Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Uppþvottavél
SN 45M505SK (stál)
13 manna. Fimm kerfi.
Hljóð: 44 dB (re 1 pW).
Tækifærisverð:
154.900 kr. stgr.
(Fullt verð: 189.900 kr.)
Sjálfvirk
kerfi
Orkuflokkur
Tímastytting
Eimskip hóf strandsiglingar að nýju í gær, Brúar-
foss kom til Ísafjarðar í gærmorgun. Ísafjörður er
viðkomustaður á nýrri strandleið félagsins sem
tengir landsbyggðina beint við Færeyjar, Skot-
land, England og meginland Evrópu og óbeint inn
á Skandínavíu og Eystrasalt. Samskip áforma að
hefja strandsiglingar eftir helgi en útboði ríkisins
á þeim var frestað eftir að ljóst varð að félögin
ætluðu að sigla kringum landið á ný.
Brúarfoss lagðist að bryggju á Ísafirði í gær
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Strandsiglingar Eimskipafélags Íslands eru hafnar
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Enn er óvíst hvenær störfum Al-
þingis lýkur þrátt fyrir að þeim hafi
átt að ljúka í gær samkvæmt dag-
skrá þingsins. Þingfundur hefur ver-
ið boðaður klukkan 10 í dag og eru
þar samtals ellefu mál á dagskrá, þ. á
m. kvótafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar, heildarlög um náttúruvernd,
frumvarp um stofnun opinbers
hlutafélags um byggingu nýs Land-
spítala og frumvarp um breytingar á
fjölmiðlalögum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins fóru einungis fram óform-
legir fundir um stöðu þingsins í gær.
Að sögn Ástu Ragnheiðar Jóhann-
esdóttur, forseta Alþingis, hefur hún
boðað formenn
stjórnmálaflokk-
anna á fund til að
ræða þinglok.
„Þingfundur
byrjar klukkan
tíu þannig að ætli
það verði ekki um
líkt leyti,“ segir
Ásta Ragnheiður
aðspurð hvenær
fundur hennar
með formönnunum hefjist. Þá bendir
hún á að það komi í ljós á morgun
hvort þingið muni funda aftur næst-
komandi mánudag.
Þurfa að velja mál sem klára á
„Það sem er mest áríðandi er að
við náum utan um hvaða mál það eru
sem brýnt er að verði kláruð núna á
vorþinginu,“ segir Illugi Gunnars-
son, þingflokksformaður Sjálfstæð-
isflokksins, og bætir við: „Þá er ég
ekki að tala um hvað menn telja að sé
brýnt fyrir sig pólitískt heldur mál
sem hægt er að rökstyðja að hafi
verulega mikilvæg áhrif annað hvort
til að styrkja stöðu atvinnuvega eða
heimila.“
Spurður út í þingfundinn sem boð-
aður hefur verið í dag segir Gunnar
Bragi Sveinsson, þingflokksformað-
ur Framsóknarflokksins, að það hafi
ekki verið rætt við framsóknarmenn
um þann fund á neinn hátt, hvorki
um boðun fundarins né dagskrá
hans. Ekki náðist í þingflokksfor-
menn stjórnarflokkanna við vinnslu
fréttarinnar.
Funduðu um stjórnarskrána
Þingflokkur Samfylkingarinnar
fundaði síðdegis í gær um stöðu
stjórnarskrármálsins. Þeir þing-
menn Samfylkingarinnar sem Morg-
unblaðið talaði við í gærkvöldi vildu
hinsvegar ekki tjá sig um málið.
Áfram óvissa um þinglok
Forseti Alþingis fundar um þinglok með formönnum stjórnmálaflokkanna
Þingfundur hefst klukkan 10:00 í dag en samtals eru ellefu mál á dagskrá
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Illugi
Gunnarsson
Gunnar Bragi
Sveinsson
Landsfundur Dögunar var settur
síðdegis í gær en þar fluttu odd-
vitaefni flokksins, þau Þórður B. Sig-
urðsson, Guðrún Dadda Ásmunds-
dóttir, Andrea Ólafsdóttir, Gísli
Tryggvason, Ólöf Guðný Valdimars-
dóttir og Margrét Tryggvadóttir,
sameiginlega setningarræðu.
