Morgunblaðið - 14.05.2013, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2013
Bíólistinn 10.-12. maí 2013
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Star Trek: Into Darkness
Iron Man 3
The Place Beyond the Pines
Croods
Evil Dead
Latibær Bíóupplifun
Mama
Olympus Has Fallen
The Call
Oblivion
Nýtt
1
2
4
3
8
Ný
6
7
5
1
3
2
7
2
3
1
4
3
5
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Nýjasta Star
Trek-kvikmynd-
in, Star Trek –
Into Darkness,
var frumsýnd
fyrir helgi og er
hún tekjuhæsta
kvikmynd helg-
arinnar í bíó-
húsum hér á
landi. Í myndinni
tekst áhöfnin á
geimskipinu Enterprise; Spock,
Kirk og félagar á við nýjan og stór-
hættulegan óvin sem hyggst fremja
skelfileg hryðjuverk.
Járnmaðurinn þarf að sætta sig við
annað sætið á listanum eftir
tveggja vikna setu á toppnum. Nýj-
asta kvikmynd leikarans Ryans
Gosling, The Place Beyond the Pi-
nes, er sú þriðja tekjuhæsta að lok-
inni helgi.
Bíóaðsókn helgarinnar
Spock og
félagar á
toppnum
Zachary Quinto
leikur Spock
Níu útskriftarnemendur í samtíma-
dansi við Listaháskóla Íslands
verða með lokasýningu á stóra sviði
Þjóðleikhússins. Frumsýningin er í
kvöld klukkan 20 og á morgun,
miðvikudag verða tvær sýningar
til, klukkan 17 og 21.
Aðstandendur sýningarinnar lofa
sannkallaðri dansveislu en frum-
sýnd verða tvö ný íslensk dansverk.
Þau eru ólík og reyna bæði á tækni-
getu og sköpunarhæfileika dans-
aranna. Þá er tónlistin við verkin
einnig frumsamin og flutt lifandi.
Annað verkið nefnist „Eyja“ og
er eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur
og útskriftarhópinn. Eva Signý
Berger og Mao gera leikmynd og
búninga og tónlist er eftir Lilju
Björk Runólfsdóttur útskriftarnem-
anda í tónsmíðum. Verkið fjallar
um stöðu konunnar í samfélagi
hraða og áreitis. Hitt verkið nefnist
„Áferð“ og er eftir Margréti
Bjarnadóttur, Sögu Sigurðardóttur
og útskriftarhópinn. Tónlist er eftir
Good Moon Deer, Guðmund Inga
Úlfarsson og Ívar Pétur Kjartans-
son. Eva Signý Berger hannar leik-
mynd og búninga. Í þessu verki
leyfðu höfundar efninu, sem eru
dýnur, að leiða sig áfram og er
sköpunargleðin útgangspunktur og
veganesti. Aðgangur er ókeypis.
Útskriftarsýning dansara
Sköpunargleði Útskriftarhópurinn vann með kunnum danshöfundum.
Árleg „Vorvindaviðurkenning“
IBBY, samtaka um barnabók-
menntir og barnamenningu, var af-
hent um helgina. Þrjár voru veittar
að þessu sinni fyrir störf að barna-
menningu. Þær hlutu Kúlan –
barnaleikhús og rithöfundarnir
Gunnar Helgason, Birgitta Sif og
Kristjana Friðbjörnsdóttir.
Í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu fer
fram metnaðarfullt starf og hafa
verið settar upp þar fjölmargar sýn-
ingar fyrir yngstu leikhúsgestina og
leikskólabörnum boðið þangað í
heimsókn að kynnast leikhúsinu.
Gunnar Helgason hefur unnið
fjölþætt starf fyrir börn á sviðum
leik-, söng- og ritlistar. Nýjustu
bækur hans, Víti í Vestmannaeyjum
og Aukaspyrna á Akureyri eru sagð-
ar skrifaðar af næmni og kímni og
gleðja lesendahóp sem ekki á alltaf
auðvelt með að finna lesefni við hæfi.
Kristjana Friðbjörnsdóttir hefur
skrifað sex barnabækur, þrjár um
spæjarann Fjóla Fífils og þrjár um
hina óforbetranlegu Ólafíu Arndísi.
Sögurnar eru að sögn dómnefndar
IBBY sagðar bráðfyndnar og
skemmtilegar.
Birgitta Sif er nýliðinn í hópnum,
en hennar fyrsta bók, Ólíver, kom út
í Bretlandi um svipað leyti og hér.
Birgitta skrifaði söguna og teiknaði.
Söguheimurinn er sagður fjöl-
breyttur og lifandi og boðskapurinn
hlýr og fallegur.
Vorvindaviðurkenningar IBBY
hafa verið afhentar árlega frá árinu
1987 og eiga þær að vekja athygli á
þeim fersku vindum sem blása í
barnamenningunni hverju sinni.
Arndís Þórarinsdóttir, formaður
IBBY á Íslandi, segir það vera
markmið stjórnar samtakanna að
fylgjast með því sem vel er gert á
þessu sviði og vekja athygli á því. „Á
vorin förum við að rifja upp hvað
stóð upp úr því góða starfi sem unnið
er á sviði barnamenningar,“ segir
hún „Það er erfitt að skrifa og skapa
efni fyrir börn, fjárhagslega og á
annan hátt, og okkur finnst mikil-
vægt að hvetja til dáða þá sem hafa
verið að standa sig vel. Athyglin
beinist mikið að bókmenntum en
engu að síður hefur þetta með alla
barnamenningu að gera.“
Rithöfundar og Kúlan
hlutu viðurkenningu
Árlegar Vorvinda-
viðurkenningar
IBBY afhentar
Ljósmynd/Áslaug Jónsdóttir
Verðlaunahafar Sigþrúður Gunnarsdóttir tók við viðurkenningu Birgittu
Sifjar, Þórhallur Sigurðsson og Tinna Gunnlaugsdóttir frá Þjóðleikhúsinu,
og rithöfundarnir Kristjana Friðbjörnsdóttir og Gunnar Helgason.
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 5:10 - 8 - 10:45
STARTREKINTODARKNESS2D KL.7:20-10:10
STARTREKINTODARKNESS VIP KL. 5:10 - 8 - 10:45
PLACE BEYOND THE PINES KL. 5:10 - 8 - 10:50
IRON MAN 33D KL. 5:10 - 8 - 10:40
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 5:30 - 8 - 10:30
BURT WONDERSTONE KL. 5:10 KRINGLUNNI
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:10
BURT WONDERSTONE KL. 8
ÓFEIGUR GENGUR AFTUR KL. 5:50
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 5:10 - 8 - 10:50
STARTREKINTODARKNESS2D KL.4:40-7:30-10:20
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 7:30
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:10
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 5
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
STARTREKINTODARKNESS3D KL. 8 - 10:40
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:40
IRON MAN 3 2D KL. 5:20 - 8
THE CROODS ÍSLTAL KL. 5:50
AKUREYRI
STAR TREK INTO DARKNESS 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
IRON MAN 3 3D KL. 5:20 - 8
PLACE BEYOND THE PINES KL. 10:40
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
H.S. - MBL
GRJÓTHÖRÐ SPENNUMYND
Í ANDA DIE HARD
NEW YORK OBSERVER
THE PLAYLIST
J.J. ABRAMS ER MÆTTUR MEÐ BESTU
HASARMYND ÞESSA ÁRS!
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
STÓRFENGLEG
EXHILARATING
ALDEILIS RÚSSÍBANI, ÞESSI MYND.
SJÁÐU HANA!
FRÁBÆR