Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 56

Morgunblaðið - 16.03.2013, Side 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2013 Þessi dómur byrjaði sem al-mennur pistill, innblásinnaf nýju David Bowie-plötunni, og fyrirsögnin, eða vinnuheitið, var „Plöturnar sem mega ekki vera slæmar“. Í samráði við ritstjórn var hins vegar ákveðið að skipta um hest í miðri á, hafa pistilinn sem ígildi dóms og eins og þið sjáið, uppsetningin er nú hreinn og klár „dómur“. Fyrir sérstaka menn er farið í sérstakar aðgerðir, en það er ekki á hverjum degi sem David gamli Bowie gefur út plötu. Aldeilis ekki, en tíu ár eru liðin frá síðustu hljóðversplötu og hefur það vænt- anlega farið fram hjá fáum. Það er hins vegar mikilvægt, framvindunnar vegna, að ég tæpi á mikilvægustu punktum pistilsins sem aldrei varð. Útgangspunkt- urinn var nefnilega fjölmiðlafárið í kringum þessa nýju plötu Bowie, sem er búið að vera gríðarlegt. Og dómarnir, langflestir, á einn veg. Meistaraverk. Þegar hlustað er heldur slíkt hins vegar ekki vatni. Þetta er fín plata, en ekki frábær (meira um það síðar). Í tilfelli Bowie hefur „stærð“ hans, goðsögnin, vigt- in (þetta er einn allra, allra merk- asti dægurtónlistarmaður sög- unnar) saman með árunum sem hafa liðið frá síðasta verki, ásamt áhyggjum yfir því að hann væri hættur í tónlist fyrir fullt og fast, hrundið af stað einhverju sem ekki er hægt að kalla annað en hysteríu. Fólk virðist vera að rugla saman tveimur hlutum. Annars vegar hreinni (og sjálfsagðri) gleði yfir þeirri staðreynd að David Bowie sé yfirhöfuð búinn að gefa út nýja plötu. Sjálfur fékk ég gæsahúð þeg- ar ég heyrði fyrsta trommuslagið á opnunarlaginu sem er jafnframt tit- illagið. Ekkert að því og bara eðli- legt. En þessar tilfinningar allar hafa ekkert með gæði sjálfrar plöt- unnar að gera. Við skulum nú vinda okkur í hana. Á plötunni eru heil fjórtán lög, misjöfn að gerð – og gæðum. Upphafslagið slær spennandi tón og fær mann til að iða, hrár og hryssingslegur gítarinn minnir dá- lítið á stuttu, snörpu rokkarana sem opnuðu Low („Speed Of Life“, „Breaking Glass“). „Dirty Boys“ viðheldur draugalegum drunganum sem ýjað er að í upphafslaginu og stemmunni er framhaldið í „The Stars (Are Out Tonight)“. Firring, hætta. Nokkuð flott bara. Ballaðan „Where Are We Now?“ brýtur þetta upp, ljúfsár hugleiðing, jarðarfar- arsálmur nánast. Vangaveltur um dauðann eru endurtekið stef á plöt- unni, eitthvað sem hefur fengið gagnrýnendur til að klóra sér í kolli (og líka rekið þá, því miður, til að skrifa ljóðrænt, misdjúpt torf um þýðingu þess alls). Um miðja plötu má segja að bygging hennar afhjúpist. Þetta er bunki af lögum, frekar en heilsteypt verk. Lög eins og „Valentine‘s Day“ og „You Set The World On Fire“ eru undir pari en hins vegar hef ég veikan blett fyrir hinu óneitanlega ódýra „Dancing Out In Space“. Besta lagið er hiklaust það næstsíð- asta, „You Feel So Lonely You Co- uld Die“. Það er eitthvað í söngnum þar sem stingur dýpra en annars staðar á plötunni. Lokalagið „Heat“ er síðan endurskrif á lagi Scotts Walkers, „The Electrician“ (meira að segja sungið í sama stíl) eins og bent hefur verið á í öðrum dómum. Og þannig er það. Fín plata. Ekki frábær. Þrjár af fimm. Á 0-10 skal- anum er þetta 7,0. Platan er ekki fullkomin og hvað með það? Mér finnst eins og Bowie sé búinn að koma sér fyrir í nokkurs konar startholum með þessari plötu og það með reisn. The Next Day minn- ir mig dálítið á Black Tie, White Noise frá 1993 sem var sömuleiðis endurkomuplata. Fín plata en meira eins og forsmekkur. Tveimur árum síðar kom svo meistaraverkið Out- side út. Ef mark er takandi á sög- unni, og hringrás hennar, þá bíð ég spenntur eftir næstu skrefum … „Nei, David … þú hér!