Í ræðunni var m.a. lögð áhersla á
að nú væri tími kominn til róttækra
breytinga á samfélaginu. „Ísland er í
vanda statt. Vandinn verður ekki
leystur nema með samstilltu átaki
allra sem að honum koma. Dögun
ætlar ekki bara að leggja hönd á
plóg, við ætlum okkur að vera leið-
andi í því starfi,“ segir m.a. í setning-
arræðunni. skulih@mbl.is
Oddvitar Dögunar fluttu
setningarræðu í sameiningu
Morgunblaðið/Ómar
„Ég ætla ekki að
rengja útreikn-
inga FÍB. Sem
betur fer er stað-
an þannig að það
hillir undir verð-
lækkun. Það er
og verður alltaf
flökt á álagningu
á eldsneyti, eðli
olíuviðskipta er
þannig. Það má
líkja þessu við línurit sjúklings á
skurðarborði,“ segir Hugi Hreið-
arsson, markaðsstjóri Atlantsolíu,
spurður hvort eldsneytisverð muni
lækka.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
sendi frá sér tilkynningu í gær, þar
sem bent var m.a. á að gengi ís-
lensku krónunnar hefði styrkst og
heimsmarkaðsverð á bensíni hefði
lækkað um 15%. „En meinið er það
að hvorki þessi lækkun né sterkara
krónugengi er að skila sér til ís-
lenskra neytenda.“ Ennfremur seg-
ir: Eldsneytiskostnaður heimilanna
hefur vaxið langt umfram þróun
verðlags á undanförnum árum. Vísi-
tölur launa og kaupmáttar hafa ekki
haldið í við verðlag frá hruni.
„Ég hef ekki séð umrædda grein
og get því ekki tjáð mig því ég veit
ekki hvaða útreikningar liggja á bak
við þessar tölur frá FÍB,“ segir Sam-
úel Guðmundsson, rekstrarstjóri
Olís, spurður hvort Olís hyggist
lækka bensínverð. Samúel ítrekaði
að Olís byði viðskiptavinum sínum
ávallt samkeppnishæft verð. Þá seg-
ir hann að verðið sé reglulega skoð-
að til að ganga úr skugga um hvort
hægt sé að hækka eða lækka elds-
neytisverð. Ekki náðist í Magnús
Ásgeirsson hjá N1 við vinnslu frétt-
arinnar. thorunn@mbl.is
Of hátt
eldsneyt-
isverð
Hugi
Hreiðarsson
Hillir undir lækk-
un hjá Atlantsolíu
Í Gallup-könnun,
sem RÚV birti í
gær, mælist
Sjálfstæðisflokk-
urinn stærstur,
með 26,8% fylgi,
en Framsókn-
arflokkurinn
kemur skammt
þar á eftir með
25,5% fylgi. Samfylkingin er þriðji
stærsti flokkurinn með 14% fylgi.
Björt framtíð með 13.2% og VG
með 8,9%.
Framsóknarflokkurinn mælist
með 31,9% fylgi og er stærsti flokk-
urinn, samkvæmt könnun Stöðvar 2
frá í gær. Sjálfstæðisflokkurinn
mælist með 27,6% fylgi, sem er
minna en í síðustu könnun. Sam-
fylkingin er þriðja stærst, með
13,8%, Björt framtíð 9,1% og
Vinstri græn 7,1%. Aðrar stjórn-
málahreyfingar ná ekki 5% fylgi,
og þar með ekki manni inn á þing.
Þessar kannanir sýna svipaðar
línur og aðrar kannanir hafa verið
að sýna síðustu vikurnar, að Fram-
sókn er á uppleið, en fylgi Sjálf-
stæðisflokksins að dala.
Framsókn bætir
stöðugt við sig
Banaslys varð laust fyrir hádegi í
gær við bæinn Fjósatungu í
Fnjóskadal í Þingeyjarsveit.
Stúlkubarn lést þegar það varð
fyrir lítilli vinnuvél. Lögreglan á
Akureyri fer með rannsókn málsins
og frekari upplýsingar voru ekki
gefnar í gær.
Varð fyrir lítilli
vinnuvél og lést