Morgunblaðið - 14.05.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2013
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Lögreglan ætlar ekki að byrja að
sekta ökumenn sem enn eru á nagla-
dekkjum fyrr en eftir hvítasunnu-
helgi. Reglur kveða á um að óheimilt
sé að aka á nagladekkjum frá 15. apríl
til 31. október.
„Ákvæði reglugerðarinnar segir að
dagsetningin falli um sjálfa sig ef
akstursskilyrði krefjast vetrarbúnað-
ar sem sannarlega hefur verið allt í
kringum okkur og jafnvel á höfuð-
borgarsvæðinu með næturfrosti,“
segir Guðbrandur Sigurðsson, aðal-
varðstjóri umferðardeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrirspurnir nær daglega
Þó að það sé hálka á heiðum eða
snjór á Raufarhöfn eða Vestfjörðum
þýðir það þó ekki að menn megi keyra
á nagladekkjum á höfuðborgarsvæð-
inu að sögn Guðbrands
„Hins vegar hefur verið almennt
það mikill snjór og ísing á heiðum víða
í byggð úti á landi og á heiðum að við
höfum ekki talið rétt að beita sektum
fyrr,“ segir hann.
Framundan er hvítasunnuhelgi
sem Guðbrandur segir að búast megi
við að margir nýti til ferðalaga innan-
lands. Akstursskilyrði utan höfuð-
borgarsvæðisins séu þannig að lög-
regla hafi komist að þeirri niðurstöðu
að hún ætli ekki að byrja að sekta
menn á nagladekkjum fyrr en eftir
helgina.
„Við höfum fengið fyrirspurnir í
hverri viku og jafnvel daglega frá
mönnum sem ætla út á land um hvort
þeir megi vera á nagladekkjum. Við
segjum fólki að við gerum enga at-
hugasemd við það. Allt snýst þetta
um umferðaröryggi og hvernig bíllinn
er búinn fyrir aðstæður,“ segir hann.
Taki naglana
undan bílunum
Guðbrandur hvetur þó
alla þá sem ekki þurfa á
nagladekkjum að halda að
taka þau af. Fyrir þá sem
aka aðeins á höfuð-
borgarsvæðinu og
standi ekki í næt-
urakstri sé engin
þörf fyrir negldu
dekkin lengur.
Sekta ekki fyrr en
eftir ferðahelgina
Nagladekkin fá að vera áfram vegna akstursskilyrða
„Á minni reglulegu morgun-
göngu í morgun varð ég soldið
pirraður að heyra og sjá hve
margir keyra enn um borgina á
nagladekkjum. Nagladekk valda
svifryki og slíta götum hundr-
aðfalt meira en önnur dekk,“
skrifaði Jón Gnarr, borgarstjóri í
dagbók sína á Facebook um
helgina.
Velti hann því fyrir sér hvort
fólki sem æki á nagladekkjum
væri sama um skaðann sem
það ylli. Borgin þyrfti árlega
að endurnýja um
10.000 tonn af mal-
biki eingöngu
vegna slits af
völdum nagla-
dekkjanna.
Nagladekkin
valda svifryki
BORGARSTJÓRI
Jón Gnarr
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skipti Nagladekkin áttu að fara undan bílum 15. apríl en vegna aðstæðna er heimilt að hafa þau lengur undir.
Jakob Jóhanns-
son, krabba-
meinslæknir og
yfirlæknir
geislameðferðar
krabbameina á
Landspítala-
num, var kjörinn
nýr formaður
Krabbameins-
félags Íslands á
aðalfundi
félagsins nýverið.
Jakob hefur verið í stjórn Krabba-
meinsfélags Íslands í fimm ár, þar af
sem varaformaður í tvö ár. Hann
hefur verið starfandi formaður fé-
lagsins í rúman mánuð en þá óskaði
Sigríður Snæbjörnsdóttir, þáver-
andi formaður, eftir lausn frá stjórn-
arstörfum vegna annarra verkefna.
Sigríður hafði verið formaður
Krabbameinsfélags Íslands í fimm
ár.
Krabbameinsfélag Íslands var
stofnað árið 1951, fyrir 62 árum, og
er Jakob níundi formaður þess.
Nýr formað-
ur kjörinn
Jakob
Jóhannsson
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt Sjóvá-Almennar tryggingar
til að greiða 62 ára gamalli konu tæp-
ar fimm milljónir króna vegna var-
anlegs miska og varanlegrar örorku
sem rekja má til slyss sem hún varð
fyrir í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli
í mars 2007. Þá þarf Sjóvá að greiða
tæpar tvær milljónir í málskostnað.
Óumdeilt var í málinu að konan
rann til og féll fram fyrir sig í innrit-
unarsal Leifsstöðvar að morgni 8.
mars 2007 og hlaut af skaða. Óum-
deilt var einnig að fyrirtækið hafði
ábyrgðartryggingu hjá Sjóvá þegar
slysið varð.
Hins vegar greindi aðila máls á um
hvort konan skyldi bera tjón sitt sjálf
eða hvort orsök slyssins mætti með
vissu rekja til aðstæðna sem fellt
gæti bótaábyrgð á fyrirtækið vegna
afleiðinga slyssins í Leifsstöð.
Konan slasaðist á hnjám við fallið
og var varanlegur miski talinn vera
18 stig; vegna vinstra hnés 15 stig og
vegna hægra hnés þrjú stig. Varan-
leg örorka var þá metin 20% frá því
að heilsufar hennar var orðið stöð-
ugt, en það tímamark var ákveðið 8.
mars 2008, tólf mánuðum eftir slysið.
Kona fær bætur
fyrir fall í Leifsstöð
Sjóvá þarf að greiða fimm milljónir
Morgunblaðið/Ernir
Leifsstöð Óhappið varð í innrit-
unarsal flugstöðvarinnar.
Dagskrá
1. Fundur settur.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Gerð grein fyrir ársreikningi.
4. Tryggingafræðileg úttekt.
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt.
6. Önnur mál.
Ársfundur 2013
Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn.
Stjórn Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda
Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
verður haldinn þriðjudaginn 14. maí 2013
kl. 16:30, að Grand Hótel Sigtúni 38, Reykjavík.
Reykjavík 23. 04. 2013
Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæða-
flokki frá þekktum ítölskum framleiðendum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Full búð af
flottum flísum