“ AFP Goðsögnin David Bowie í stuttmynd sem gerð var við eitt laganna af The Next Day, „The Stars (Are Out Tonight)“. Leikkonan Tilda Swinton leikur í myndinni með Bowie. David Bowie - The Next Day bbbnn ARNAR EGGERT THORODDSEN TÓNLIST Tvær sýningar verða opnaðar í dag í Listasafni ASÍ. Annars vegar er það sýning Unndórs Egils Jóns- sonar, Permanence is but a word of degree, og hins vegar sýning Eyglóar Harðardóttur, Arkítektúr hugans – útleið. Um sýningu Unn- dórs segir m.a. í tilkynningu: „Hvers vegna varð sjálfið til? Var- anleikinn er varla nema í minning- unni. Einhver sagði að hið end- anlega form væri kúla.“ Eygló sýnir teikningar og málverk unnin á pappír og skúlptúra sem unnir eru út frá minningum og upplif- unum. „Verkin eru einskonar skýr- ingarmyndir sem klipptar eru og límdar saman eftir kúnstarinnar reglum. Þannig eru upplýsingarnar sem gefnar eru rétt nægjanlegar fyrir hugmyndaflugið til að vinna úr og skapa þeim merkingu,“ segir í tilkynningu um verk hennar. Frekari upplýsingar um sýnendur má finna á unndoregilljonsson.com og eyglohardar.com. Skýringarmyndir Hluti af verki á sýningu Eyglóar Harðardóttur. Unndór og Eygló sýna í safni ASÍ Sýning á nýjum og nýlegum verk- um myndhöggvarans Hallsteins Sigurðssonar verður opnuð í dag kl. 15 í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus-húsum og ber hún yfirskrift- ina Byggingarfræði og þyngdarafl. Hallsteinn á að baki nær 50 ára feril og hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga víða um heim. Um verk sín segir hann m.a. og vitnar í frænda sinn, myndhöggvarann Ás- mund Sveinsson: „Myndhöggvarar hugsa fyrir horn, málarinn hugsar á fleti.“ Hallsteinn Á að baki nær 50 ára feril og sýnir nú í Listasafni Reykjanesbæjar. Ný og nýleg verk eftir Hallstein Una Þorleifs- dóttir leikstjóri hefur verið ráðin í stöðu háskóla- kennara í leiklist og leiklistar- fræðum í Lista- háskóla Íslands, með starfsheiti lektors við leik- listar- og dans- deild skólans. Una mun fara með fagstjórn náms- brautarinnar fræði & framkvæmd, skv. tilkynningu. Una hefur gegnt starfi aðjunkts í sviðslistum við LHÍ og stöðu fagstjóra námbrautar- innar fræði & framkvæmd frá síð- asta hausti. Una lektor við LHÍ Una Þorleifsdóttir, leikstjóri og lektor. Hollenski myndlistarmaðurinn Tiong Ang mun í dag kl. 15 ræða um verk sitt á samsýningunni Dóm- greindin er Spegill sem stendur nú yfir í Nýlistasafninu. Ang býr og starfar í Amsterdam og er megin- viðfangsefni listrænnar hugsunar hans „sameiginlegt minni, útilokun, hið staðbundna og hnattræna“, að því er fram kemur í tilkynningu. Verk hans í Nýlistasafninu ber tit- ilinn „Pavilion of Distance“ og fæst hann í því við „mismunandi stig meðvitundar og líkamann sem læt- ur oft gegn vilja sínum, meðvitað eða ómeðvitað, stjórnast af þeim (fjöl)miðlum sem á okkur dynja“, skv. tilkynningu. Auk Ang eiga Ro- ger Palmer, Jan Kaila, Japo Knuu- tila, Clodagh Emoe og Mick Wilson verk á sýningunni. Nánar á nylo.is. Ang fjallar um verk sitt Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is Plankaparket í miklu úrvali Bjóðum einnig upp á sérframleitt parket eftir óskum hvers og eins. Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað, reykt, fasað, hvíttað, eða hverning vilt þú hafa þitt parket ? Láttu drauminn rætast hjá okkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.