Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013
Mercedes-Benz GL 350 CDI BlueTEC 4MATIC
Árgerð 2012, 211 hestafla dísilvél, sjálfskiptur,
fjórhjóladrifinn, ekinn 20 þús. km.
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is Opið virka daga kl. 10-18og laugardaga kl. 12-16
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
7
4
2
19" álfelgur, Parktronic fjarlægðarskynjarar, Offroad tæknipakki, dráttarbeisli,
7 manna, fjarstýrð rafopnun á skotthlera, tveggja svæða loftkæling, bluetooth,
rafstýrð leðursæti, viðarklætt mælaborð, 6 diska geisladiskamagasín, rafstýrð
niðurfelling á aukasætum, þaklúga o.fl. Verð 15.900.000 kr.
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist
ætla að standa vörð um hagsmuni innanlands-
flugs á landinu áfram. „Ég hef gert það allar
götur frá því ég kom í embætti ráðherra sam-
göngumála. Ég hef barist fyrir þeim og þar með
tekið upp þráðinn frá forverum mínum í emb-
ætti um nauðsyn þess að bæta aðstöðu fyrir
innanlandsflugið á Reykjavíkurflugvelli,“ sagði
Ögmundur í samtali við Morgunblaðið í kjölfar
þess að Kristján Þór Júlíusson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, kallaði eftir að innanrík-
isráðuneyti stæði vörð um þá sýn Ögmundar að
flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýri.
Lausir endar
Í ræðu Kristjáns á Alþingi í gær kom fram að
með samkomulagi ríkis og borgar um kaup
borgarinnar á landi í Skerjafirði væri ljóst að
verið væri að vinna að framgangi 800 íbúða
byggðar við Skerjafjörðinn á grundvelli núgild-
andi skipulags, sem miðaðist við að flugvöll-
urinn yrði lagður niður. Ögmundur leggur
áherslu á að þrátt fyrir samninginn séu ýmsir
þræðir óhnýttir, viðræður borgar og innanrík-
isráðuneytis séu enn í gangi.
Ögmundur segir að þrátt fyrir að samningar
séu í höfn um landakaupin sé það ekki eini lykill
að lausn málsins. „Við í innanríkisráðuneytinu
höldum líka á lyklum. Við erum hags-
munagæslumenn fyrir innanlandsflug á Íslandi
og ætlumst til að það sé tekið tillit til okkar
sjónarmiða [...] En frá mínum bæjardyrum séð
þá er alveg ljóst að við erum ekki tilbúin að
ganga til endanlegra samninga um lokun
brauta og breytingu á aðstæðum flugsins fyrr
en við höfum heildstæða yfirsýn yfir málið allt
til framtíðar,“ segir Ögmundur og bætir við að
alltaf hafi legið fyrir að finna þurfi kost sem sé
ákjósanlegur fyrir borgaryfirvöld og fyrir inn-
anlandsflugið.
Hugnast ekki Hólmsheiði
Hugur Ögmundar til flugvallar á Hólmsheiði
hefur ekki breyst með nýrri skýrslu um sam-
anburð á veðurfari. Sjálfur bætir hann við að
hann sé skattgreiðandi auk þess að vera innan-
ríkisráðherra. „Ég hef ekki komið auga á þá
milljarðatugi sem þarf til að flytja eitt stykki
flugvöll,“ segir Ögmundur.
Ekki tilbúinn til endanlegra samninga
Innanríkisráðuneytið heldur líka á lyklum í flugvallarmálinu segir Ögmundur Mun áfram standa
vörð um hagsmuni innanlandsflugs Málið ekki keyrt áfram með „einstrengingslegum“ hætti
Núverandi
hitaveitulögn frá
Flugvöllur á Hólmsheiði
Re
yk
ja
ví
k
M
os
fe
lls
bæ
r
Nýr vegur
Nýr vegur
Spennistöð
HitaveitaRauðavatn
Reynisvatn
Langavatn
Hafravatn
Grafarholt
Norðlingaholt
Breiðholt
Víðidalur
Tillaga að stað-
setningu flugvallar
á Hólmsheiði
Hesthús
Fyrirhugað
fangelsi
Nesjavöllum
Áætlanir Borgin hefur fest kaup á græna svæðinu sem áður var í eigu rík-
issjóðs. Þar með gefst færi á 800 íbúða byggð miðað við skipulagshugmyndir.