Morgunblaðið - 16.05.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Horn, hraunflæði,
Sýningin Handverk og Hönnun hefst í Ráðhúsinu í dag og hér getur að líta brota-
brot af þeim hönnuðum sem þar koma saman. En á sýningunni mun m.a. gefa að
líta verk leirlistarfólks, fatahönnuða, innanhúshönnuða og skartgripasmiða.
Í dag hefst sýning/kynning í Ráðhúsi
Reykjavíkur á handverki, hönnun og
listiðnaði. Sjálfseignarstofnunin
Handverk og hönnun stendur fyrir
sýningunni sem lýkur 20. maí en á
heimasíðu þeirra, handverkoghonn-
un.is, má finna frekari upplýsingar
um þátttakendur og vörur þeirra.
Hátt á fjórða tug listamanna mun þar
sýna saman og kynna verk sín sem
eru jafn mismunandi og þau eru
mörg.
Á heimasíðu stofnunarinnar má
einnig finna ýmsan fróðleik sem við
kemur handverki og hönnun. Þar er
hægt að finna upplýsingar um við-
burði og sýningar auk þess sem hægt
er að glugga í stóran gagnabanka
listamanna og fá þar að kynnast
verkum þeirra. Auk þess er hægt að
finna þar gott safn bóka um hand-
verks- og listiðnað og fá þær sendar
heim.
Vefsíðan www.handverkoghonnun.is
Morgunblaðið/Ómar
Tröllkarlar Á sýningunni í fyrra var hægt að finna allt frá tröllkörlum til hatta.
Allt um handverkssýninguna
Að loknu Eurovision í kvöld geta tón-
listarþyrstir haldið á Bunk Bar til að
hlýða á kjötsmiðinn Stafrænan Há-
kon. Herlegheitin hefjast klukkan 22
og var hugmyndin að heiðra gesti
sem þrá vorið eitt með melódískum
og kraftmiklum tónum.
Stafrænn Hákon gaf út plötuna
Pramma í takmörkuðu upplagi rétt
fyrir jólin og var hluti af plötunni tek-
inn upp með höfuðið staðsett inni
hanskahólfi á Pajero-jepplingi.
Áhugasamir um óvenjulegar tónlist-
arupptökur ættu því ekki að láta
þennan viðburð fram hjá sér fara. Að-
gangur er frír.
Endilega …
… fagnaðu vor-
inu á Bunk Bar
Tónlistarmaðurinn Ólafur Jóseps-
son kallar sig Stafrænan Hákon.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjarðarkaup
Gildir 16.-18. maí verð nú áður mælie. verð
Nautainnralæri, kjötborð ............ 2.798 3.398 2.798 kr. kg
Lambafille m/fitu, kjötborð......... 3.698 4.098 3.698 kr. kg
FK svínahnakki, kryddaður.......... 1.398 1.729 1.398 kr. kg
FK svínakótelettur, kryddaðar ...... 1.398 1.850 1.398 kr. kg
Fjallalambs fjallalæri.................. 1.398 1.598 1.398 kr. kg
KS lambabógur, heill, frosinn...... 898 1.149 898 kr. kg
Appelsínur ................................ 188 198 188 kr. kg
Iceberg salat ............................. 298 428 298 kr. kg
Bökunarkartöflur........................ 168 218 168 kr. kg
Hagkaup
Gildir 17.-20. maí verð nú áður mælie. verð
Hagkaup grill lambalæri ............. 1.819 2.598 1.819 kr. kg
Holta bbq vængir, 800 g ............ 418 697 418 kr. pk.
Holta buffalóvængir, 800 g ......... 418 697 418 kr. pk.
SS. kryddl. grísakótelettur........... 1.874 2.498 1874 kr. kg
Veronabrauð ............................. 299 449 99 kr. stk.
Brezel-saltkringlur ...................... 169 229 169 kr. stk.
Sérbökuð vínarbrauð.................. 159 249 159 kr. stk.
Kjarval
Gildir 16.-19. maí verð nú áður mælie. verð
SS kryddl. lambatvírifjur ............. 2.498 3.139 2.498 kr. kg
SS kryddl. lærissneiðar .............. 2.878 3.598 2.878 kr. kg
Holta kjúklingabringur ................ 2.398 2.898 2.398 kr. kg
Sætar kartöflur .......................... 289 389 2.89 kr. kg
Pepsi eða Pepsi Max, 2 l............. 198 295 99 kr. ltr
Weetos heilhveitihringir, 350 g .... 467 549 467 kr. pk.
Emmess Lurkar, bláberja ............ 399 498 399 kr. pk.
Krónan
Gildir 16.-19. maí verð nú áður mælie. verð
Lambalæri ................................ 1.398 1.498 1.398 kr. kg
Lambalæri, krydduð................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Lambafille m/fiturönd................ 3.868 4.298 3.868 kr. kg
Ungnauta Roast Beef ................. 2.168 2.898 2.168 kr.kg
Ungnauta Entrecote, erlent ......... 2.989 4.598 2.989 kr. kg
Grísahnakki úrb., erlendur .......... 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Krónu kjúklingur, ferskur ............. 798 859 798 kr. kg
Nóatún
Gildir 17.-19. maí verð nú áður mælie. verð
Lambalærissneiðar, kjötborð....... 1.898 2.198 1.898 kr. kg
Lambalæri, kjötbroð................... 1.498 1.698 1.498 kr. kg
Ungnautahamborg. 120 g, kjötb. 229 289 229 kr. stk.
