Morgunblaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013 Björn Bjarnason, fyrrverandimenntamálaráðherra, er hugsandi yfir ráðningarmálum tveggja menningarstofnana. Hann skrifar:    Kristinn E.Hrafnsson myndlistarmaður heldur áfram að skrifa um ráðningu nýs rektors Listahá- skóla Íslands í Morgunblaðið. Við blasir að stjórn skólans hefur að minnsta kosti farið á svig við lög ef ekki brotið þau með vali sínu á eft- irmanni Hjálmars H. Ragnarssonar.    Skrýtin er röksemdin að nýi rekt-orinn hafi ekki kennt við skól- ann af því að hann hafi ekki haft tíma til þess þegar tilmæli bárust og að þetta skuli notað sem rök fyr- ir ráðningunni.    Hið einkennilega við þessar um-ræður er að ekki skuli birt nöfn umsækjenda um rektorsstöð- una.    Þá er furðulegt að ekki skuli birtnöfn þeirra sem sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Sinfón- íuhljómsveitar Íslands.    Rétt er að minna á að fulltrúarVG sitja í formennsku stjórna beggja þessara stofnana en leynd- arhyggja sýnist vera kær trúnaðar- mönnum flokksins.    Á sínum tíma lá ekki í augumuppi hvaða leið mundi duga til að skapa sátt þegar Listaháskóli Ís- lands kom til sögunnar.    Sé ekki gætt vandaðra stjórn-sýsluhátta við allar ákvarðanir vegna yfirstjórnar skólans er vegið að stoðum hans.“ Björn Bjarnason Leyndarhyggja STAKSTEINAR Veður víða um heim 15.5., kl. 18.00 Reykjavík 7 skýjað Bolungarvík 2 skýjað Akureyri 3 alskýjað Nuuk 0 snjókoma Þórshöfn 6 skýjað Ósló 10 skýjað Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Stokkhólmur 12 heiðskírt Helsinki 13 heiðskírt Lúxemborg 12 skýjað Brussel 15 heiðskírt Dublin 8 skúrir Glasgow 12 léttskýjað London 12 léttskýjað París 16 skýjað Amsterdam 13 léttskýjað Hamborg 22 skúrir Berlín 25 heiðskírt Vín 22 léttskýjað Moskva 21 skýjað Algarve 20 léttskýjað Madríd 12 léttskýjað Barcelona 16 skúrir Mallorca 20 léttskýjað Róm 18 skýjað Aþena 22 heiðskírt Winnipeg 16 skýjað Montreal 16 alskýjað New York 14 alskýjað Chicago 26 skýjað Orlando 26 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:08 22:41 ÍSAFJÖRÐUR 3:47 23:12 SIGLUFJÖRÐUR 3:29 22:56 DJÚPIVOGUR 3:32 22:17 Við sérhæfum okkur í vatnskössum og bensíntönkum. Gerum við og eigum nýja til á lager. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Síldarvinnslan hefur óskað eftir leyfi bæjarfélagsins Fjallabyggðar til að rífa mjölhúsið á Siglufirði sem er í eigu fyrirtækisins. Umsóknin var rædd á fundi bæjarstjórnar í gær- kvöldi en afgreiðslu hennar var frestað að ósk eigenda hússins. Einhverjir bæjarbúar eru þó ósáttir við þau áform og hafa ritað bæjaryfirvöldum erindi vegna niður- rifsins. Þeir vilja að það fari í grenndarkynningu svo íbúarnir fái að segja sitt um málið. Einnig hafa þeir áhyggjur af tekjutapi bæjarins vegna glataðra fasteignagjalda. Steingrímur Kristinsson er einn þeirra en hann segir að margir vilji að bærinn geri eitthvað við húsið því það megi nota til margvíslegra hluta. „Það eru margar ástæður gegn niðurrifi. Í fyrsta lagi tapar bærinn fasteignagjöldum en það eru nóg not fyrir húsið. Menn hafa komið varð- andi námugröft á Grænlandi og hef- ur litist vel á húsið sem olíugeymslu fyrir starfsemina,“ segir hann. Að sögn Ingvars Erlingssonar, forseta bæjarstjórnar Fjallabyggð- ar, ber bænum hins vegar engin skylda til að fara með niðurrif húss- ins í grenndarkynningu eða e.k. mat. Auk þess sé erfitt fyrir bæinn að hafna beiðni eigenda hússins um að fá að rífa það. Til þess þurfi mjög haldbær rök og þá þyrftu að lík- indum að koma til bætur eða að bærinn eignaðist húsið. „Það er nokkuð sem menn hafa ekki séð sér neinn hag í því að gera,“ segir Ingvar. Finna önnur not fyrir svæðið Hann segir jafnframt að tekjutap vegna glataðra fasteignagjalda verði væntanlega tímabundið. „Ef þetta hús fer þá yrði það okk- ar fyrsta verk að skipuleggja önnur not fyrir svæðið sem falla að um- hverfinu og þörfum sveitar- félagsins,“ segir Ingvar. Til skoðunar að rífa mjölhúsið  Ósáttir íbúar senda erindi til bæjarstjórnar Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Geymsla Mjölhúsið á Siglufirði var fyrst tekið í notkun árið 1946.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.