Morgunblaðið - 14.05.2013, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2013
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Á þessum tíma árs beinast augu
margra veiðimanna að Þingvallavatni
og þar hafa menn verið að setja í eina
og eina bleikju, og sumar rígvænar;
þær eru að byrja að gefa sig þótt
„gömlu mennirnir“ hafi oft sagt þær
ekki leita upp á grunnið fyrr en birkið
færi að bruma seint í maí. En fyrir
mörgum er maí urriðatíminn í Þing-
vallavatni og einn þeirra sem hafa
veitt fágæta fallega urriða í vatninu
er Tómas Za, starfsmaður Veiði-
flugna. Hann landaði rétt tæplega
tuttugu punda fiski þar á dögunum,
sá tók Black Ghost, og Tómas hefur
náð fleiri stórum síðan. Hann sleppir
öllum urriðunum og hvetur menn til
að gera það sama.
„Alvörudrjólar“
„Það virðist vera nóg af urriða á
ferðinni,“ segir Tómas. „Ég heyri að
einhverjir urriðar séu að koma upp á
hverju kvöldi, í landi þjóðgarðsins og
annars staðar í vatninu.“
Hann segist hafa heyrt um „al-
vörudrjóla“ sem menn hafi veitt, jafn-
vel stærri en þann sem hann veiddi á
dögum, en veiðimennirnir vilji ekkert
vera að flagga þeim árangri.
„Það virðist vera óvenjugott líf í
vatninu en ég held að menn verði að
passa sig, of margir eru að drepa
þessa stóru fiska. Þetta er einstakur
stofn og ástæða þess að hann er
svona góður núna er að fyrir um tíu
árum var sleppt um 130.000 seiðum í
vatnið. Ef menn drepa þessa fiska
verður stofninn fljótur að minnka,“
segir hann.
Í Hlíðarvatni í Selvogi er veitt á
fjórtán dagsstangir. Vatnið hefur ver-
ið eftirlæti margra en á síðustu árum
hafa sumir haft áhyggjur af minnk-
andi veiði. Í nýlegri skýrslu Veiði-
málastofnunar koma fram vísbend-
ingar um að stofninn hafi í fyrra
aðeins verið þriðjungur af því sem
hann var fyrir nokkrum árum og er
grunur um að hlýjum sumrum og
nýrnaveiki kunni að vera um að
kenna. En óhætt er að segja að marg-
ir veiðimenn hafi snúið kátir heim úr
Hlíðarvatni síðustu daga því stór-
bleikjur hafa fest sig á flugum þeirra.
Blaðamaður hefur séð og heyrt um
allnokkra fiska á bilinu 52 til 58 cm
langa, en sum sumur veiðast kannski
tveir eða þrír slíkir.
62 cm á tveggja punda taum
Vitað er um eina sex punda sem
var landað við Djúpanef og þá veiddi
María P. Ingólfsdóttir fágæta fínan
fisk á „kúlulausan Killer“ í Botnavík.
Bleikjan mældist 62 cm löng að sögn
veiðifélaga Maríu, Vilborgar Reyn-
isdóttur, formanns Stangaveiðifélags
Hafnafjarðar. „Og María var bara
með tveggja punda taum! Hún þorði
ekki að segja mér frá því fyrr en við
vorum á leið heim um kvöldið,“ segir
Vilborg og hlær. „Við vorum búnar að
horfa á bleikjuna synda fram og til
baka, um þrjá metra frá bakkanum,
og önnur hvor okkar varð bara að
taka hana. Þetta var æðislegt, enda
hafði María aldrei fengið svona stóra
bleikju. Þetta var risastór fiskur og í
rauninni leiðinlegt að drepa hana. En
við sleppum næstu stóru í staðinn.“
Á uppstigningardag var síðan
hörkufín veiði í Hlíðarvatni er veidd-
ust um 100 bleikjur á ýmsar flugur.
Vötnin eru víðar að taka við sér. Í
Elliðavatni hafa menn verið að setja í
fallega urriða og í Vífilsstaðavatni
tekur ein og ein bleikja. Þá fréttist af
feðgum sem héldu til veiða í Laug-
arvatni og lönduðu tuttugu á flugu,
allt að sex punda.
„Þetta var risastór fiskur“
Vænir urriðar veiðast í Þingvallavatni Veiðimaður sem þekkir stórfiskana varar við drápi úr
stofninum Óvenjumargar stórbleikjur taka fluguna í Hlíðarvatni „Sleppum næstu stóru í staðinn“
Morgunblaðið/Einar Falur
Væn Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Þorsteinn J. Vilhjálmsson er einn þeirra sem hafa náð óvenjustórum bleikjum í
Hlíðarvatni þetta vorið. Þessi rétt komst í háfinn við Kaldóshólma og mældist 55 cm löng og vó fimm pund slétt.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
6
0
5
Nýr og enn betri Mercedes-Benz GLK
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Nýr Mercedes-Benz GLK er einstaklega öflugur og ríkulega búinn sportjeppi. Dráttargetan er heil 2.400 kg og
hann eyðir aðeins 6,5 l/100 km í blönduðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til
sýnis og reynsluaksturs. Verð frá 7.590.000 kr. (220 CDI með 7 þrepa sjálfskiptingu). Til afhendingar strax.
www.mercedes-benz.is.
- . .
og hann eyðir aðeins 6,5 l/100 km í blönd ðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK
til sýnis og reynsluaksturs. Verð frá 7.590. 00 kr. (220 CDI með 7 þrepa sjálfsk ptingu).
www.mercedes-benz.is.