Morgunblaðið - 16.05.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Það geta allir
notað golfkortið
Til eru tvær gerðir af golfkortinu,
einstaklingskort og fjölskyldukort.
Einstaklingskort kostar kr. 9.000
Fjölskyldukort kostar kr. 14.000 og gildir fyrir
tvo fullorðna og tvö börn 16 ára og yngri.
30
Golfvellir
1 kort
Golfkortið veitir fría spilun á 28
golfvelli víðsvegar um landið.
Að auki gildir kortið
2 fyrir 1 á nokkra velli.
Allar nánari upplýsingar má
finna á heimasíðu okkar
www.golfkortid.is
www.golfkortid.is www.golfkortid.is
Veðrið lék við þátttakendur í barnavagnagöngu í gær í Elliða-
árdalnum, en Barnavagnavika Ferðafélags Íslands hófst sl.
mánudag. Gengið verður áfram út vikuna og í dag verður lagt
upp frá Nauthól en á morgun frá Húsdýragarðinum. Brottför
er kl. 12 og fararstjóri er Auður Kjartansdóttir. Barnavagna-
ganga er hressileg ganga fyrir mömmur og pabba, afa og
ömmur, með léttum æfingum, teygjum og slökun og tekur
ekki nema rétt rúma klukkustund. Að ganga með barnavagna
og kerrur hefur lagst vel í borgarbúa og mæting verið góð.
Morgunblaðið/Ómar
Pabbar, mömmur, afar og ömmur gengu fylktu liði með barnavagna niður Elliðaárdalinn
Mikil og góð þátttaka í Barnavagnaviku Ferðafélags Íslands
Maðurinn sem var handtekinn í síð-
ustu viku í tengslum við mannslát á
Egilsstöðum hefur hvorki neitað né
játað að hafa ráðið manninum bana.
Ekki náðist í Jónas Wilhelmsson,
yfirlögregluþjón á Eskifirði, sem
fer með rannsókn málsins, en í
fréttum RÚV var haft eftir honum
að rannsóknin væri í góðu ferli.
Heimildir RÚV hermdu að búið
væri að senda sýni til Svíþjóðar í
DNA-rannsókn. Niðurstaða lægi
fyrir á næstu vikum.
Hefur hvorki játað
né neitað sök
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Framkvæmdir sem fyrirhugaðar
eru í miðborg Reykjavíkur voru
kynntar á opnum fundi í gær en
bæði aðilar ferðaþjónustunnar og
verslunarrekendur hafa lýst
áhyggjum af lokun gatna í sumar.
Klapparstígur neðan Hverfisgötu
og hlutar Hverfisgötu og Frakka-
stígs verða lokaðir í sumar meðan á
framkvæmdum þar stendur.
„Það gera sér allir grein fyrir að
menn fara ekki í svona fram-
kvæmdir án þess að það valdi rösk-
un. Þetta hefur tímabundin áhrif á
ferðaþjónustuna en vonandi fáum
við fallegri borg sem heilsársdval-
arstað fyrir vikið. Framkvæmdirnar
eru til þess gerðar að gera miðborg-
ina betri fyrir íbúa, rekstraraðila og
gesti,“ segir Einar Bárðarson, for-
stöðumaður Höfuðborgarstofu.
Að sögn Gunnars Vals Sveins-
sonar, verkefnastjóra hjá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar, áttu
fulltrúar samtakanna fund með
borgaryfirvöldum á mánudag til að
ræða framkvæmdirnar. „Borgin
ætlar að gera sitt besta til þess að
umferð gangi eðlilega fyrir sig með-
an á framkvæmdunum stendur. Við
vonumst til þess að borgin verði við
því að flýta framkvæmdum svo
þetta verði ekki langur tími, þar
sem Klapparstígur og Hverfisgata
frá Klapparstíg til Frakkastígs eru
lokuð á sama tíma. Þeir eru meðvit-
aðir um það hjá borginni,“ segir
Gunnar.
