Morgunblaðið - 14.05.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2013
kynntu þér
málið!
SIÐMENNT
w w w . s i d m e n n t . i s
Þann 3. maí fékk Siðmennt formlega skráningu
sem veraldlegt lífsskoðunarfélag
Skráðu þig í félagið á www.sidmennt.is
– skráð l í f s skoðunar fé lag
Siðmennt
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skúli Hansen
Þórunn Kristjánsdóttir
„Fundirnir um helgina gengu mjög
vel og ég er bjartsýnn á að við náum
saman um þau mál sem enn standa út
af. Auðvitað þarf að hnýta nokkra
lausa enda og svona vinna tekur sinn
tíma, en ég held að það sé mjög eðli-
legt,“ segir Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, en
stjórnarmyndunarviðræður hans og
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Framsóknarflokksins,
héldu áfram á Hótel Hálandi um liðna
helgi sem og í gær.
Að sögn Bjarna hyggjast þeir nýta
vikuna vel til að ljúka bæði málefna-
vinnunni og til að skipta með flokk-
unum verkum. „Við höfum látið mál-
efnin ganga fyrir og viljum tryggja að
áherslna flokkanna beggja gæti í öll-
um málaflokkum óháð því hver mun
fara með einstök ráðuneyti á end-
anum,“ segir Bjarni.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
kom saman til fundar í Valhöll síð-
degis í gær. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var þar ekkert um
stórtíðindi og einkum farið yfir stöðu
viðræðnanna. „Það liggur ekkert fyr-
ir um það og hefur ekki verið rætt.
Það eru alls konar sögur í gangi
þarna úti,“ segir Kristján Þór Júl-
íusson, 2. varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, spurður hvort Sjálfstæð-
isflokkurinn muni skipa embætti
forseta Alþingis. Þá mun þingflokkur
Framsóknar koma saman í dag.
Hnýta lausa enda
Nýta vikuna til að klára málefnavinnu og skipta verkum
á milli flokkanna Funduðu á Hótel Hálandi um liðna helgi
Morgunblaðið/Eggert
Sjálfstæðisflokkurinn Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði í gær um stöðuna í stjórnarviðræðunum.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Óvissa um áhrif Bjarnarflagsvirkj-
unar á lífríki Mývatns er óviðunandi.
Þeirri óvissu var ekki eytt á fund-
inum. Spurningum um áhrif brenni-
steinsvetnis á heilsu fólks og hvað
möguleg kólnun grunnvatns gæti
haft í för með sér fyrir lífríkið var
ekki svarað,“ sagði Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, framkvæmdastjóri
Landverndar, eftir opinn fund
Landsvirkjunar um Bjarnarflags-
virkjun í Mývatnssveit í gær. Þar var
tilkynnt að Landsvirkjun ætlaði að
gera úttekt á mati á umhverfisáhrif-
um nýrrar Bjarnarflagsvirkjunar.
Guðmundur benti þó á að það væri
jákvætt að Landsvirkjun ætlaði að
rýna í fyrirliggjandi umhverfismat,
sem miðar að því að kanna hvort þeir
ætli í nýtt umhverfismat. „Þar er
verið að svara þrýstingi frá sam-
félaginu og umhverfisverndar-
samtökum,“ sagði Guðmundur Ingi.
Í máli Harðar Arnarsonar, for-
stjóra Landsvirkjunar, kom fram að
Landsvirkjun teldi mikilvægt að
gæta varúðar við allar framkvæmdir
í nágrenni Mývatns enda væri nátt-
úrufar þar sérstætt.
Að loknum kynningarfundi um
Bjarnarflagsvirkjun var haldinn lok-
aður fundur fyrir íbúa Skútustaða-
hrepps þar sem Landsvirkjun sat
fyrir svörum. Var sá fundur fjölsótt-
ur.
Þungar áhyggur af lífríkinu
„Fólkið hér hefur þungar áhyggj-
ur af lífríki Mývatns og þar ríkir enn
mikil óvissa. Virkjun við Þeistareyki
myndi hugsanlega ekki skaða lífríkið
í jafnmiklum mæli og Bjarnarflags-
virkjun. Auk þess er áætlun fyrir
Þeistareyki komin nánast jafn-
langt,“ segir Hjördís Finnboga-
dóttir, íbúi á Nónbjargi í Mývatns-
sveit.
Hún benti á að brennisteinsvetni í
andrúmsloftinu myndi líklega fara
yfir þau viðmiðunarmörk sem tækju
gildi árið 2014 ef virkjunin stækkaði.
„Það kom mér mikið á óvart hvað
það var mikil andstaða við þessa
virkjun. Það var mikill þrýstingur á
Landsvirkjun að fara frekar í virkj-
un við Þeistareyki,“ segir Árni Ein-
arsson, forstöðumaður Náttúru-
rannsóknastöðvarinnar við Mývatn,
en hann hélt erindi um áhrif Bjarn-
arflagsvirkjunar á Mývatn á kynn-
ingarfundinum.
