Morgunblaðið - 16.05.2013, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Ekki sér fyrir endann á samdrátt-
arskeiðinu í evruríkjunum 17 miðað
við hagtölur, sem birtust í Evrópu í
gær. Þannig dróst landsframleiðsla
saman að meðaltali um 0,2% á evru-
svæðinu á síðasta ársfjórðungi og
síðustu 12 mánuði hefur samdrátt-
urinn numið 1%. Alls hefur lands-
framleiðsla á evrusvæðinu nú dreg-
ist saman í sex ársfjórðunga
samfellt, lengsta samdráttarskeið
frá því evran var tekin í notkun um
aldamótin.
„Þessar tölur sýna enn og aftur að
evrusvæðið er áfram veikasti hlekk-
urinn í hagkerfi heimsins,“ hefur
AFP-fréttastofan eftir Peter Vand-
en Houte, sérfræðingi greiningar-
deildar hollenska bankans ING.
Houte bætti þó við að ekki væri úti-
lokað að úr færi að rætast á síðari
hluta ársins.
Landsframleiðsla jókst um 0,1% í
Þýskalandi á tímabilinu frá janúar til
mars, samanborið við ársfjórðung-
inn á undan en þá mældist 0,7% sam-
dráttur í þessu stærsta hagkerfi
Evrópu.
En í Frakklandi dróst landsfram-
leiðsla saman um 0,2% á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs. Þar er
nú hafið samdráttarskeið samkvæmt
hefðbundnum skilgreiningum hag-
fræðinga en franska hagkerfið dróst
einnig saman um 0,2% á síðasta
fjórðungi ársins 2012. Þá mældist
0,5% samdráttur í landsframleiðslu
bæði Spánar og Ítalíu. „Við efumst
um að varanlegur efnahagsbati sé í
augsýn á svæðinu,“ sagði Ben May,
sérfræðingur hjá Capital Economics
í Lundúnum, við AFP.
19 milljónir án atvinnu
Um það bil 19 milljónir manna á
evrusvæðinu eru nú án atvinnu en
þar búa samtals um 340 milljónir.
Atvinnuleysi í Grikklandi og á Spáni
mælist nú um 27%. Þá mælist at-
vinnuleysi 10,6% í Frakklandi.
gummi@mbl.is
Ekki sér fyrir endann
á samdráttarskeiði
Landsframleiðsla á evrusvæði dróst saman um 1% á
síðasta ári Samdráttur mælist nú í franska hagkerfinu
Bandaríska skatt-
stofan, IRS, sætir
nú harðri gagn-
rýni fyrir rann-
sókn, sem gerð
var á íhalds-
sömum sam-
tökum, tengdum
Teboðshreyfing-
unni svonefndu,
sem sóttu um
undanþágur frá skattareglum.
Niðurstaða rannsóknar á vegum
bandaríska fjármálaráðuneytisins
bendir til þess að skattstofan hafi
ekki haft hlutleysi og meðalhóf að
leiðarljósi við þessa rannsókn og
starfsmenn hennar hafi látið stjórn-
ast af fordómum og dregið vísvitandi
lappirnar við að afgreiða umsókn-
irnar.
Barack Obama, Bandaríkjaforseti,
sagði í vikunni, að framganga skatt-
stofunnar væri óafsakanleg og óþol-
andi. Hann lagði áherslu á að Hvíta
húsið hefði ekki vitað af málinu fyrr
en skýrslu fjármálaráðuneytisins var
skilað fyrir nokkrum vikum.
Eric Holder dómsmálaráðherra
hefur falið bandarísku alríkislögregl-
unni, FBI, að rannsaka hvort starfs-
menn IRS hafi brotið lög. Þá hafa for-
ustumenn Repúblikanaflokksins
hvatt Obama til að skipa sérstakan
saksóknara til að rannsaka málið.
En Holder og FBI sæta einnig
gagnrýni eftir að í ljós kom að lög-
regla lagði hald á gögn um símtöl
blaðamanna fréttastofunnar Associa-
tet Press. Holder varði þessar að-
gerðir og sagði að þær hefðu tengst
rannsókn á mjög alvarlegum upplýs-
ingaleka sem hefði ógnað öryggi
bandarísks almennings.
Málið virðist tengjast rannsókn á
frétt um hryðjuverkaáform. AP-
fréttastofan segir að í fréttinni hafi
verið fjallað um aðgerðir bandarísku
leyniþjónustunnar CIA í Jemen á síð-
asta ári en þá hafi tekist að koma í
veg fyrir áform hryðjuverkasamtak-
anna al-Qaeda um að koma sprengju
fyrir í farþegaflugvél á leið til Banda-
ríkjanna.
Yfir 50 bandarískar fréttaveitur,
þar á meðal Dow Jones, New York
Times og Washington Post, sendu í
gær frá sér formleg mótmæli vegna
málsins. Bæði þessi mál eru óþægileg
fyrir Obama sem hefur lagt áherslu á
að bæta samskiptin við Bandaríkja-
þing. gummi@mbl.is
Alríkisstofnanir
á hálum ís
Rannsóknir sæta gagnrýni
Barack Obama
Þýskir umhverfisverndarsinnar föðmuðu í vikunni tré í
Gruga-skemmtigarðinum í Essen til að sýna ást sína á
óspilltri náttúru. Um var að ræða þátt í herferð á veg-
um alþjóðlegu umhverfissamtakanna WWF og sjón-
varpsstöðvarinnar Pro Sieben sem hvöttu fólk til að
sýna trjám sérstaka athygli.
AFP
Innilegt samband við trjágróður
Þýskir umhverfissinnar taka þátt í herferð í Essen
GLUGGAR OG GLERLAUSNIR
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
• tré- eða ál/trégluggar
og hurðir
• hámarks gæði og ending
• límtré úr kjarnaviði af norður
skandinavískri furu
• betri ending
— minna viðhald
• lægri kostnaður þegar fram
líða stundir
• Idex álgluggar eru íslensk
framleiðsla
• hágæða álprófílakerfi
frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir
og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
Byggðu til framtíðar
með gluggum frá Idex