Fjöldi gistirýma er við Hverfis-
götu og Laugaveg við Klapparstíg
og því mikilvægt að hópferðabílar
komist þar að. Að öðrum kosti segir
Gunnar að bílarnir þurfi að leggja
við Arnarhól og gestir að ganga
þaðan. „Við erum ánægð með að
hafa fengið þennan fund og að borg-
in sýni þessu skilning. Við trúum
því og treystum að það verði þann-
ig.“
Treysta á að framkvæmdum í
borginni í sumar verði flýtt
Nokkrar götur í miðborginni lokaðar Áhyggjur ferðaþjónustu af aðgengi
Morgunblaðið/Kristinn
Miðborg Miklar endurbætur hafa þegar verið gerðar á Klapparstíg.
Annir voru hjá lögreglu og björg-
unarsveitum á Austurlandi í gær
vegna ófærðar á heiðum.
Var björgunarsveitin Hérað m.a.
kölluð út frá Egilsstöðum til að
aðstoða ökumann bifreiðar sem
festist í fannfergi á Breiðdalsheiði.
Að sögn lögreglunnar á Egils-
stöðum lentu margir ökumenn á
fólksbílum á sumardekkjum í vand-
ræðum þegar bæta tók í vind í gær.
Við það hefði snjór fokið til og heið-
arnar fljótt orðið ófærar.
Gekk veðrið niður með deginum.
Ófært á heiðum
á Austurlandi
Karlmaður á fertugsaldri var í gær
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29.
maí að kröfu lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu. Hann var hand-
tekinn á þriðjudag og er talinn
hafa numið á brott stúlku á ellefta
ári og brotið kynferðislega gegn
henni.
Foreldrar stúlkunnar tilkynntu
lögreglu brotið síðdegis á þriðju-
dag en þá var hún nýkomin heim
til sín í Vesturbæ Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu var stúlkan á leið heim úr
skóla á þriðja tímanum eftir há-
degi þegar ókunnugur maður tók
hana með valdi og setti í aftursæti
bifreiðar sem hann ók. Því næst ók
hann með stúlkuna á afvikinn stað
í útjaðri höfuðborgarsvæðisins og
þar er maðurinn talinn hafa beitt
hana kynferðisofbeldi.
Að því loknu keyrði maðurinn
stúlkuna aftur í Vesturbæinn þar
sem hann hleypti henni út, en þó
fjarri heimili hennar. Þaðan gekk
stúlkan heim til sín. Á meðan mað-
urinn hélt henni nauðugri hafði
hann í grófum hótunum við hana.
Komið við sögu lögreglu áður
Eftir að lögreglu hafði verið til-
kynnt málið var stúlkan flutt á
sjúkrahús til skoðunar og var
fulltrúi barnaverndaryfirvalda kall-
aður til. Í kjölfarið var hafin um-
fangsmikil leit að manninum og
ökutæki hans. Bíllinn fannst
skömmu síðar við heimili mannsins
í austurborginni og var hann
heima þegar lögreglu bar að garði.
Hann var handtekinn og færður á
lögreglustöð.
Í tilkynningu lögreglu vegna
málsins segir að þakka megi stúlk-
unni sjálfri það að maðurinn hafi
verið handtekinn. Hún hafi getað
gefið greinargóða lýsingu á mann-
inum, bílnum og leiðinni sem hann
ók. Hann mun hafa komið áður við
sögu lögreglu, þó ekki vegna brota
af þessu tagi. Óskaði lögregla eftir
gæsluvarðhaldi yfir honum á
grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Ekki er ljóst hvort maðurinn
hyggst áfrýja úrskurði héraðs-
dóms.
Braut gegn tíu ára telpu
Nam telpuna á brott í Vesturbæ Reykjavíkur og beitti
hana kynferðisofbeldi Settur í gæsluvarðhald til 29. maí
Morgunblaðið/Júlíus