Í máli hans kom m.a. fram að erf-
itt gæti reynst að sjá skaðlegar
breytingar á lífríki Mývatns fyrr en
eftir langan tíma, einnig að mestu
máli skipti fyrir ástand Mývatns að
það vatn sem í það bærist væri
ómengað.
Fagna nýju
umhverfismati
á Bjarnarflagi
Óvissu um áhrif á lífríki ekki eytt
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Fundur Hörður Arnarson á kynn-
ingarfundi Landsvirkjunar.
Bjarnarflagsvirkjun
» Íbúar í Mývatnssveit hafa
þungar áhyggjur af lífríki Mý-
vatns og segja mikla óvissu
ríkja þar um.
» Þrýstingur á Landsvirkjun
að fara frekar í virkjun við
Þeistareyki.
» Erfitt getur reynst að sjá
skaðlegar breytingar á lífríki
Mývatns fyrr en eftir langan
tíma.
Bílabúð Benna tók á móti 330 nýjum
bílum af gerðinni Chevrolet um
helgina. Komu þeir með sérstöku
bílaflutningaskipi beint frá framleið-
andanum í Suður-Kóreu. Um 250
bílar þar af voru fyrir bílaleiguna
Sixt, sem Bílabúð Benna starfrækir
hér á landi. Aðrir bílar fara í sölu á
almennum markaði.
Samkvæmt upplýsingum frá Bíla-
búð Benna hefur ekki verið staðið að
bílainnflutningi með þessum hætti
áður, a.m.k. ekki í seinni tíð. Bílarnir
voru ekki fluttir í gámum heldur
raðað upp í lestum skipsins á nokkr-
um hæðum. Urðu engar skemmdir á
bílunum þó að leiðin sé löng frá Suð-
ur-Kóreu. „Við veðjum á að mark-
aðurinn fari að lagast,“ segir Jón Kr.
Stefánsson, sölustjóri hjá Bílabúð
Benna, og er bjartsýnn á að bílarnir
muni seljast. bjb@mbl.is
Benni flytur beint
inn 330 nýja bíla
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílar Benedikt Eyjólfsson, eigandi
Bílabúðar Benna, við Chevrolet-bíl.
Komu með skipi
frá Suður-Kóreu
Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti
Íslands, fagnar
70 ára afmæli
sínu í dag. Hann
fæddist á Ísafirði
14. maí árið
1943, lauk stúd-
entsprófi frá MR
1962, BA-prófi í
hagfræði og
stjórnmálafræði
frá University of Manchester 1965
og doktorsprófi í stjórnmálafræði
þaðan árið 1970.
Ólafur Ragnar hefur gegnt emb-
ætti forseta frá 1996, eða lengur en
nokkur annar forseti lýðveldsins.
Samkvæmt upplýsingum frá skrif-
stofu forseta er Ólafur Ragnar
staddur á landinu. Ekkert sérstakt
stendur til vegna afmælisins annað
en að fagna því í faðmi fjölskyld-
unnar í kvöld. »34-35
Ólafur Ragnar
Grímsson sjötugur
Ólafur Ragnar
Grímsson
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur lagt til að gripið
verði til refsiaðferða gegn Fær-
eyingum af hálfu sambandsins
vegna ákvörðunar þeirra um að
setja sér einhliða kvóta úr norsk-
íslenska síldarstofninum. Fram kom
á fréttavefnum Scotsman.com í gær
að þetta gæti þýtt að innflutnings-
bann yrði sett á færeyska síld til
ríkja ESB og einnig að skipum frá
sambandinu yrði bannað að veiða
síld í færeyskri lögsögu.
Einnig sagði í fréttinni að emb-
ættismenn framkvæmdastjórn-
arinnar væru enn að skoða lagalegar
hliðar þess að grípa til hliðstæðra
refsiaðgerða gegn Íslendingum og
Færeyingum vegna makríldeil-
unnar. Þeir hefðu í hyggju að funda
sem fyrst með nýrri ríkisstjórn Ís-
lands til þess að ræða stöðuna í deil-
unni. „Það eru góðar fréttir að loks-
ins sé komin raunveruleg hreyfing á
aðgerðir sem miði að því að refsa
Færeyingum fyrir óábyrgar veiðar
þeirra,“ er haft eftir Richard Loch-
head, sjávarútvegsráðherra Skot-
lands, en hann var staddur í dag á
fundi ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins þar sem þessi mál voru
rædd.
Lochhead lýsti hins vegar von-
brigðum sínum yfir að ekki hefði enn
verið ákveðið af hálfu Evrópusam-
bandsins að grípa til refsiaðgerða
gegn Íslendingum og Færeyingum
vegna makrílveiða þeirra. Sagðist
hann vona að það yrði gert innan
skamms. hjorturjg@mbl.is
Hyggjast refsa Færeyingum
Makríll ESB hótar refsiaðgerðum
vegna veiða Íslands og Færeyja.
ESB skoðar
einnig Ísland