensli sagði að með olíuvinnslu gæti skap- ast gullgrafarastemning um skamm- an tíma en þegar upp yrði staðið að 30-40 árum liðnum væri hætt við að svæðið yrði mun fátæklegra. Hann vildi frekar byggja á þeim styrk- leikum sem fyrir eru. Olíuvinnslan geti haldið áfram á sömu svæðum og nú við Noregsstrendur og í Barentshafi. Olíuiðnaðurinn vill nýta svæðið Vinnsla olíu og gass er stærsta at- vinnugrein Noregs með tilliti til verðmætasköpunar, tekjusköpunar fyrir ríkið og útflutningsverðmætis. Um 43.000 manns starfa við greinina og afleidd störf eru meira en 200.000 talsins. Roger Pedersen er yfirmaður upplýsingamála hjá Norsk olje & gass, hagsmunasamtökum fyrir- tækja í olíuvinnslu á norska land- grunninu. Í þeim eru um 50 olíufélög sem vinna olíu og um 50 birgjar fyrir iðnaðinn. Pedersen sagði að yfirvöld hefðu sett olíuiðnaðinum strangar öryggis- og umhverfiskröfur og að hann væri undir ströngu eftirliti. „Það verður að tilkynna ef maður missir niður olíu úr einni fötu. Eins ef einhver klemmir fingur, þá verður að tilkynna það,“ sagði Pedersen. Búið var að gera umhverfismat og opna hluta af vinnslusvæði sem nefn- ist Nordland VI og er suðvestan við syðsta hluta Lofoten. Það var opnað þegar árið 1994 og boranir hafnar þegar norsk stjórnvöld lokuðu svæð- inu árið 2001 fyrir frekari olíuleit. Nordland VI þykir lofa góðu og talið er að þar sé að finna allt að 43% olíu- og gaslinda undir hafsbotninum við Lofoten, Vesterålen og Senja, að því er fram kom í Teknisk Ukeblad. Umtalsverðar auðlindir Pedersen sagði að þingmeirihluti hefði verið í norska stórþinginu fyrir olíuborunum á þessu svæði á núver- andi og undanförnum kjörtíma- bilum. Minnihluti í ríkisstjórn hefði getað komið í veg fyrir fram- kvæmdir. Hann sagði að Norsk olje & gass teldi niðurstöður skýrslunnar um áhrif olíustarfsemi í norðaustur- hluta Noregshafs, sem kynnt var í nóvember sl., sýna greinilega að enginn munur væri hvað varðar ör- yggismál eða umhverfismál á svæð- unum við Lofoten, Vesterålen og Senja og annars staðar á norska landgrunninu. Hann sagði engan vafa leika á að þarna væru umtals- verðar olíu- og gaslindir. Pedersen sagði að ekki þyrfti að vera árekstur á milli fiskveiða og olíuvinnslu. Hættan á olíuslysi væri mjög lítil. Búið er að gera hljóð- bylgjumælingar á svæðinu og engin þörf á að endurtaka þær. „Fjörutíu ára reynsla okkar á norska landgrunninu sýnir að við getum komist að skynsamlegu sam- komulagi við fiskveiðarnar,“ sagði Pedersen. Hann sagði vandann vera þann að fiskimennirnir á svæðinu vildu ekki ræða við olíuiðnaðinn um hvernig væri hægt að komast að lausn. Norska ríkisstjórnin hefur sett fram þau markmið að vinnsla olíu og gass verði stunduð til langs tíma. Til þess að þessar auðlindir skili jöfnum og góðum arði telur ríkisstjórnin að leggja beri áherslu á þrjú atriði. Í fyrsta lagi að auka vinnslu úr svæðum sem þegar er verið að nýta og byggja upp olíu- og gaslindir sem borga sig í rekstri. Í öðru lagi að halda áfram að rannsaka betur svæði sem búið er að opna og finna þar meiri olíu og gas. Í þriðja lagi að ljúka opnunarferl- inu fyrir Jan Mayen-svæðið og suð- austurhluta Barentshafsins, sem geta lagt grunninn að nýjum efna- hagsumsvifum í Norður-Noregi. Røst í Lofoten Mikilvægar hrygningarstöðvar þorsks, ýsu, ufsa og síldar eru við Lofoten og Vesterålen. Þar stendur nú vertíð sem hæst. Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. mars 2013, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. mars 2013 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. mars 2013, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. mars 2013 Tollstjóri Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli WWW.SPAIN.INFO SJÁUMST Á BLÓMATORGINU Í KRINGLUNNI Í DAG KL. 11-18 Spánarferðalög, spænsk tónlist, matur og skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Ferðakynningar Verðlaunagetraun Andlitsmálun Trúðurinn Wally VELKOMIN Á SPÆNSKAN FERÐADAG!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.