Grísalundir m/sælkeraf., kjötb. ... 2.398 2.998 2.398 kr. kg
ÍM kjúklingabringur .................... 2.099 2.469 2.099 kr. kg
Mjólka hindberja skyrterta, 600 g 998 1.198 998 kr. stk.
Trópí appelsínusafi ..................... 254 299 254 kr. stk.
Þín verslun
Gildir 16.-19. maí verð nú áður mælie. verð
Fjallalambs lambafillé, kjötborð .. 3.798 4.998 3.798 kr. kg
Ísfugl Tex Mex vængir ................. 540 675 540 kr. kg
Ísfugl kalkúnagrillsneiðar ............ 1.679 2.098 1.679 kr. kg
Hunt’s BBQ sósa original, 612 g . 298 425 487 kr. kg
Sprite ....................................... 198 249 198 kr. l
Egils Mix Öpp, 0,5 l.................... 129 179 258 kr. l
Lays snakk, 175 g ..................... 349 399 1.995 kr. kg
McCain Super franskar, 650 g .... 659 819 1.014 kr. kg
Lambi WC pappír, 12 rúllur ......... 989 1.298 989 kr. pk.
Lambi eldhúsrúllur, 3 stk. ........... 398 515 398 kr. pk.
Helgartilboð
Morgunblaðið/Golli
T
il
bo
ði
n
gi
ld
a
15
.-
20
.m
aí
20
13
eð
a
m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
d
as
t.
Dásamlegt dekur
Jasmine & Bergamot gjafakassi
Eau de Toilette 75 ml, sturtugel 175 ml og húðmjólk 175 ml. Einnig
til í Magnolia & Mûre, Thé Vert & Bigarade og Vanille & Narcisse.
Kringlan - Sími: 577 7040 | www.loccitane.com
10.500 kr.
Andvirði 14.490 kr.
Guðmundur Örn Ólafsson er Suð-urnesjamað uppruna en hefurbúið norðan heiða síðastliðin ár,
nánar tiltekið í Hrafnagilshverfi í Eyja-
firði. Þar er Guðmundur Örn með vinnu-
stofu í Grasrót-Iðngörðum við Hjalt-
eyrargötu en þar er fjöldi listamanna samankominn í gömlum skrifstofum og
trésmiðju Slippsins á Akureyri. Guðmundur Örn hefur lengi fengist við að
smíða og haft sérstakan áhuga á því að búa eitthvað til og smíða úr hornum.
„Ég byrjaði á því að smíða drykkjarhorn, hálsmen, ýmislegt slíkt. Síðan
færðist ég meira yfir í hnífasmíðina og þá langaði mig að smíða þá alveg frá
a til ö. Það varð til þess að ég fór að eldsmíða og smíða blöðin sjálfur fyrst úr
stáli, síðan þarf að herða og slípa og loks handsauma ég slíðrið utan um. Ég
hef verið duglegur að fikta mig áfram í gegnum tíðina og er nú í hópi eld-
smiða hér á landi sem ákváðu að taka upp þessa gömlu aðferð sem var nánast
að hverfa. Höldum við árlegaÍslandsmót á byggðasafninu á Akranesi og er
gaman að sjá þetta gamla handverk lifna við,“ segir Guðmundur Örn sem
hannar undir því tvíræða nafni Horny Viking.
„Fólk verður stundum kindarlegt þegar ég segi því nafnið en þetta er nú
bara tilkomið af því að ég smíða sköftin á hnífunum úr hornum,“ segir Guð-
mundur Örn. Hann má heimsækja á vinnustofuna og einnig skoða vörunar á
Facebooksíðu hans undir Horny Viking.Eldsmíði Guðmundur
Örn að störfum í smiðju.
Hnífasmíði
Hnífasmíði
Blöðin eru
smíðuð úr stáli,
hert og slípuð.
Birna Kristín Friðriks-dóttir hannar og fram-leiðir peysur og húfur
undir nafninu Volcap. Birna
segir gosið í Eyjafjallajökli hafa
kynt undir sköpunarþörf sinni
og myndir af hraunrennslinu
hafi veitt henni innblástur til að
endurskapa það í ullinni.
„Ég prófaði að búa til eins og
hraunrennsli í ullina með því að
setja lausa ull í svarta prjóna-
voð sem tókst býsna vel. Ég
byrjaði á því að framleiða húf-
ur en byrjaði síðan í fyrra að framleiða peysur bæði á full-
orðna og börn. Einnig geri ég værðarvoðir með sömu
tækni þar sem ég nota þæfingarnál til að festa ullina og
geri mynstrin þannig. Innblásturinn sæki ég ætíð í náttúr-
una og reyni að ná fram því sem ég sé en ég hef líka mikið
gert af mosamynstri og nota þá liti
sem finnast úti í náttúrunni. Ég er
mikið náttúrubarn og sameina
þarna áhuga minn á náttúru Ís-
lands og hönnun,“ segir Birna. Hún
er menntaður handavinnukennari
og nam einnig textílhönnun í Dan-
mörku í eitt ár en auk þess hefur
hún starfað sem leiðsögumaður.
Birna hefur í mörg ár saumað á
fjölskylduna en ætlar nú að láta á
það reyna hvort hún geti fram-
fleytt sér með hönnuninni. Hönn-
un Birnu fæst t.a.m. í Álafossbúð-
inni, Sögusetri og Kistunni í Hofi á Akureyri.
Nánari upplýsingar um Volcap má nálgast á Facebook
undir Volcap Iceland. Þá mun opna sýning Birnu og Hel-
enu Óladóttur, áhugaljósmyndara, á Skörinni þann 24.
maí næstkomandi.
Volcap Hraun í ull.
Innblásin af Eyjafjallajökli
Hönnuður Birna Kristín.